Skinfaxi - 01.02.1999, Side 13
Þeir eru fáir sem telja að íþróttir og áfengi
eigi samleið en þrátt fyrir það kemur áfengi
víða fyrir þegar íþróttir eru annarsvegar.
Bjór er seldur á
mörgum stórum
íþróttaviðburðum,
erlend félög bera
auglýsingar áfeng-
isframleiðenda á
keppnistreyjum
sínum og á erlendum leikvöngum,
í íþróttatímaritum og í beinum
sjónvarpsútsendingum frá
íþróttaviðburðum má sjá áfengis-
auglýsingar. Hvað skyldi íslensk-
um forystumönnum íþrótta-
félaganna og þeirra sem koma að
forvörnum finnast um þessi mál?
Skinfaxi fékk fimm mæta aðila úr
þjóðfélaginu sem tengjast mál-
efninu, þá Björgúlf Guðmunds-
son, formann KR-sport, Eggert
Magnússon, formann Knatt-
spyrnusambands íslands, Þor-
gerði Ragnarsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Áfengis- og vimu-
varnaráðs, Skúla Skúlason,
fyrrverandi formann Keflavíkur og
Þorgrím Þráinsson, fyrrverandi
knattspyrnumann og fram-
kvæmdastjóra Tóbaksvarnar tif að
ræða þessi mál
Sú óskrifaða regla hefur gilt hér á
landi að íþróttafélög selji ekki bjór
á heimavöllum sínum. En hvernig
skyldi það leggjast í menn að fara
að selja bjór á kappleikjum hér á
landi?
Björgúlfur: „Mér finnst það ekki
viðeigandi. Þetta tvennt fer ekki
saman og ef menn vilja njóta þess
að fá sér bjór að þá á það ekki að
gerast á leikvellinum. Þess vegna
höfum við m.a. fest kaup á veit-
ingastað til þess að fólk sem hefur
áhuga að fá sér bjór geti það áður en
það fer á völlinn. Því bjórsala á alls
ekki við í íþróttamannvirkjum.”
13