Skinfaxi - 01.02.1999, Page 32
fara ekki saman
Allir þekkja slagorðið;
íþróttir og áfengi fara ekki
saman. Ekki þarf að efast
um réttmæti þessara orða
því það er margsannað
að áfengisdrykkja hefur áhrif á getu
íþróttamanna ekki síst ungs
íþróttafólks. Þá þarf ekki að minnast á
alla þá aðra neikvæðu þætti sem
notkun áfengis hefur í för með sér
sérstaklega ef þess er neytt í óhófi.
Margoft hefur verið sýnt fram á að
starf íþrótta og ungmennafélaga
gegnir veigamiklu hlutverki í
forvörnum gegn áfengis- og
tóbaksnotkun unglinga.
í þjóðfélaginu er áfengi staðreynd. Það
er löglegt vímuefni og hluti af
lífsmynstri fólks. Víða erlendis þykir
ekki tiltökumál að tengja saman
íþróttaviðburði og áfengi. Við sjáum
íþróttamenn fagna sigrum með
kampavíni. Áfengisauglýsingar eru á
leikvöngum og búningum íþrótta-
manna. Þetta berst hingað til lands
með fjölmiðlunum inn á hvert heimili.
Því spyrja menn eðlilega hvort ekki eigi
að gera þetta einnig hér á landi og það
hafa sést þess dæmi að sumir eru að
fikra sig inn á þessa braut. Það kann
að vera freistandi fyrir íþrótta- og
ungmennafélög með kostnaðarsaman
Sigurbjörn Gunnarsson er
stjórnarmaöur hjá UMFÍ
rekstur að afla aukinna tekna með
þessum hætti.
Þarna er rétt að staldra við.
Áfengisvandamál eru töluverð á íslandi
og meiri en víða annarsstaðar. Það
hlýtur að vera skylda íþrótta- og
ungmennafélaga að vinna gegn
drykkju barna og unglinga. Mikilvægur
þáttur í því er að blanda ekki saman
íþróttaviðburðum og áfengi hvorki með
sölu áfengis á íþróttaleikjum né
auglýsingum í íþróttamannvirkjum
þannig að börn og unglingar sem taka
þátt í íþrótta- og æskulýðsstarfi skynji
að slagorðið er ekki bara orðin tóm. Þá
skiptir engu máli hvað gert er erlendis,
við ráðum ekki yfir því en getum
haft stjórn á því sem gert er hér
á landi. íþrótta- og ung-
mennafélög njóta margskonar
stuðnings og styrkja frá ríki og
sveitarfélögum. Þessi stuð-
ningur yrði ekki jafn sjálfsagður
ef beinar og óbeinar tekjur af
áfengissölu yrðu hluti rekstrartekna
íþrótta- og ungmennafélaga. Niður-
staðan hlýtur því að verða sú, eins og
segir úi í gamla slagorðinu, að íþróttir
og áfengi fara ekki saman.
Sigurbjörn Gunnarsson
32