Skinfaxi - 01.02.1999, Qupperneq 17
til vinstri, ásamt KolfinniP
Jóliafinsdóttur, varaformanni
Afensns- og vímneínaráðs
landslög, reglur íþróttasambands íslands
um auglýsingar og samþykktir um stefnu í
vímuefnavörnum bæði innanlands og utan
að auglýsa áfenga drykki svona. En ég er
hrædd um að það heyrðist hljóð úr horni ef
bannað yrði að sýna frá erlendum íþrótta-
viðburðum vegna auglýsinganna þar.
Auðvitað er slæmt að við skulum fá frá
útlöndum sjónvarpsefni sem brýtur í bága
við það sem gildir hjá okkur. Ég er samt
sannfærð um að það hefði meiri áhrif á
íslensk börn og unglinga ef hetjur íslensku
liðanna bæru áfengisauglýsingar á treyjum
sínum heldur en að sjá erlendu liðin með
þær.”
Þorgrímur: ,,Ég hef oft sagt í gríni en
meina þó innst inni, að Liverpool hefur
nánast ekkert getað eftir að þeir settu
þessa auglýsingu framan á búninginn.”
Haldið þið að bjórauglýsingarnar sem
við sjáum í beinum sjónvarps-
útsendingum erlendis frá og t.d.
Carlsberg-auglýsingin á búningi Liver-
pool hafi einhver áhrif?
Eggert: ,,Ég myndi nú ekki hafa svo miklar
áhyggjur af auglýsingunni á búningi
Liverpool. En auðvitað hefur allur áróður
og auglýsingar einhver áhrif. Það er hins
vegar mjög erfitt að vera með tvöfalt
siðgæði í þessu þ.e.a.s. að leyfa þessum
auglýsingum að flæða yfir landið í gegnum
erlent sjónvarpsefni en ætla síðan að
banna það á annan hátt hérna heima.”
Skúli: ,,Ég held að þetta hafi ekki mikil
áhrif á venjulegt fólk en við höfum alltaf
áhyggjur af þeim einstaklingum sem eru í
áhættuhópi og eru veikir fyrir þessari fíkn.
Það getur verið að þessar auglýsingar hafi
meiri áhrif á þá en aðra.”
Björgúlfur, þið voruð að kaupa þrjá
vínveitingastaði fyrir skömmu. Hvert er
markmiðið með þessum kaupum?
„Markmiðið er fyrst og fremst að gera þetta
að fjölskyldustöðum, m.a. ætlum við
að opna matsölustað. Einnig er í
þessum kaupum krá sem hefur alltaf
verið tengd KR og þar hafa
stuðningsmenn komið saman fyrir og
eftir leiki og svo verður vonandi
áfram.”
KR-sports lýstu því yfir að þeir vildu reka
fjölskylduvæna staði og ég treysti því að
þeir hafi stefnuyfirlýsingu íþróttaþings 1997
um forvarnir og fíkniefni í huga við
endurskipulagningu staðanna.
KR-sport var að kaupa þrjá
vínveitingastaði og eitt af mark-
miðum þess er að afla fjármagns til
að geta rekið m.a. meistara- og
annan flokk félagsins. Þetta er gert
m.a. með sölu áfengis. Hvað finnst
ykkur um þetta?
Þorgrímur: „Mér finnst ekkert ____________
óeðlilegt að þeir sem reka knatt-
spyrnufélög reyni að afla tekna með
ýmsum hætti svo fremi að það skaði ekki
ímynd félagsins, iðkendur eða áhangendur.
En ég er reyndar á móti því að stuðnings-
menn félaga sem komast í bikarúrslitaleiki
séu að hittast á vínveitingastöðum, oft með
börnum sínum, þar sem verið er að drekka
áfengi og hver reykir í kapp við annan. Mér
finnst þetta ekki fara saman og vera til
skammar. Fólk á að virða lögmál
íþróttanna og blanda ekki áfengisneyslu
inn í.”
Skúli: „Ég held að það
eigi eftir að færast í
vöxt að íþróttafélögin
sjái sig knúin til að fara
út í atvinnustarfsemi til
að standa straum af
kostnaðinum.
Kröfurnar eru orðnar
það miklar um árangur
og það kostar mikið að
halda úti heilu félagi.
Mér finnst því ekkert
óeðlilegt að félögin fari
út í atvinnustarfsemi.
Ég ætla ekki að fella
einhvern dóm um þær
leiðir sem KR-ingar
velja sér eða gerast
einhver siðapostuli yfir
KR-ingum. Mér finnst
alls ekki óeðlilegt að
þeir færi sig út í
atvinnustarfsemi og
það eiga fleiri lið eftir
að gera í framtíðinni.”
Þorgerður: „Ég fagna
því ef íþróttafélögin finna sér nýjar leiðir til
fjármögnunar en finnst kráarrekstur illa
samrýnast íþróttaandanum. Veitingastaðir
þurfa ekki endilega að selja áfengi til að
bera sig og gefa ágóða, t.d. virðist rekstur
ýmissa kaffihúsa, skyndibita-, hamborgara-
og pizzustaða ganga vel. Aðstandendur
Eins og við höfum farið yfir virðast
íþróttir og áfengi oft tengjast á einhvern
hátt. Annað dæmi um þetta er að þegar
félagslið vinna titla þá fagna þau
árangrinum oft með kampavíni og öðru
því fylgjandi. Hvað viljið þið segja um
þetta?
Björgúlfur: „Mér finnst þetta óskaplega
leiðinlegt og algjör óþarfi. Reyndar finnst
mér það líka leiðinlegt þegar leikmenn eru
að hella mjólk hver yfir annan eftir sigur í
bikarúrslitaleik. Þetta er einhver eftirherma
af Formúlu 1 keppninni og það mætti alveg
leggja þetta af. Mér finnst leiðinlegt og í
raun ósmekklegt að leikmenn séu að hella
yfir sig víni í íþróttabúningum.”
Eggert: „Við knattspyrnumenn fögnum
orðið meira með mjólk eða Coke. Ég held
að menn noti orðið minna af kampavíni nú
en áður. Það er kominn ákveðinn
skilningur á þessu. Mér finnst að menn séu
farnir að gera sér betur grein fyrir því að
þetta eigi ekki samleið.”
Skúli: „Menn hafa verið að reyna að hafa
þetta í lágmarki og íþróttaforystan í landinu
er mjög andsnúin þessu. í fjölmiðlum lítur
þetta út sem kampavín þótt þetta geti
stundum verið óáfengt. Flestir nota þetta
eingöngu til spreyja þessu og fá froðuna
yfir mannskapinn en yfirleitt er ekki
drukkinn deigur dropi af flöskunni.”
Þorgrímur: „Þegar leikmenn eru að taka
tappa úr kampavínsflöskum eftir sigurleiki
þá eru þeir ekki með drykkju í huga heldur
er þetta ákveðin stemmningu í tilefni sigurs.
Þannig lít ég á þetta og ég á von á að flestir
aðrir geri það einnig. Ég var náttúrulega
miklu hrifnari af því þegar verið var að hella
mjólk í bikar eftir sigur í mjólkurbikar.”
17