Skinfaxi - 01.02.1999, Page 23
Umhverfisverðlaun
UMFÍ og Umhverfissjóðs Verzlunarinnar
Austur-Hérað hlaut þriðju Umhverfisverðlaun UMFÍ og Umhverfissjóðs
Verzlunarinnar. Jóhann Ingi Árnason var á staðnum og fylgdist með
afhendingunni á einum kaldasta degi ársins.
Þriðju umhverfisverð-
laun Ungmenna-
félags íslands og
Umhverfissjóðs
Verzlunarinnar voru
veitt Austur-Héraði.
Það var umhverfis-
ráðherra, Guðmundur Bjarnason,
sem afhenti verðlaunin þann 22.
janúar í einu að sínum síðustu
verkefnum sem ráðherra. Margmenni
var við afhendinguna þrátt fyrir kaldan
dag en bæjarstjórn Austur-Héraðs
bauð gestum upp á heitt kaffi, kökur
og skemmtiatriði að afhendingunni
lokinni. Austur-Hérað hlaut verð-
launin fyrir umhverfisátak og snyrti-
lega umgengni bæjarfélagsins í heild.
Áður höfðu Sorpa og Hótel Geysir
hlotið þessa eftirsóttu viðurkenningu.
Sæmundur Runólfsson,
framkvæmdastjóri UMFI, við
afhendingu verðiaunanna.
23