Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.05.2000, Qupperneq 5

Skinfaxi - 01.05.2000, Qupperneq 5
SNIFFEFNI Sljóleiki, yfirlið og varanlegur heilaskaSnifefni eru lyktarsterk efni, s.s. lím, gas og lökk sem hafa bein áhrif á taugakerfi og hjarta. Einstaklingur undir áhrifum verður mjög sljór og ruglaður í ríminu. Hjartsláttur eykst og oft fellur neytandinn í yfirlið fyrst eftir inntöku. Mikil hætta er á lostaástandi hjartastoppi. Mörg dæmi eru um að sniffefni hafi valdið varanlegum heilaskaða. V Samtaka nú! vr ■ SVEPPIR Ofskynjunarsveppir valda skyntruflunum og tilfinningaröskun sem geta leitt til brengl- unar á persónuleika og varanlegum heilaskaða. Oft innihalda þessir sveppir önnur eitur- efni, eins og blý, sem hefur áhrif á minni og aðra heilastarfsemi. Áætlunin ísland án eiturlyfja er samstarfsverkefni ríkisstjómarinnar, Reykjavíkurborgar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og evrópsku samtakanna European Cities Against Dmgs (ECAD). Markmið áætlunarinnar er að leita leiða til að sameina krafta þjóðarinnar í baráttunni gegn ólöglegum fíkniefnum, efla forvarnir, hefta innflutning og skipuleggja verkefni og aðgerðir sem hafa þetta að leiðarljósi. ísland hefur alla burði til að ná miklum árangri í baráttunni gegn eiturlyfjum. Við emm fámenn og vel menntuð þjóð, þar sem almenn velmegun ríkir, þekking á neytendum eiturlyfja er til staðar og umtalsverð kunnátta í forvarnar- og meðferðarmálum. Andstaðan við eiturlyf er almenn meðal landsmanna og aðkomuleiðir eiturlyfja til landsins em takmarkaðar sökum legu landsins. Baráttan gegn útbreiðslu eiturlyfja er barátta við skipulagða glæpastarfsemi þar sem peningar ráða ferðinni og börn og unglingar eru fórnarlömb. Flestir sem ánetjast eiturlyfjum hefja snemma áfengisneyslu og leiðast út í eiturlyfjaneyslu fyrir tvítugsaldur. Lykilatriðið er að allir láti sig málið varða. Island án eiturlyfja Ráðhús Reykjavíkur • 101 Reykjavík • Símar 563 2000, 563 2092 og 585 1473 • Fax 562 2415 • netfang iae@rvk.is ...þeir sem neyta ofskynjunarlyfja fá oft þær ranghugmyndir að skyntruflanir þeirra séu yfirskilvitsleg upplifun á veruleikanum...

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.