Skinfaxi - 01.02.1999, Síða 4
Inga Fríða Tryggvadóttir
íslandsmeistarar
Það má segja að Ungmennafélagstelpurnar í Stjörnunni hafi verið á
toppnum í átta ár. Valdimar Kristófersson hitti fyrirliða liðsins að máli
Stjörnustúlkur hafa náð ótrú-
legum árangri á síðustu
árum og unnið til fjölda
verðlauna. í fyrra unnu þær
alla bikara sem í boði voru
og í ár urðu þær deildarmeistarar
og fyrir skömmu tryggðu þær sér
síðan íslandsmeistarartitilinn með
sigri á FH í þremur leikjum. Inga
Fríða Tryggvadóttir hefur verið
einn af máttarstólpum liðsins
undanfarin ár. Skinfaxa lék forvitni
á að vita hvað lægi á bak við
þennan góða árangur og hvort þetta
væri eitthvað gaman lengur?
„Veistu það að þetta er orðið alveg
hundleiðinlegt. En svona að öllu gamni
slepptu þá er alltaf jafn skemmtilegt að
landa titli. Þegar þú ert búinn að vinna einu
sinni og veist hvað það er gaman þá viltu
alltaf vera í sigurliði. Ég held að leikmenn
ofmettist aldrei á að vinna titla. Hjá mér er
sigurviljinn í það minnsta alltaf fyrir hendi
og það er nú bara svo að eftir að einni
keppni lýkur byrjar allt önnur keppni og
hana vill maður vinna.”
Fyrir ykkur var úrslitakeppnin dálítið
sérstök í ár. Herdís Sigubergsdóttir
fyrirliði ykkar meiddist á tímabilinu og
margir afskrifuðu ykkur um leið. En þið
sýnduð svo sannarlega hvað í ykkur
býr?
,,Já, þetta var að sjálfsögðu mikið áfall fyrir
liðið að missa Dísu út en við vorum
ákveðnar að þjappa okkur saman og sýna
hversu megnugar við erum. í kjölfarið
fengu fleiri stelpur tækifæri með liðinu og
Nína og Inga fengu aukið skotleyfi sem
þær nýttu sér vel. í raun má segja að liðið
hafi verið að gera betur í úrslitakeppninni í
ár en nokkru sinni áður því við töpuðum
ekki leik í úrslitakeppninni, unnum sjö leiki
af sjö. Ég tel þó fyrst og fremst að
liðsheildin hafi skipt þar mestu máli. Við
vorum ákveðnar að klára þetta í
sameiningu og sýna að við gætum unnið
þetta á liðsheildinni en ekki á einstak-
lingunum í liðinu.”
Fyrirkomulaginu á deildinni var breytt
fyrir átta árum og tekin upp úrslita-
keppni. Stjarnan hefur komist í úrslita-
leikina öll þessi ár. Hvað liggur að baki
þessum ótrúlega árangri?
Ég hef ekki heyrt að
neinn ætli að hætta
eða fara
,,Það er nú fyrst og fremst að Stjarnan
hefur ávallt haft góða leikmenn á sínum
snærum, leikmenn sem hafa mikinn
metnað og sætta sig ekki við neitt annað en
sigur. Liðsheildin er alltaf góð og þá er
Við sættum okkur
ekki við neitt annað
en sigur
umgjörðin í kringum liðið frábær. Það er
fullt af góðum konum í kringum okkur sem
eru tilbúnar að gera allt fyrir okkur og þær
hafa ekki síðri metnað en við. Þessi atriði
hafa fleytt Stjörnunni þetta langt í gegnum
árin.’
Þlð hafið verið í baráttu við Hauka
undanfarin ár en lékuð nú á móti ungu
og frísku liði FH í úrslitaleikjunum. Er
deildin að styrkjast?
,,Já, það er engin spurning. í ár réðst
það t.d. í síðustu umferð hverjir
myndu leika saman í úrslitakeppninni.
En undanfarin ár hefur verið hægt að
raða í flest sæti fyrirfram. FH-ingar
enduðu í sjötta sæti en fóru síðan alla
leið í úrslitaleikina. Þetta sýnir okkur
að breiddin er að aukast í
kvennaboltanum og fleiri lið eru farin að
gera tilkall til titilsins. Þótt við færum í
gegnum úrslitakeppnina 7-0 þá var það
ekki eins auðvelt og það sýnist því við
áttum í erfiðleikum strax í átta liða úrslitum,
en við höfum yfirleitt farið létt í gegnum þau
undafarin ár.”
Þær sögur hafa heyrst að eldri konurnar
í liðinu ætli að leggja skóna á hilluna,
Dísa og Ragnheiður Stephensen ætli
jafnvel út í atvinnumennskuna ef þeim
gefst kostur á og sumar af yngri
leikmönnum liðsins ætli jafnvel að
skipta um félag. Er þetta rétt?
„Veistu ég veit ekki alveg hvað ég á að
segja. Mótið er nýbúið og ég hef ekki heyrt
að neinn ætli að fara eða hætta enda eru
við enn að fagna titlinum og lítið farnar að
spá í framhaldið. Ég veit að Stjarnan vill
halda leikmönnum liðsins og hjá þeim er
mikill hugur fyrir næsta ár. En þetta er
hlutur sem ræðst á næstu dögum og
vikum.”
Fer Stjarnan í úrslitaleikinn á næsta ári?
,,Já, við ætlum okkur það eins og
undanfarin ár. Stefnan er alltaf sett á efsta
sæti og að vinna sem flesta titla. Þess
vegna er maður í þessu.”
Þótt við færum í gegnum
úrsiitakeppnina
7-0 þá var það ekki auðvelt
4