Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2004, Blaðsíða 8

Skinfaxi - 01.12.2004, Blaðsíða 8
AÐ LOKNU LANDSMÓTI Gísli Páll - HSK Landsmótið á Sauðárkróki tókst afar vel í alla staði. Keppnisgreinar voru þær sem búast mátti við miðað við aðstöðu á staðnum og áhuga heima- manna. Athugasemdir bárust við tímasetningu keppni einstakra greina og má þar meðal annars nefna glímu. Tjaldstæði voru til fyrirmyndar og voru mátulega nálægt keppnisstað. Almenn tjaldstæði voru fyrir ofan okkur þannig að keppendatjaldstæði lágu á milli þeirra og dansleikjahalds í miðbænum sem olli nokkurri umferð einstaklinga um miðja nótt í misjöfnu ástandi. Vert að skoða þetta og reyna að bæta á næstu mótum. Upplýsingar, kynning og umfjöllun var með ágætum og fékk Landsmótið nokkuð góða og jákvæða umfjöllun í fjölmiðlum landsins að mínu mati. Sökum anna komst ég ekki á Unglingalandsmótið í þetta skiptið en fékk jákvæðar og góðar fréttir af því . Eins og ég hef marg oft sagt er að mínu mati nauðsynlegt að halda Unglingalandsmót á hverju ári. Þarna gefst unglingum og foreldrum þeirra tækifæri til þess að skemmta sér og keppa í íþróttum án vímuefna og er þetta mót að verða eitt af örfáum á Islandi þar sem slíkt er mögulegt. Framtíð beggja Landsmóta UMFÍ er björt. Nú þegar íþróttabandalögin geta einnig keppt á Landsmóti þá eru líkur á því að keppendafjöldi og umfang aukist enn frá því sem nú er. Að lokum er það ósk mín að Landsmótið árið 2012 verði haldið á HSK - svæðinu. Árni - UMSE Mér fannst vel takast til bæði með Landstmótið og eins Unglingalands- mótið. Oll aðstaða var til fyrirmynd- ar, bæði fyrir keppendur og gesti, varla hægt að hafa hana betri, og eins með fyrirkomulag, keppnisgrein- ar og afþreyingu og hef raunar lítið nema gott eitt um það að segja. Aftur á móti langar mig að koma því á framfæri að við sem erum að vinna að undirbúningi að þátttöku okkar félaga á Landsmótum myndum við gjarnan vilja hafa tíma til að ná félögunum saman t.d einu sinni á dag, en það var varla hægt því dagskráin var svo þétt. Eg var mjög efins um að það gæti gengið svona fyrirfram að hafa bæði Landsmótin á saman árinu en er orðinn jákvæður fyrir því í dag. Eg taldi að það myndi draga úr þátttöku á annað hvort mótið, en þetta gekk bara vel þannig að mér sýnist að það geti vel orðið áfram. Mér finnst ekki koma til greina að halda bæði mótin á sama stað. Mér fannst það aldrei koma til greina og tel að reynslan hafi sýnt það. Ástæðan er fyrst og fremst að það er sama fjarlægðin, stutt fyrir suma, langt fyrir aðra, og hreinlega ekki sanngjarnt. Eins finnst mér mjög hæpið að leggja það á eitt félag að halda tvö svona stórmót sama árið. Landsmótin halda áfram, framtíð þeirra er björt, eins og sýndi sig í sumar, góð þátttaka á þeim báðum. Stóra Landsmótið vil ég sjá í svipuðum farveg þó það þurfi alltaf að fylgja tímans rás en Unglinga- landsmótin verði breytileg frá ári til árs og taki mið af aðstæðum á hverjum stað fyrir sig. Anna Rúna - HSÞ Mér þótti takast afar vel til með framkvæmd Landsmótsins sl sumar. Aðkoman þannig að ég fann hversu velkominn ég var. Veifurnar sem leiddu gesti öruggustu leið inn í bæinn var afar vel til fundið og vinalegt. Keppnisaðstaðan var glæsileg, keppnisgreinar vel valdar, afþreying örugglega góð og næg, en það var mjög ánægjulegt hvað fólki okkar leið vel í tjáldbúðunum og sótti því í þann félagsskap og stemningu ekki síður en að vera í bænum. Það tókst afar vel með Unglinga- landsmótið á sama stað en um Verslunarmannahelgina og þar sem lið HSÞ var skipað í mörgum tilfellum sama fólki og á Landsmótinu, reyndar fjölgaði mikið í okkar búðum og þá aðallega foreldrar og systkini keppenda. Þá viljum við enn og aftur þakka vel fyrir okkur. Það gekk allt upp, að við teljum og allir afar ánægðir. Það er ekki hægt að gera betur en það. Mér sýnist að Unglingalandsmótin séu komin til að vera, og ánægjulegt að heyra jákvæðar raddir foreldra og aðstandenda ungmennanna þar að lútandi. En það er kannski fullmikið að halda 2 slík mót sama árið. Stóru Landsmótin hafa auðvitað sinn gamla, góða, ungmenna- félagssjarma. En eru þau ekki of þétt, að vera á þriggja ára fresti. Þar sem að við erum að tala um að ULM eru haldin hvert ár, væri bara enn meiri tilhlökkun að komast á Landsmót fjórða hvert ár? UMFI - Ræktun lýðs og lands 8

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.