Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1999, Blaðsíða 7

Skinfaxi - 01.02.1999, Blaðsíða 7
Falur Harðarson Bestur í deildinni Ungmennafélaginn Falur Harðarson og félagar hans hjá Keflavík fóru á kostum í DHL-deildinni í vetur. Valdimar Kristófersson hringdi í Fal nokkrum dögum eftir að sigurinn í deildinni var í höfn Falur Harðarson körfu- knattleiksmaður í Keflavík stendur á þrítugu og hefur sjálfsagt aldrei verið betri. Hann lék geysilega vel í vetur og átti einna stærstan þátt í því að Kefl- víkingar innbyrtu íslandsmeistaratitilinn eftir æsispennandi leiki við erki- fjendurna úr Njarðvík. í lokahófi Körfuknattleikssambands íslands var Falur síðan valinn besti leik- maður íslandsmótsins, af leik- mönnun DHL-deildarinnar. Keflvíkingar og Njarðvíkingar hafa lengi eldað grátt silfur saman og leikið ófáa leikina sín á milli. Undanfarin tvö ár hafa nágrannarnir úr Reykjanesbæ leikið til úrslita um íslands- meistaratitilinn þar sem ekkert hefur verið gefið eftir, enda stoltið mikið og leikmenn barist til síðasta blóðdropa En hvernig skyldi vera að spila við Njarðvík? „Þetta eru stærstu leikirnir ár hvert. Það er miklu meiri spenna fyrir þessa leiki en aðra og menn eru betur stemmdir. Menn vilja aldrei tapa fyrir Njarðvík og Njarðvík aldrei fyrir Keflavík. Það er mikill rígur á milli fyrrum bæjarfélaganna og hvorugur aðilinn vill láta í minni pokann." Þið lékuð til úrslita við Njarðvík í ár þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í fimmta og síðasta leik. Þessir leikir fóru fram á 12 dögum og það voru yfirleitt sömu einstaklingar sem voru að berjast á móti hvor öðrum á vellinum og það var oft stutt í að upp úr syði á milli leikmanna. Er það pirrandi að spila svona oft á móti sama andstæðingnum á stuttum tíma? „Nei, nei, en það er rígur á milli leikmanna > leikjunum og eðlilega vill hvorugur gefa eftir. Þetta er bara keppni þar sem menn leggja sig alla fram en slíðra síðan sverðin þegar leikurinn er búinn. T.d. komu nokkrir leikmenn úr hvoru liði saman í lokahófi sem stuðningsmenn beggja liða héldu eftir úrslitaleikina og það lýsir kannski best hversu miklir félagar við eru utan vallar þótt að félagsskapurinn líti ekki alltaf vel út inn á vellinum.” Keflavík byggir á öflugu starfi yngri flokka Keflvíkingar hafa verið lengi á toppnum þrátt fyrir þó nokkrar mannabreytingar á undanförnum árum. Hver er formúlan fyrir slíkri velgengni? Eg lék reyndar meö KR eitt tímabil og þar kynntist ég ákveðnu metnaðarleysi og við þurfum því ekki að örvænta í náinni framtíð. Og svo er það bara undir félaginu komið að halda þessu góða starfi áfram.” Nú hafa Suðurnesjaliðin Grindavík, Keflavík og Njarðvík einokað deildina undanfarin ár. Er meiri metnaður til staðar hjá þessum félögum en öðrum í deildinni? ,,Ég get í raun ekkert sagt um það enda þekki ég ekki til þar. Ég lék reyndar með KR eitt tímabil og þar kynntist ég ákveðnu metnaðarleysi. Það getur reyndar vel verið að ég hafi hitt á slæman tíma hjá KR en ég var ekki tilbúinn að vera þar nema í eitt ár vegna þessa. Ég hafði metnað til að vinna titla og fór því aftur í Keflavík þar sem mikill metnaður er. Ég trúi reyndar ekki að það sé metnaðarleysi hjá öðrum félögum. Ég held að það hljóti allir að vera í körfuboltanum til að gera sitt besta og ná árangri.” „Keflavík byggir á öflugu starfi yngri flokka. Þeir leikmenn sem eru í liðinu í dag er margir hverjir aldir upp hjá félaginu og hafa Þú varst valinn besti leikmaður íslandsmótsins af leikmönnum DHL-deildarinnar á lokahófi Körfuknatt- leikssambandsins. Ertu að leika þitt besta ár að þínu mati? Það er mikill rígur á milli fyrrum bæjarfélaganna og hvorugur aðilinn vill láta í minni pokann „Ég vil helst ekki gera upp á milli þriggja síðustu ára. Ég get ekki tekið eitt ár fram yfir annað en ég held þó að ég hafi verið stöðugri í vetur en oft áður.” Hefur þú verið að toppa þessi síðustu þrjú ár eða áttu meira inni? verið sigursælir í yngri flokkunum. Okkur hefur tekist að halda í þennan mannskap og það sem þessir strákar eiga allir sameiginlegt er mikill metnaður fyrir hönd þeirra sjálfra og félagsins. Þeir sætta sig ekki við neitt annað en sigur. Ég held að þetta sé lykilinn að góðum árangri Keflvíkinga í gegnum árin. Við erum enn að fá góða stráka upp úr yngri flokkunum „Ég get alltaf bætt mig á meðan ég er í körfunni. Ég er sannfærður um að á meðan menn leggja rækt við æfingarnar og fara með því hugarfari að bæta sig þá kemur sá einstaklingur til með að verða betri leikmaður. En á meðan leikmenn fara á æfingar bara til að fara og vera með þá ná þeir aldrei langt.” 7

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.