Skinfaxi - 01.02.1999, Blaðsíða 16
vinnutaps. Það er gerð krafa til
íþróttafélaganna um að þau útvegi eins
mikið fjármagn og þau geta eftir
venjulegum leiðum en þau verða að fara
allar leiðir. Nákvæmlega eins og SÁÁ,
Sjálfsbjörg o.fl. sem eru með spilakassa.
UMFÍ fær t.d. pening úr ríkissjóði sem aflar
tekna t.d. með áfengissölu. Þannig að
UMFÍ er óbeinn þátttakandi i þessu líka.
Það sem ég er að reyna að segja er það að
án þess að maður viti af því er maður
óbeinn þátttakandi að því að þiggja
fjármagn úr þessum farvegi.”
Björgúlfur, þú ert sem sagt á því að leyfa
auglýsingaskilti með bjór- eða áfengis-
auglýsingum á leikvöllum?
,,Ég sagði það ekki en ég vil að þetta sé
samræmt. Annað hvort verður þetta
bannað eða leyft. Mér finnst ekki rétt að
það sé hægt að banna þetta hér á landi en
sjá síðan allt morandi í bjór- og
áfengisauglýsingum hjá erlendum félögum
og í erlendum íþróttatímaritum. Við erum
ekki eitthvað eyland sem er eitt út af fyrir
sig. Það er aldrei gott að vera með
einhverjar sérreglur. Það er í lagi að banna
þetta algjörlega en þá þurfa alþjóðlegar
stofnanir sem við erum hluti af að sjá til
þess að reglunum sé fylgt eftir.”
Síðasta haust var vart hægt að þverfóta
fyrir bjórauglýsingum í íslensku
sjónvarpi þegar vafi lék á því hvort
mætti auglýsa bjór á íslensku
sjónvarpsstöðvunum. Það sem vakti
einna mesta athygli var að
bjórauglýsingarnar voru í flestum
tilvikum settar inn þegar beinar
sjónvarpsútsendingar voru frá knatt-
spyrnuleikjum. Eggert, er tíðarandinn
þannig í dag að mönnum þykir sjálfsagt
og gott að fá sér bjór á meðan horft er á
knattspyrnuleik í sjónvarpi?
,,Það er náttúrlega ekkert leyndarmál út í
hinum stóra heimi að bjórframleiðendur
auglýsa mikið á íþróttaviðburðum alls
konar t.d. er Budweiser (bjórtegund)
svakalega áberandi á íþróttaviðburðum í
Bandaríkjunum og er það komið til vegna
þess að íþróttir eru mjög vinsælar og
sjónvarpsáhorfið geysilega mikið. Þar sitja
sjónvarpsáhorfendur oft með bjór í hönd
meðan þeir fylgjast með útsendingunni og
markhópurinn er því til staðar fyrir
Budweiser. Ég held að það hafi ríkt sama
hugsunin hérna heima þegar
bjórauglýsingarnar voru í sjónvarpinu.”
meðan þetta gráa svæði var. Við erum
með það mjög skýrt í okkar samningi, við
þá erlendu aðila sem keyptu af okkur
sjónvarpsréttinn og auglýsingar, að ekki
megi auglýsa bjór, áfengi og tóbak því það
gangi á snið við íslensk lög. En ég skil
Ég ætla ekki að fella
einhvern dóm um
þær leiðir sem KR-
ingar velja sér eða
gerast einhver
siðapostuli yfir
KR-ingum
reyndar að félög sem eru að berjast við að
fjármagna meðal annars æskulýðs- og
unglingastarf og fá lítinn sem engan
skilning frá hinu opinbera, leiti allra leið til
að fá fjármagn inn í félagið. Félögin eru í
uppbyggjandi og fyrirbyggjandi starfi við að
rækta æsku landsins. Það þýðir þá lítið
fyrir stjórnvöld að setja upp tvöföld
gleraugu.”
Eggert, orkar það ekki dálítið tvímælis ef
íþróttafélögin eru að vinna ákveðið
forvarnastarf en í leiðinni eru þau að
fjármagna starfið með m.a. áfengis-
auglýsingum?
„Það er auðvitað ekki æskilegt og menn
gera það ekkert að gamni sínu en við
verðum að leita þessara leiða því við fáum
ekki stuðning frá því opinbera.”
Hvort eru þið fylgjandi eða andvígir því
að leyft verði að selja áfengisauglýs-
ingar á leikvöllum?
Björgúlfur: ,,Ég vil ekki leyfa áfengis-
notkun á völlum en auglýsingar eru þáttur í
hinu daglega lífi og ég tel að það megi
auglýsa þetta eins og annað. Það er
enginn hægðarleikur að fjármagna slíka
deild enda eru kröfurnar frá áhorfendum
um betri fótbolta alltaf að verða meiri.
Þetta kostar meiri peninga og spurningin er
hvar við eigum að fá þá. Ekki getum við
farið i ríkissjóð og ekki í borgarsjóð. Hvað
eigum við að gera? Við verðum að nýta
okkur öll þau tækifæri sem bjóðast til að
fjármagna deildina.”
Þorgrímur: “Ég er andvígur því. Þeir sem
reka þessi fyrirtæki eru engir hálfvitar og
vita að með auglýsingum eru þeir að koma
einhverju í undirmeðvitundina hjá fólki.
Þeir myndu ekki auglýsa nema þeir vissu
að auglýsingin hefði áhrif.”
Enska liðið Liverpool, sem á marga
aðdáendur hér á landi, er með Carlsberg
auglýsingu (bjórtegund) framan á
keppinstreyjum sínum. Hvernig lítið þið
á það?
Eggert: ,,Ég sé í raun ekkert athugavert
við það í þjóðfélagi sem lítur allt öðrum
augum á svona hluti heldur en íslenska
þjóðin. Þetta verður náttúrulega að mótast
eftir því þjóðfélagi sem menn lifa í og bjór
er snar þáttur í ensku þjóðfélagi. En þessi
lið eru atvinnumannalið og þau þurfa að
fjármagna þann kostnað sem þau verða
fyrir á margs konar hátt og þetta er einn
þátturinn í því.”
Þorgerður: ,,Það er sjálfsagt leyfilegt
samkvæmt enskum lögum að auglýsa á
þennan hátt, annars myndi það
væntanlega ekki vera gert. í mörgum
löndum má auglýsa vörumerki fyrirtækja
sem framleiða áfengi án þess að vörunni
sé lýst frekar. Benda má á að Carlsberg
framleiðir fleira en bjór, m.a. gos og
sódavatn. Hins vegar er það (andstöðu við
Eggert, er ekki erfitt að sporna gegn
þessari þróun? Eru þessar auglýsingar
ekki eitthvað sem koma skal?
,,Það er mjög nauðsynlegt að menn viti að
hverju þeir eiga að ganga varðandi
landslög. Á meðan þetta gráa svæði var í
fyrra þá var afstaða okkar hjá KSÍ alveg
skýr. Við hefðum ekki tekið þátt í þessu á
16