Skinfaxi - 01.05.2000, Side 5
SNIFFEFNI
Sljóleiki, yfirlið og varanlegur
heilaskaSnifefni eru lyktarsterk
efni, s.s. lím, gas og lökk sem
hafa bein áhrif á taugakerfi og
hjarta. Einstaklingur undir
áhrifum verður mjög sljór og
ruglaður í ríminu. Hjartsláttur
eykst og oft fellur neytandinn í
yfirlið fyrst eftir inntöku. Mikil
hætta er á lostaástandi
hjartastoppi. Mörg dæmi eru
um að sniffefni hafi valdið
varanlegum heilaskaða.
V
Samtaka
nú!
vr ■
SVEPPIR
Ofskynjunarsveppir valda skyntruflunum og tilfinningaröskun sem geta leitt til brengl-
unar á persónuleika og varanlegum heilaskaða. Oft innihalda þessir sveppir önnur eitur-
efni, eins og blý, sem hefur áhrif á minni og aðra heilastarfsemi.
Áætlunin ísland án eiturlyfja er samstarfsverkefni ríkisstjómarinnar, Reykjavíkurborgar,
Sambands íslenskra sveitarfélaga og evrópsku samtakanna European Cities Against Dmgs
(ECAD). Markmið áætlunarinnar er að leita leiða til að sameina krafta þjóðarinnar í baráttunni
gegn ólöglegum fíkniefnum, efla forvarnir, hefta innflutning og skipuleggja verkefni og
aðgerðir sem hafa þetta að leiðarljósi. ísland hefur alla burði til að ná miklum árangri í
baráttunni gegn eiturlyfjum. Við emm fámenn og vel menntuð þjóð, þar sem almenn
velmegun ríkir, þekking á neytendum eiturlyfja er til staðar og umtalsverð kunnátta í
forvarnar- og meðferðarmálum. Andstaðan við eiturlyf er almenn meðal landsmanna og
aðkomuleiðir eiturlyfja til landsins em takmarkaðar sökum legu landsins. Baráttan gegn
útbreiðslu eiturlyfja er barátta við skipulagða glæpastarfsemi þar sem peningar ráða ferðinni
og börn og unglingar eru fórnarlömb. Flestir sem ánetjast eiturlyfjum hefja snemma
áfengisneyslu og leiðast út í eiturlyfjaneyslu fyrir tvítugsaldur. Lykilatriðið er að allir láti sig
málið varða.
Island án eiturlyfja
Ráðhús Reykjavíkur • 101 Reykjavík • Símar 563 2000, 563 2092 og 585 1473 •
Fax 562 2415 • netfang iae@rvk.is
...þeir sem neyta ofskynjunarlyfja fá oft þær
ranghugmyndir að skyntruflanir þeirra séu
yfirskilvitsleg upplifun á veruleikanum...