Skinfaxi - 01.06.1989, Page 33
áhuga og metnað fyrir hönd þeirra sem
æfa þar.
Á Húsavík er hins vegar aðeins 16 m
laug og æfingatímar takmarkast af
opnunartíma laugarinnar. Það er því
draumur sundfólks á Húsavík að fá sem
fyrst 25 m laug, því það þarf verulegan
áhuga og dugnað hjá sundfólkinu til að
stunda æfingar nær eingöngu á kvöldin.
Þjálfaramál Húsvíkinga hafa þangað til
í vetur verið leyst með sjálfboðavinnu
og hefur Gunnar Rafn Jónsson unnið þar
verulega gott og fórnfúst starf. I vetur
voru ráðnir tveir launaðir þjálfarar til
sunddeildarinnar, þau Pálmi Jakobsson
sem sá um þjálfun eldri barna í vetur og
Regína S igurðardóttir sem þjálfaði y ngri
börnin. í surnar eru þrír þjálfarar hjá
sunddeildinni og er æft alla virka daga
eftirlokun laugarinnarogfjórumsinnum
í viku í hádeginu, en þá hefur sunddeildin
til umráða 2/3 af lauginni. Það er fyrst
og fremst að þakka velvilja ráðamanna
sundlaugarinnar að mögulegt er að æfa
svona oft.
Það er ánægjulegt fyrir okkur sem
störfum að sundmálum hjá HSÞ að sjá
hversu mörg börn hafa áhuga fyrir
sundíþróttinni og sérstaklega hversu
margirefnilegireinstaklingareru í yngri
flokkum. Því horfum við bjartsýn til
framtíðarinnar hvað varðar sundl ið HSÞ
á komandi árum.
ÚR
SKART
Bankastræti 6. Simi 18600
Þáttur foreldra í starfi sunddeildanna
beggja er ómetanlegur, ef þeirra nyti
ekki við væri erfitt að halda starfi
deildanna gangandi.
Það ríkir mikill félagsandi meðal
keppenda hjá HSÞ og er verulega gaman
að fylgjast með hvernig hópurinn verður
ein heild þegar komið er á stærri mót.
Sundfólkið æfir á tveimur stöðum og
keppir innbyrðis á héraðsmótum og þá
er keppni milli félaga mikil og hörð.
Vonandi heldur sundlið HSÞ áfram að
eflast og dafna og það er ljóst að þrátt
fyrir erfiðar aðstæður er allt hægt ef
viljinn er fyrir hendi.
Regína Sigurðardóttir, formaður
sundráðs HSÞ.
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
SKINFAXI
33