Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1989, Qupperneq 24

Skinfaxi - 01.06.1989, Qupperneq 24
Framtíðin hjá UMFG? S.flokkurinn ásamt þjálfara sínum Pálma Ingólfssyni. Það var rigning og rok þegar Skinfaxi var á ferðinni en þeir létit það ekki aftra sér strákarnir og voru hressir. Þó eru hæðir og lægðir í byggingarsögu þessa húss. Það stóð í tvö ár, sem einföld grind og sumir hér í bæ voru farnir að tala um að það væri ekkert annað að gera en að kveikja í þessu, þetta yrði ekkert annað en grind. Þá settumst við niður hér í knattspymu- deildinni '86 og skipulögðum fram- kvæmdir. Síðan tilkynntum við íviðtali við Dagblaðið að við ætluðum að klára húsið á næstu mánuðum og fara síðan í að gera stóran grasvöll með haustinu. Þá héldu menn að við værum annað hvort famir að kalka eða það væri allt of mikið loft í okkur. En við vígðum húsið og fórum síðan í ágúst í völlinn. I lok ágúst höfðu bæjarstarfsmenn lokið við að mæla út framtíðarvöllinn. Þá kom ýta frá bænum og ruddi fyrir svæðinu. Síðan komu vörubílar og skutluðu undirlagi í völlinn og þegar það var komið tókum við við. Það var eftir að jafna út undirlaginu, tína grjót og svo framvegis. Síðan sáum við um þökurnar. Þó það hafi verið svona fjögurra manna kjarni sem kom þessu áfram mættum við mjög jákvæðum anda frá fólki og fyrirtækjum hér í bænum. Vörubílstjórar gáfu mikla vinnu svo aðeins fáir séu nefndir. En ég vil sérstaklega fá að þakka Boga Hallgrímssyni fyrir hans óeigingjarna starf. Hann er um sextugt, á son í meistaraflokknum og mætti í svo til hverja einustu klukkustund sem unnin var hér. Hann er ekki í stjóm eða neinu slíku. Það var bara hans áhugamál eins og margra annarra að sjá fal legan gras völ 1 rísa hér í Grindavík. 120 auglýsingaskilti Það eru um það bil 250 fyrirtæki í Reykjavík og nágrenni sem byggja afkomu sína á þjónustu við sjávarútveg. Við erum nú með um 120 aug- lýsingaskilti hérávellinum. Viðgerðum fasta samninga við þessi fyrirtæki til mislangs tíma. Greiðslan fyrir afnotin á vellinum til auglýsinga var í mörgum tilfellum í formi efnis til vallarins og hússins. Við sömdum t.d. þannig við BM Vallá um auglýsingaspjald til þriggja ára fyrir steypu á kanti og stéttum hér kringum húsin. Félagsheimilið er mikið notað af ýmsum félögum hér á staðnum, þannig að nýtingin er mikil. Þegar farið var að huga að innréttingum í húsið voru sumir að tala um að við gætum fengið stóla hér, sófa og borð þar og svo framvegis. En við vildum ekkert túsk á hlutunum og keyptum allt nýtthérinn. Og sú ákvörðun hefur sannað gildi sitt, fólk úr ýmsum hópum bæjarfélagsins gengur hér vel um og enn er hér allt eins og nýtt. Ef við hefðum fengið gamla hluti í húsið hefði þetta verið eins og úr sér gengin verbúð í dag og fólk hefði gengið um húsið í samræmi við það. Við náðum hagstæðum samningum við fyrirtæki í þessu sambandi sem er með auglýsingaskilti viðvöllinn. Viðfengum húsgögn á niðurgreiddu verði vegna auglýsingaskiltanna. Jákvæður stuðningur fyrirtækjanna Samhliða þessari framkvæmd vorum við með rekstur deildarinnar á fullu. En við gætum auðvitað ekki staðið í svona framkvæmdum nema með miklum og jákvæðum stuðningi fyrirtækja og sveitarfélagsins hér í Grindavík. Forstjórar stærslu fiskvinnslu- fyrirtækjanna hér, Þorbjörnsins og Fiskaness, eru miklir knattspyrnu- áhugamenn og þeirra fyrirtæki eru stærstu styrktaraðilar knattspyrnunnar hér í bæ. Dagbjartur Einarsson í Fiskanesi er til dæmis einn al harðasti stuðningsmaðurinn í bænum og setur skemmtilegan svip á heimaleikina með skemmtilegum hrópum og hvatningum. Dagbjarturvarforseti bæjarstjórnarlengi og hann talaði alltaf um að þegar við værum komnir í 2. deildina gengi ekki annað en við hefðum grasvöll. Við vorum að verða á eftir í þessum málum héráSuðumesjum. Þaðerusvotilöll lið komin með grasvöll en við gátum ekki einu sinn æft á grasi. Þannig að við tókum af skarið sjálfir og nú erum við komnir með grasvöllinn og stefnum á 2. deildina að ári." Fóikið er með okkur Jónas segir að þorri almennings styðji vel vcið bakið á þeim. „A síðasta sumri vorum við að fá á milli 500 og 700 áhorfendur á eina 3 eða 4 leiki . Þó höfum við ekki gert nógu vel við áhorfendur. I fyrra varð fólk að hafast við í hraunnibbum utan við völlinn. Nú eru komnir skjólgarðar og og aflíðandi brekka sem á að rúma um 800 áhorfendur. En um leið og grindvískir áhorfendur styðja vel við bakið á okkur eru þeir einnig mjög kröfuharðir. Við fáum því að heyra það ef við stöndum okkur ekki. Eg er með ákveðnar hugmyndir um framhaldið sem sumir blása nú á eins og er. En það var líka gert þegar við vorum að kynna grasvöll og félagsheimili. Það sem vantar nú er stórt félagsheimili með góðri aðstöðu fyrir allar deildir ungmennafélagsins. Körfuknattleiks- deildin sem hefur nú náð bestum árangri hefur enga almennilega aðstöðu fyrir sína starfsemi. Þeireru að hittast heima hjá sér til að halda fundi. Nú eru uppi hugmyndir um að bæjarfélagið geri upp gamla kaupfélagshúsið hér og afhendi það öllum deildum félagsins til afnota. Mér finnst það ófært. Við höfum sýnt fram á að það er hægt að gera þetta á eigin spýtur með ákveðinni aðstoð frá utanaðkomandi aðilum. Þegar varverið að leggja drögin að þessu félagsheimili 24 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.