Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2004, Blaðsíða 26

Skinfaxi - 01.12.2004, Blaðsíða 26
SIGURÐUR GEIRDAL - MINNING Morgunhlaðið/Sverrir Morgunblaðið/Jim Smart Sigurður Geirdal Góður vinur og einn öflugasti félagi sem ungmennafélagshreyfingin hefur eignast í tæplega hundrað óra sögu UMFI er allur. Fregnin um alvarlegt hjartaáfall Sigurðar Geirdal og síðar andlát hans kom óvænt. Aðeins nokkrir dagar eru síðan hann kom í þjónustumiðstöð UMFÍ og fór yfir stöðu ungmennafélagsmála og lét hugann reika inn í framtíðina. Engan óraði fyrir því að örfáum dögum síðar yrði hann allur og að eftir sæti stór hópur vina og vandamanna sem spyr hvernig gat þetta gerst. Maður sem er stöðugt á ferðinni, leysir mál og leggur á ráðin fyrir aðra, er hrókur alls fagnaðar og gefur allt í starf sitt til að ná árangri og nær honum. Hann á ekki að geta farið svo fljótt. Sigurður Geirdal var fram- kvæmdastjóri UMFÍ frá 1970 til 1986. Við hlið Hafsteins Þorvalds- sonar þáverandi formanns UMFÍ hófu þeir félagarnir endurreisnarstarf af miklum eldmóði. Fóru þeir vítt og breitt um landið og fengu menn í lið með sér. Þúsundir félaga streymdu inn í hreyfinguna og starfið var eflt. Miklir uppgangstímar voru á þessum árum sem við búum enn að. Þegar farið er yfir störf Sigurðar innan ungmennafélagshreyfingar- innar er af mörgu að taka. Við hlið Hafsteins formanns var unnið að stofnun Félagsmálaskóla UMFÍ og Skinfaxi, málgagn hreyfingarinnar, var stækkaður að umfangi. Allt starf ungmennafélaga og héraðssam- banda var eflt. Þrastaskógur var gerður aðgengilegur öllum m.a. með uppbyggingu leikvallar inni í skóginum og byggingu Þrastalundar. Á 70 ára afmæli UMFÍ var gefin út saga hreyfingarinnar í bókaformi. Samtökin fengu sitt eigið húsnæði í fyrsta sinn og um leið voru tengsl við önnur samtök efld bæði innan lands og utan. Listinn er langur og verkefnin voru stór. Að leiðarlokum vill ungmenna- félagshreyfingin þakka Sigurði Geirdal störf hans í þágu ungs fólks á íslandi. Það er Ijóst að ekki er einungis genginn góðurvinur, heldur er fallinn frá hugsjónamaður af bestu gerð sem margir eiga eftir að sakna sárt því skarðið er stórt. Ég vil fyrir hönd starfsfólks og stjórnar UMFÍ, senda Ólafíu og öllum aðstandendum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Björn Bjarndal Jónsson formaður UMFÍ. UMFÍ - Allir með 26

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.