Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2004, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.12.2004, Blaðsíða 14
SNÆFELLSBÆR Iþróttabærinn Snæfellsbær Snæfellsbær er um 1800 manna bæjarfélag á utanverðu Snæfellsnesi samsett af þéttbýliskjörnunum Ólafs- vík, Rifi, Hellissandi, Arnarstapa og Hellnum auk sveitanna í Fróðér- hreppi, Breiðuvík og Staðarsveit. Sprenging í fimleikum og frjálsum Ungmennafélögin Víkingur og Reynir í samstarfi við Ungmennafélag Staðarsveitar hafa síðan í haust fjölgað aldursflokkum og æfinga- tímum fyrir frjálsar íþróttir og fim- leika í Snæfellsbæ. Nýr þjálfari, Ólafur Jökull Herbertsson var ráðinn til starfa og nú stunda að jafnaði 50 krakkar fimleika og um 40 krakkar eru í frjálsum íþróttum sem er mikil aukning frá fyrri árum. Krakkarnir hafa á skömmum tíma tekið miklum framförum og áhuginn er mikill. Ungmennafélögin í Snæfellsbæ eru staðráðin í að hasla sér völl í þessum greinum þannig að nafn bæjarins verði tengt við öflugt íþróttastarf á komandi árum. krakkablaki í Snæfellsbæ undir stjórn þjálfaranna Viðars Gylfasonar og Ránar Kristinsdóttur. Fyrri hluti íslandsmóts í krakkablaki var haldinn í Snæfellsbæ í byrjun nóvember og var framkvæmd mótsins til fyrir- myndar í alla staði og um 300 keppendur skemmtu sér konung- lega. Mótið og umgjörð blakstarfsins hefur aukið mjög veg krakkablaksins í Snæfellsbæ. Fjölga hefur þurft æfingum og aldursflokkum og stunda að jafnaði 60 börn og unglingar blak. Knattspyrna I kjölfar þess að knattspyrnulið Víkings frá Ólafsvík hefur farið upp um tvær deildir á tveimur árum og mun spila í fyrstu deild á komandi sumri hefur áhugi á knattpyrnu aukist mjög í Snæfellsbæ. 65-70 krakkar eru við æfingar og í haust var bætt við stúlknaflokki yngri stúlkna og nýverið hófust æfingar hjá eldri stúlkum. Þjálfari er Ejub Purisevic en til stendur að ráða aðstoðarþjálfara á nýju ári. Sund Krakkarnir í sunddeild Víkings í Ólafsvík hafa náð mjög góðum árangri á undanförnum árum miðað við að geta eingöngu æft í 12 m. innilaug bæjarins. Þau hafa sigrað héraðsmót 7 ár í röð og náð góðum árangri á stærri mótum. Þjálfari þeirra, Fadel A. Fadel hefur auk sundæfinga skipulagt þrekæfingar í íþróttahúsi og á nýju ári verður bætt við svökölluðum kútaflokki fyrir yngstu krakkana. íþróttir fatlaðra Iþróttamenn úr röðum fatlaðra æfa vikulega í íþróttahúsi Snæfellsbæjar undir stjórn Sigrúnar Ólafsdóttur íþróttakennara. Krakkarnir fara víða og keppa í fjölmörgum íþrótta- greinum. Fáir íþróttamenn skemmta sér jafn vel við sína íþrótt og þau gera. Herferð gegn hreyfingarleysi Stjórnir ungmennafélaganna í Snæfellsbæ hafa haft skýra stefnu í íþróttastarfi sínu í vetur. Að tryggja Krakkablak Mikill uppgangur hefur verið í UMFÍ - Ræktun lýðs og lands - 14

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.