Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1999, Blaðsíða 31

Skinfaxi - 01.02.1999, Blaðsíða 31
Bergsveinn Bergsveinsson Vítabaninn Bergsveinn Bergsveinsson var sínum gömlu félögum í FH erfiður í úrslitakeppninni. Valdimar Kristófersson hitti hann að máli stuttu eftir að hann hampaði íslandsmeistaratitlinum með Aftureldingu Lið Aftureldingar hefur verið vel mannað undanfarin ár en uppskeran verið að sama skapi rýr. En á þessu varð breyting í ár þegar liðlð small loks saman og þrír titlar af þremur mögulegum fóru í Mosfellsbæinn. Hver skyldi ástæðan vera fyrir þessa góða gengi liðsins í vetur? „Heppni! Það urðu miklar breytingar á liðinu fyrir tímabilið og það komu því nyir leikmenn til liðsins sem við vorum sérlega heppnir með t.d. leikmenn eins og Bjarki Sigurðsson, Troufan og útlendingarnir Gintas og Gintaras sem voru ótrúlega seigir. Þessir strákar féllu allir vel inn í hópinn og það myndaðist góð liðsheild. Þá bættu hinir leikmennirnir nokkuð mikið við sig frá því í fyrra og má líklega rekja það til þess að við lengdum æfingatímann úr 1 1/2 klukkustund í 2 tíma.” Eins og þú segir urðu breytingarnar miklar á liðinu og níu leikmenn fóru. Áttirðu von á þessum árangri samfara þessum breytingum? ,,Nei, ekki eins og þetta leit út fyrir tímabil en síðan fann maður þegar við byrjuðum mótið að það bjó mikið í þessu liðl og við fórum að gera meiri kröfur.” Þú fórst fyrir þínum mönnum í úrslitakeppninni og varðir tæp hundrað skot þ.ám 21 víti í úrslitakeppninni. Hefurðu alltaf verið mikill vítabani? ,,Já, ég held það nú. í fyrra tók ég næst flest vítin, tveimur minni en Lee. Þannig að ég hef verið að taka eitt, tvö víti í leik.” Æfirðu þetta eitthvað sérstaklega? ,,Nei, nei, ég stend meira segja aldrei í marki þegar víti eru tekin á æfingu. Ég er alltaf með sjálfur að skjóta og læt aðra standa í markinu. Ég er alveg hörku vítaskytta.” Þið unnuð þína gömlu félaga úr Hafnarfirðinum í úrslitunum. Voru það blendnar tilfinningar að taka á móti titlinum í Kaplakrika? ,,Já, það var það. Ég er alinn upp í Hafnarfirðinum og bý hérna og vinn enn í dag. Ég er því mjög tengdur þessu enn þá og þekki mikið af Hafnfirðingnum og fólkinu sem starfar í kringum handboltann í Hafnarfirði. Þetta var því mjög sérstakt og hálf furðulegt.” Það gerðist nokkrum sinnum í úrslitakeppninni að þú fékkst boltann í andlitið. Verður þú ekkert smeykur þegar næsta skot kemur á markið? Ég er bæði örvhentur og markvörður þannig að ég hlýt að vera snarklikkaður í hans augum. ,,Nei, alls ekki. Maður er aldrei hræddur. Og í raun er ekkert sérstaklega vont að fá hann í andlitið á meðan nefið fer ekki út á hlið því maður er yfirleitt orðinn vel heitur þegar leikurinn byrjar og tilbúinn í hvað sem er.” Það hefur löngum verið sagt að markverðir í handknattleik þurfi að vera dálítið sérvitrir eða skrýtnir til að standa á milli stanganna. Tekurðu undir þetta? ,,Sko, Bogdan ( innsk. blm. fyrrverandi landsliðsþjálfari íslands) sagðl eitt sinn að að örvhentir væru vitleysingar og mark- menn væru skrýtinir. Ég er bæði örvhentur og markvörður þannig að ég hlýt að vera snarklikkaður í hans augum a.m.k. Annars var alltaf sagt í gamla daga að þeir sem gátu ekkert í handbolta færu í markið.” Átti það við þig? ,,Ætli það hafi ekki verið eitthvað svoleiðis. Aftuelding hefur verið á mikilli uppleið undanfarin misseri. Er vel staðlð að handboltanum í Mósó? ,,Já, ég held að það sé ekki hægt að finna jafn öfluga stjórn og er hér hjá Aftureldingu. Menn hafa verið að fórna ótrúlegum tíma í sjálfboðavinnu til að hafa þetta gott. T.d. hefur Jóhann Guðmundsson formaður verið í þessari uppbyggingu frá upphafi og lagt mikla vinnu í þetta. Það er ekki hægt að ná svona árangri nema að hafa svona öfluga menn innanborðs. Það er vel staðið að öllu hérna og manni líður eins og blóma í eggi.” Það er vel staðlð á bak við ykkur og þlð eru með fjársterk fyrirtæki sem styrkja deildina sem gerir ykkur í raun kleift að fá öffuga leikmenn til félagsins ár hvert. Sérðu fyrir þér að Afturelding verði á toppnum á næstu árum? ,,Já, eins og staðan er í dag. Á næsta ári verðum við með óbreytt lið sem er mjög sterkt því það má segja að þetta sé orðlð vinningslið.” Þú varst valinn í landsliðið aftur eftir 1 1/2 árs fjarveru. Ertu kominn aftur í þitt gamla form? ,,Ég verð reyndar ekki með landsliðinu núna vegna anna í vinnu Ég var að taka að mér stórt verkefni því ég átti ekki von á að ég væri inni í myndinni hjá Þorbirni.” Kollegi þinn í Valsmarkinu, Guðmundur Hrafnkelsson er farinn í atvinnu- mennskuna. Hefur þú ekkert verið að velta þessum hlutum fyrir þér? ,,Ég fékk tilboð frá Valencia sem ég hafnaði. Ég fer ekki út nema að ég fái eitthvað verulega spennandi tilboð.” 31

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.