Skinfaxi - 01.06.1989, Qupperneq 31
Sigurbjöm segir mesta vandamál
deildarinnar vera að hún er ekki
með sérstakan sal.
Inn með dýnur.
Út með dýnur
„Við æfum núna niðri í íþróttaúsi
í ágætis sal en málið er að við
þurfum að alltaf að vera á ferðinni
með dýnurnar, inn og út úr salnum
á hverri æfingu. Fyrir nokkrum
árum höfðum við sal fyrir okkur,
vorum með mjög færan
rússneskan þjálfara og þá voru
125 félagar í deildinni. Síðan
misstum við salinn og í framhaldi
af því fækkaði iðkendum mikið.
Þetta helst alveg í hendur. Þess
vegna er það forgangsmál hjá
okkur að fá sal sem við höfum út
affyrirokkur. Viðerumaðvinna
að því, eigum í viðræðum við
bæjaryfirvöld hér í Keflavfk og
erum vongóð.
Gylfi við hlið þjálfara síns, Mikhael, sem liann metur mikils.
Undir sundlaugina
Nú er ekki langt í að sundlaugin
komist í gagnið í Keflavík og
Sigurbjörn segir að þar sé 100 fm
salur í kjallaranum sem þeir geri
sér vonir um að fá.”
„Það átti ekki að taka nema
helminginn af húsinu í notkun í
fyrstu”, segir Sigurbjörn.
„Sundlaugina sjálfa og
búningsherbergi. Við erum að
gera okkur vonir um að komast í
kjallarann. Þaðerekki svomikill
aukakostnaður sem felst í því að
taka hann í notkun en myndi
breyta öllu fyrir okkur.”
Þeir Keflvíkingar hafa gott
samstarf við Grindvíkinga í
júdóinu.
Æfa meö UMFG
„Viðerum með samaþjálfarann. Hann
heitirfjórum snúnum nöfnum og ég segi
þérþaðeinfaldasta, Mikhael. Viðæfum
þrisvar í viku undir hans stjórn og erum
með samæfingu einu sinni í viku, þar
sem Mikhael þjálfarhópanasaman. Það
hefur gengið mjög vel. Þetta er fyrst og
fremst til að fá meiri fjölbreytni, svo
menn spreyti sig ekki alltaf á sömu
mönnunum. Mikhael er mjög góður
þjálfari og við erum að vona að við fáum
hann áfram. Honum hefur líkað vel hér
og ætlar að vera hér í sumar.
Æfingar í sumar
Við ætlum að gera tilraun með æfingar
fram ásumarmeðGrindvíkingum þannig
að það er mikill hugur í okkar mönnum.
Við höfum líka góða reynslu af
austantjalds-þjálfurum. Þeireru agaðir,
hafa góða yfirsýn á það sem þeir eru að
gera og ætla sér að gera. Við vorum með
Rússa fyrir nokkrum árum, eins og ég
sagði áðan og hann reyndist mjög vel.
H vað varðar þessar samæfingar verðum
við að gera eitthvað slíkt til að láta enda
ná saman.”
Gylfi ermjöghrifinn af Mikhael. „Hann
er fínn þjálfari og við kennum honum
íslensku”, segir Gylfi. „Hann segir
eitthvað á ensku og þegar við vitum
hvað það þýðir segjum við honum það
strax á íslensku. Hann hefur verið að
læra svona í allan vetur. Eg ætla alveg
örugglega að æfa í sumar ef það veröur
hægt’segir Gylfi að lokum.
IH
SKINFAXI
31