Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1989, Síða 38

Skinfaxi - 01.06.1989, Síða 38
Hlaupið fyrir fari í byrjun júni mánaðar lögðu hópar fólks úr Skagafirðí og S-Pingeyjarsýslu upp í nokkuð langt hlaup. Þau voru á leið á frjálsíþróttaæfingu í Bernkastel í V- Þýskalandi og til að minnka nú kostnaðinn við æfingaferðina hlupu þau til Reykjavíkur. Hér fylgir pistill frá Jóhannesi Sigurjónssyni, ritstjóra Víkurblaðsins á Húsavík. Nánar verður sagt frá ferðum héraðssambanda til Þýskalands í næsta blaði en auk HSÞ og UMSS fór fólk frá UÍA og UMSE í slíkar æfingferðir. Þingeyingar í HSÞ hefja hlaupiðfrá Laugum í S-Þingeyjarsýsllu - á leið til Reykjavíkur. Mynd JS. Víkurhlaðið. Föstudaginn 23. maí lagði hópur frjálsíþróttafólks frá HSÞ upp frá Laugum og ákvörðunarstaðurinn var Þýskaland.nánartiltekiðMoseldalurinn, þar sem hópurinn mun dvelja í æfingabúðum í hálfan mánuð. Það sem vareftil villóvenjulegt.vðþettaferðalag var fyrsti áfanginn, frá Laugum til Reykjavíkur. Unglingarnir ætluðu sem sé að hlaupa þennan spotta og að sjálfsögðu í fjáröflunarskyni. Aheitasöfnunin gekk vel og þegar upp er staðið munu þessi hlaup greiða fæði og húsnæði hópsins í Þýskalandi og hefur oft verið hlaupið með minni árangri. Stundvíslega klukkan fimm lagði hópurinn af stað hlaupandi frá íþróttahúsinu á Laugum og hljóp þaðan upp á þjóðveg. Þar fóru flesitir í bíla en fyrsti hlauparinn tók á rás niður í dal og sem leið lá upp á Fljótsheiði. Síðan var skiptst á að hlaupa næsta sólarhring og gott betur því komið var til Reykjavíkur á sunnudag. A mánudag var svo haldið yfir hafið og þá þótti affarasælla að ferðast fremur fljúgandi en á fæti. VERÐLAUNAPENINGAR stærð 42 mm. Verð 195 kr. stk. með áletrun Einnig mikið úrval af bikurum og öðrum verðlaunagripum. Pantið tímanlega. GULLSMIÐIR Sigtryggur & Pétur. Brekkugötu 5 - Akureyri. Sími: 96-23524. 38 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.