Skinfaxi - 01.02.1999, Síða 3
oo l'h
\
íþrottir
&
áfengi
„Ekki það að íþrótta-
menn drekki mikinn
bjór heldur er algengt
að íþróttaáhugamenn
fái sér einn Budweiser
eða einn Calsberg á
meðan horft er á
íþróttaleik.“
Einn bjór takk!
SKINFAXI
Ritstjóri
Jóhann Ingi Árnason
Auglýsingar
Markaðsmenn
Ljósmyndir
Sigurjón Ragnar
jóhann Ingi Árnason
Umbrot
jóhann Ingi Árnason
Ritstjórn
Anna R. Möller
Sigurbjörn Gunnarsson
Sigurlaug Ragnarsdóttir
Vilmar Pétursson
Framkvæmdastjóri
Sæmundur Runólfsson
Ábyrgðarmaður
Þórir Jónsson
Við íslendingar þurfum alltaf að vera
svolítið sér á báti. Svo árum skipti
vorum við að ég held ein þjóða sem
bannaði sölu á bjór. Ekki ætla ég að
fella dóm á það hvort drykkjarvenjur
^ landans hafi batnað eftir að bjórinn var leyfður en
í dag, rúmum tíu árum eftir að fyrsti bjórinn var
seldur hér á landi er hann mikið í umræðunni.
Iþróttir og áfengi, þá sérstaklega bjór, tengjastt
mikið um allan heim. Ekki það að íþróttamenn
drekki mikinn bjór heldur er algengt að
íþróttaáhugamenn fái sér einn Budweiser eða
einn Carlsberg á meðan horft er á íþróttaleik.
Bjórframleiðendur hafa fundið stóran markað sem
þeir stíla inn á um allan heim - nema á íslandi! í
þessu fyrsta tölublaði ársins 1999 fengum við
nokkra valinkunna menn til að spá í tengsl áfengis
og íþrótta og hvort þessir ólíku hlutir eigi einhvern
tímann samleið. Þorgrímur Þráinnsson, fyrrum
knattspyrnumaður, Skúli Skúlason, fyrrum
formaður Keflavíkur, Björgúlfur Guðmundsson,
formaður KR-sport, Þorgerður Ragnarsdóttir,
framkvæmdastjóri Áfengis- og vímuefnaráðs og
Eggert Magnússon, formaður KSÍ, spá í þessi mál
og það er greinilegt á viðtölunum að ekki hafa allir
sömu skoðanir á þessum málum.
Jóhann Ingi Árnason
Prentun
Svansprent
Pökkun
Vinnustofan Ás
Dreifing
Blaðadreifing
Stjórn UMFÍ
Þórir Jónsson
Björn B. Jónsson
Kristján Yngvason
Jóhann Ólafsson
Kristín Gísladóttir
Ingimundur Ingimundarson
Sigurður Aðalsteinsson
Varamenn
Páll Pétursson
Sigurbjörn Gunnarsson
Anna R. Möller
Helga Guðjónsdóttir
Skrifstofa Skinfaxa
Þjónustumiðstöð UMFÍ
Fellsmúla 26
108 Reykjavík
sími: 568-2929
fax: 568-2935
netfang: umfi@umfi.is
3