Skinfaxi - 01.02.1999, Blaðsíða 20
Uppbygging íþróttamannvirkja í
Austur-Héraði
Jóhann Ingi Árnason hitti bæjarstjóra Austur-Héraös, Björn H.
Guðmundsson, að máli og spurði hann út í undirbúning mótsins.
svæðinu en áætlunin var að gera það á
fleiri árum. Þetta er stórt og erfitt
Landsmótið mun hafa
jákvæð áhrif fyrir
fjórðunginn í heild
að þarf að leggja út í miklar og
dýrar framkvæmdir til að halda
Landsmót nú til dags og
bæjarfulltrúar titra við tilhugs-
unina um að byggja nýja íþrótta-
velli og jafnvel íþróttahús. En
hvað þýðingu finnst bæjarstjóra
Austur-Héraðs svona mót hafa
fyrir samfélagið?
„Ég lít þannig á að Landsmótið muni
hafa jákvæð áhrif fyrir fjórðunginn í heild.
Ég myndi vilja að sem flest svæði hér nyti
góðs af mótinu með því að dreifa keppnis-
greinunum eins og hægt er á sem flesta
staði.“
- Nú þarf að ráðast í miklar framkvæmdir
fyrir mótið, er það ekkert sem hræðir
menn?
„Það hefur nú alltaf verið talað um að
þessum mannvirkjum yrði komið upp hér á
fjárhagslegt dæmi og þess vegna stóð það
lengi í mönnum að taka þessa ákvörðun.
Þá er aðallega verið að tala um kostnað við
að leggja gerviefni á hlaupabrautir og fáist
fjármagn til þess lítur dæmið allt öðruvísi
út.“
- Liggur fyrir einhver fjárhagsáætlun um
hversu mikið þetta muni kosta?
„Það liggur fyrir fjárhagsáætlun og þrátt
fyrir að ég vilji ekki fara neitt nákvæmlega
út í þau atriði hér get ég upplýst að þessar
framkvæmdir munu kosta á annað hundruð
miiljónir króna. Til að gefa fólki mynd
af því hversu dýrt þetta er fyrir okkur
má nefna að ráðstöfunartekjur okkar
eru um 180 milljónir á ársgrundvelli."
- En ríkið mun nú eitthvað koma til
móts við ykkur, er það ekki rétt?
„Það liggur fyrir á fjárlögum þessa árs
að ríkið borgi 8 milljónir og við teljum
okkur hafa heimildir fyrir því að sú upphæði
greiðist einnig næstu tvö ár á eftir. Samtals
gerir það um 24 milljónir."
- Hvernig finnst þér viðhorf almennings
hafa verið við þessum áætlunum?
„Það fer kannski eftir því hvaða áhugamál
menn hafa en almennt hefur mér fundist
fólk vera jákvætt enda held ég að flestir séu
á því að þessa aðstöðu vanti - hitt er annað
mál hvað hún má kosta.“
20