Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.06.1989, Side 28

Skinfaxi - 01.06.1989, Side 28
framkvæmd óvenjuleg að því leyti að ein brautanna verður upphituð fyrir skokkara og aðra hlaupara yfir veturinn svoþeirþurfi ekki aðlátasnjóalög koma í veg fyrir iðkun íþróttar sinnar. Þetta tíðkast ekki erlendis og er því tilraun. Það verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því dæmi.” Jón Asbjörnsson, bæjartæknifræðingur Mosbellsbæjar, var einnig á umræddum blaðamannafundi og sagði m.a. að þessi framkvæmdværiótrúleganákvæm. Hér er um að ræða framkvæmd þar sem frávik mega ekki vera meiri en plús eða mínus 2 millimetrar hvað snertir beinar láréttar lfnur. Þá má gap ekki vera meira en 4 m i 11 imetrar ef 6 ti 110 metra réttskeið er lögð á brautina. Þetta er því svolítið nákvæmara en að leggja malbik á Laugaveginn. Oftast er nú orðið notast við leysi geyslastýrðar malbikunarvélar við malbikunarframkvæmdir undir gerviefni af þessu tagi. Slík vél er ekki til hér á landi en við teljum okkur samt geta lagt malbikið sómasamlega.” IH Frá Landsmótinu á Laugum í S-Þingeyjarsýslu 1961. Þá var synt í lauginni. Afmælismót Árið 1940 var Landsmót ungmenna- félaganna endurvakið, í þeirri mynd sem við þekkjum þau nú, þ.e. stórmót sem aðildarfélög Ungmennafélags Islands standa að. 4. Landsmótið var haldið í Haukadal 1940. Landsmótið í Mosfellsbæ 1990 verður þannig afmælismót í tvennum skilningi. Auk þess að vera 20. Landsmót Ung- mennafélags íslands þá verða liðin 50 ár frá endurreisn landsmóta þegar Landsmótið verður sett á næsta ári. Sigur í stigakeppni UMSK vann stigakeppnina á Landsmótinu í Haukadal. Á 7. Landsmótinu í Hveragerði 1949 hófst hins vegar sigurganga Héraðs- sambandsins Skarphéðins, HSK, á Landsmótum sem staðið hefur óslitið síðan, með þeirri undantekningu þó að UMSK sigraði eftir harða keppni á 15. Landsmótinu á Akranesi 1975. Auk þessara tveggja sambanda hafa Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands, UIA, og Héraðssamband Suður-Þingeyinga, HSÞ, sigrað í stigakeppni landsmótanna. Landsmótin stækka Umfang Landsmóta hefur vaxið mikið frá því það var endurreist í Haukadal 1940. Þar voru keppnisgreinar aðeins 11 og keppendur 73. Á Landsmótinu á Húsavík 1987 voru keppnisgreinamar komnar upp í 66 og keppendur voru rúmlega 1200. Tugþúsundir áhorfenda Þátttaka almennings í þeirri þjóðhátíð, sem Landsmót ungmennafélaganna eru, hefur jafnan verið mikil. Gífurlegur fjöldi umsjónarmanna, starfsmanna og áhorfenda streymir jafnan að þar sem Landsmót eru haldin. Á mótinu á Laugarvatni 1965 er talið að um 25.000 manns hafi mætt til leiks í sérstöku blíðskaparveðri. Síðan hefur þátttakendaskarinn, gestir, keppendur og starfsmenn, verið frá 11.000 til 17.000 manns. Samantekt; Omar Harðarson, framkvæmdastjóri Landsmóts UMFI 1990. Leiðrétting I síðasta tölublaði var farið rangt með tölur í myndatexta sem varðar Landsmótin. Þarvarsagtaðmyndin væri frá Landsmóti UMFÍ á Laugarvatni 1956 og að HSK hefði sótt um að halda landsmótið 1996. Það er að sjálfsögðu rangt. Mótið á Laugarvatni varhaldið 1965, HSK sótti um og mun halda Landsmótið 1993, eins og rétt var greínt frá í meginmáli greinarinnar. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Landsmótin í 40 ár Fyrsta Landsmótið Fyrsta landsmótið var haldið á Akureyri árið 1909, tveimur árum eftir stofnun Ungmennafélags Islands, UMFI. Fram að fyrri heimsstyrjöld voru síðan haldin 3 landsmót. Þessi fyrstu landsmót voru með nokkuð öðru sniði en nú þekkist. í þeim gátu allir tekið þátt, án þess að vera skráðir í nokkurt íþrótta- eða ungmennafélag. í fyrri heimsstyrjöldinni þótti ekki fært að halda landsmót. Þau féllu síðan niður og urðu ekki endurvakin fyrr en ný heimsstyrjöld hafði skollið á. 28 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.