Skinfaxi - 01.12.2004, Blaðsíða 3
Ég get stundum verið svolítið stríðinn.
Jólin hafa óvallt verið mér gullkista
tækifæra til að seðja þessa kennd
mína og veita henni útrás. Þegar
börnin mín voru ung sagði ég þeim
að jólagjafir þeirra minnkuðu ef þau
væru óþæg. Stundum gat ég ekki
setið á mér með að afhenda
einhverju þeirra pínulítinn pakka á
aðfangadagskvöld. Svo var hlegið
af vonbrigðasvipnum sem kom á
andlit viðkomandi og barninu afhent
alvörujólagjöfin. Einhver myndi
segja núna að undirritaður væri
skepna. Ég hef ávallt talið þetta
vera minn rétt enda fátt sem gleður
mig jafn mikið og velheppnuð eigin
stríðni. Ég hef að vísu litla þolin-
mæði fyrir stríðni annarra enda
nánast fullkominn að eigin áliti.
Þessi skemmtun mín hefur að vísu
þróast þannig að núna gefur
fjölskyldan öll hvort öðru svokallaðar
hrekkjalómagjafir og er nú svo
komið að mestur spenningurinn á
hverju aðfangadagskvöldi er fyrir
þeim gjöfum. Allir leggja hausinn í
bleyti við að búa til mestu hrekkja-
lómagjöfina og er engum hlíft.
Sumir (undirritaður) eru hálft árið að
útbúa sumar gjafirnar. Það er mikið
hlegið á aðfangadagskvöld á mínu
heimili. Það mæta líka allir til að fá
sína hrekkjalómagjöf. Mér finnst
margar þessarra gjafa lifa lengur í
minningunni en "alvöru" gjafirnar.
Ástarsorg eða vöntun á kærustum er
vinsælasta viðfangsefni hrekkjalóm-
anna. Svo eru útlitsgallar (miðað við
Barbie) eða skortur á einhverjum
eðlilegum hæfileikum (miðað við
Superman og Wonder woman)
endalaus uppspretta skemmtilegra
hrekkjalómagjafa. Stjórnmálaskoð-
anir eru svo alltaf vatn á myllu þeirra
sem vantar góðar hugmyndir.
Að sjálfsögðu er ég búinn að setja
reglur um hrekkjalómagjafirnar. Þær
verða að vera ódýrar, helst
heimatilbúnar og umfram allt
hlægilegar. Ekki má geta gefandans
með öðru nafni en Hrekkjalómur.
Þeim sem mistekst er refsað
grimmilega á næstu jólum.
Ég tók uppá því að senda litlu
börnunum í fjölskyldunni jólakort í
fyrra. Að sjálfsögðu bullaði ég
heilmikið um jólin í kortunum.
Jólasveinninn er mér afskaplega
kært umræðuefni við yngri börnin og
skemmti ég mér konunglega með að
stríða þeim litlu með afbökuðum
sögum af þeim köppum og
uppátækjum þeirra. Mér er til dæmis
óskiljanlegt afhverju mamma og
pabbi koma ekki fyrir í jólalaginu "Nú
skal segja" og er að sjálfsögðu búinn
að bæta þeim kafla við. Þá hef ég
aldrei skilið afhverju vitringarnir fóru
ekki á jeppum yfir eyðimörkina á
sínum tíma.
Ég hrekki stundum móður mína
með því að gera grín af háum aldri
hennar og bingógleði. Ég er alveg
---------------- SKINFAXI
viss um að ég er uppáhaldið hennar
þó svo hún eigi 7 önnur börn. Hún
skammar mig að vísu vegna skorts á
mörgum heimsóknum og að ég
hringi ekki nægilega oft.
Stundum finnst mér ég vera
hálfruglaður einstaklingur sem helst
ætti að vera í daglegri meðferð hjá
umhyggjusömum tilfinninga lærðum
sérfræðingum. Ég nýt að vísu
þessarar umhyggju í ríkum mæli hjá
heittelskaðri eiginkonu minni. Ég
held að batahorfur mínar séu
afkskaplega litlar en hvern langar
svo sem í bata á meðan hjúkrunar-
konan er bæði undursamlega falleg
og veitir manni umhyggjuríka og
óaðfinnanlega þjónustu.
Það er auðvelt að gleyma barninu
í hjarta sínu en það er líka auðvelt að
rifja það upp. Jól og áramót eru
tilvalin tækifæri til að hleypa barninu
út og njóta þess í algleymingi.
Hjartað mitt er glatt, jólin eru að
koma.
Gleðileg jól,
Birgir Gunnlaugsson
Ritstjóri: Páll Guðmundsson.
Greinaskrif: Páll Guðmundsson.
Ljósmyndir: Sigurjón Ragnar, Páll
Guðmundsson.
Umbrot og hönnun: Guðmundur Karl
Sigurdórsson, Helgi Valberg Jensson.
Ábyrgðarmaður:
Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ.
Auglýsingar:
Þjónustumiðstöð UMFÍ - Markaðsmenn.
Prófarkalestur: Páll Guðmundsson,
Guðmundur Karl Sigurdórsson.
Prentun: Prentmet.
Pökkun: Ás vinnustofa.
Ritstjórn:
Anna R Möller.
Sigurlaug Ragnarsdóttir.
Birgir Gunnlaugsson.
Ester Jónsdóttir.
Þjónustumiðstöð UMFÍ
Skrifstofa Skinfaxa
Fellsmúla 26 - 108 Reykjavík
Sími 568-2929
Netfang: palli@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Framkvæmdastjóri UMFI:
Sæmundur Runólfsson.
Jólastríðni
3
SKINFAXI - tímarit um íþróttir