Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1989, Qupperneq 23

Skinfaxi - 01.06.1989, Qupperneq 23
Við hugsum Rætt viö Jónas Þórhallsson, stjórnarmann í knattspyrnudeild Ungmennafélags Grindavíkur, um stóra drauma og raunverulegar staðreyndir um mikið starf Það eru ekki mörg félög sem hafa verið byggð upp af jafn miklu harðfylgi og dugnaði á undanfömum árum og Ungmennafélag Grindavíkur. I dag eru Grindvíkingar með eitt besta körfuknattleikslið á landinu, meistara- flokkur karla er í Urvalsdeildinni og yngri flokkarnir lofa góðu. Knattspyrn- an er í mikilli uppsveiflu, þar misstu Grindvíkingar naumlega af sæti í annari deild í fyrra en eru ofarlega í 3 deild þegar þetta er skrifað. Og það er knattspymudeildin sem hefur vakið sérstaka athygli fyrir snöfur- mannlega uppbyggingu á sinni keppnis- og æfingaaðstöðu. Það er ekki langt í að aðstaðan verði nákvæmlega eins og sést á þeirri teikningu sem er á næstu opnu. Það eina sem vantar upp á að þessi teikning sé nákvæm lýsing á raunverulegum aðstæðum er trjá- gróðurinn. Knattspyrnumenn hyggjast hins vegar ráða bót á því mjög fljótlega með gróðursetningu. Draumsýn Jónasar Fyrir tæpum tveimur árum var talað um þessa teikningu sem „draumsýn Jónasar”. Jónas þessi Þórhallsson er einn af þeim kraftamönnum sem nú eru í forvígi knattspyrnudeildarinnar í Grindavík. Við tókum hann tali fyrir nokkru í hinu glæsilega félagsheintili knattspyrnudeildarinnar við Austurveg í Grindavík sem inniheldur skrifstofu, funda, og veitingasal og eldhúsaðstöðu. Jónas varbeðinn að lýsa tilurð svæðisins sem inniheldur vallarhús með geymslu og sturtum, félagsheimilinu fyrrnefnda og tveimur knattspyrnuvöllum, malar- og grasvelli. „ Við erum nú búnir að vera með þessar hugmyndirfrá 1983. Þágengum viðvel Jónas Þórhallsson, lengst til hœgri með þeim Gunnlaugi Hreinssynii formanni UMFG og Guðjóni Ólafssyni, þjálfara meistaraflokksliðs UMFG í hinu glœsilega félagsheimili þeirra Gindvíkinga. frá malarvellinum en umhverfið var þá svo að segja bert hraunið. Síðan höfum við tekið þetta í áföngum. Það var 1986 sem við tókum félagsheimilið í notkun og einn þeirra sem átti hvað mestan þátt í þessari uppbyggingu og var nokkurs konar vítamínsprauta á okkur hin heitir Sigurður Ólafsson. Hann er látinn fyrir rúmu ári síðan en ég vil nú líta á hann sem e.k. föðurknattspymu-deildarinnar. Að hugsa eins og 1. deildarmenn Ég held það sé ekki hallað á neinn annan af þeim tjölmörgu sem hafa lagt hér hönd á plóginn þó Sigurður hafi þetta viðurnefni. Hann sagði einhverju sinni að Grindavíkurliðið væri eina 3. deildar liðið á landinu þar sem hugsað værieinsoghjál.deildarliðum. Égheld að það sé ekki fjarri sanni. Sigurður hugsaði stórt og smitaði út frá sér. Vinnan við félagsheimilið var um 90% í sjálfboðaliðsvinnu. En við fram- kvæmdum þetta þannig að við sjálfir megnið af vinnunni en réðum síðan á lokasprettinum einn af félögum okkar, Hilmar Knútsson, húsasmíðameistara í vinnu og komum síðan á kvöldin og hjálpuðum honum. Við vorum búnir að setja fastan dag sem vígsludag hússins, 26. júlí 1986, og svona fórunt við að því. SKINFAXI 23

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.