Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1999, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.02.1999, Blaðsíða 14
Björgúlfur, það vakti þó mikla athygli í fyrra þegar þið KR-ingar selduð bjór á heimavelli ykkar er þið lékuð gegn ÍBV í síðasta leik íslandsmótsins í fyrra? ,,Það segir samt ekkert hvað mér finnst um þetta. Ég tel að áfengi og íþróttir og íþróttamannvirki eigi ekki samleið.” En hvað skyldi hinum finnast um sölu bjórs á kappleikjum hér á landi? Þorgrímur: „Mérfinnst íþróttafélögin sem uppeldisstofnanir ekki vera nógu trúverðug í augum þeirra sem treysta þeim fyrir börnunum sínum, ef sá tvískilningur er við- hafður að annars vegar sé verið að ala upp ungt fólk sem á að vera heilsteypt innan vallar sem utan og svo hins vegar koma þau skilaboð að það sé allt í lagi að drekka áfengi á leikjum. Á meðan íþróttafélögin eru að sækja um styrki til ríkisins og sveitarfélaga í Ijósi þess að þau séu að ala upp heilbrigða unglinga þá geta þau ekki verið með önnur skilaboð hinum megin við borðið.” Skúli: ,,Mér finnst það í sjálfu sér ekkert óeðlilegt. Það þurfa reyndar að vera mjög stífar reglur varðandi þetta en ég er ekki á móti þessu.” Þorgerður: „Hjá Afengis- og vímu- varnaráði ríkir einhugur um að íþróttir og neysla áfengis- og annarra vímuefna eigi ekki saman. Niðurstöður rannsókna á áfengis og vímuefnaneyslu unglinga benda til þess að unglingar sem stunda íþróttir neyti síður áfengis og annarra vímuefna. íþróttahreyfingin ber því mikla ábyrgð og er mikilvægt að hún sýni gott fordæmi í vinnu með börn og unglinga. Á íþróttaviðburðum eru börn og unglingar yfirleitt stór hluti áhorfenda og það hvernig fullorðnir haga sér innan um þau hlýtur að hafa áhrif á hugmyndir þeirra almennt. Fullorðnir, sér- staklega uppal- endur, verða að gera sér grein fyrir að þeir eru fyrirmyndir barn- anna sem þeir hafa undir sínum verndarvæng. Ef reglan er að fullorðnir horfi helst ekki á kappleiki nema undir áhrifum áfengis þá gefur það börnunum hugmynd um að þannig eigi það að vera. Sala á bjór á íþróttaviðburðum hérá landi þjónar því ekki markmiðum heilbrigðis, félagsmótunar eða vímuvarna. Það er í raun erfitt að sjá að hún þjóni öðrum markmiðum en þeim að græða peninga.” Eggert: ,,Mér finnst það ekki fara saman. Það eru í raun mjög strangar reglur í fótboltanum, á alþóðavettvangi, um að Þessar reglur eru til komnar vegna þeirra vandamála sem upp hafa komið á knattspyrnuleikjum varðandi ofbeldi og annað fótbolti og áfengi fari ekki saman. Þessar reglur eru komnar vegna þeirra vandamála sem upp hafa komið samhliða knattspyrnu- leikjum varðandi ofbeldi og annað.” Eggert, ertu að segja að menn tengi ólæti á knattspyrnuleikjum við áfengi? ,,Já, það er afstaða manna í mörgum löndum. Sala á áfengi er t.d. bönnuð í Evrópukeppnunum og það kæmi ekki til greina hjá okkur í KSÍ í sambandi við landsleiki og Evrópukeppni að selja áfengi, enda er það bannað.” Þorgrímur, heldur þú að bjórsala á leikjum hafi einhver áhrif á börnin sem eru á leikjunum? ,,Það er ekki hægt að mæla þau skilaboð sem fara til barnanna með þessum hætti. Við vitum ekki hvort þetta hafi áhrif til lengri tíma litið en eigum ekki að taka neina áhættu. Ég hef engar vfsindalegarsannanir fyrir því að bjórsala á leikjum komi til að auka möguleika á því að börn sem eru á leikjum byrji frekar að drekka en mér finnst að félögin þurfi að vera trúverðug hvað þetta varðar.” Víða erlendis er seldur bjór á leikjum. Er ekki erfitt fyrir okkur að sporna við þessari þróun? Þorgrímur: ,,Of fáir íslendingar kunna að fara með áfengi. Út frá minni stöðu sem fyrrum íþróttamaður og maður sem vinnur við forvarnir þá hef ég einarða afstöðu í þessum málum og er á móti þessu. En kannski verða rýmri reglur varðandi þetta í framtíðinni en ég get ekki séð það gerast á næstunni.” Þorgerður: „Það tíðkast að selja bjór á íþróttaviðburðum víða erlendis en reynslan af því hefur verið æði misjöfn. Ölvun á íþróttakappleikjum leiðir stundum til uppþota, slagsmála og og líkamsmeiðinga bæði á áhorfendapöllunum og í kringum leikvanga. Hver hefur ekki heyrt talað um upphlaup, “holligana”. Er þetta ekki víti til að varast? Við þurfum ekki að taka upp ósiði annarra þjóða.“ Eggert, eru reglur varðandi bjórsölu á knattspyrnuleikjum hérna heima? ,,Það er ekkert inni í okkar reglugerð sem bannar þetta en ég held að það sé almennt virt á meðal félaga hérna heima að selja ekki bjór á leikjum. Eina dæmið sem ég þekki um þetta er í fyrra á leik KR og ÍBV.” Félögin hérna heima bjóða oft árskorthöfum og helstu styrktaraðilum bjór í lokuðum sal fyrir leik og í hálfleik á leikjum. Hvernig horfið þið á það? Eggert: 14

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.