Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2004, Blaðsíða 28

Skinfaxi - 01.12.2004, Blaðsíða 28
BO RGARF J ARÐARH LAU P Borgarfjarðarhlaup Lagt af stað... Ungmennasamband Borgar- fjarðar stóð fyrir hlaupadegi á Hvanneyri laugardaginn 25. september. Boðið var upp á þrjár vegalengdir: 4,4 km. (skemmtiskokk) Hvanneyrar- hringinn, 10 km. og 25 km. þar sem hlaupið var frá Hvanneyri að Hvítárvöllum, eftir Hvítár- flóanum þaðan yfir Hestháls og síðan niður Skorradalinn, að norðanverðu og þaðan til Hvanneyrar. Rásmark og endamark var við kirkjuna á Hvanneyri. Þátttakendur úr skokkhópnum Laugaskokki Alls tóku 35 hlauparar þátt í Bestum tíma í skemmtiskokkinu náði hlaupinu, flestir frá skokkhóp sem Bandaríkjamaðurinn Natan Barelay kallar sig Laugaskokk alls 20 en hann hljóp á 18.58 mín. Hann hlauparar. Þátttaka var framar keppti í unglingaflokki. vonum þar sem veðrið var leiðinlegt fyrir hlaup, rok og rigning, en það létu hlaupararnir ekki á sig fá og komu hressir og ánægðir í mark. Alls tóku 1 1 þátt í 25 km. hlaupinu. Sá sem náði bestum tíma þar var Stefán Orn Einarsson úr skokkhópi IR en hann hljóp á tímanum 1:48.31. klst. Jóhannes Guðjónsson náði besta tíma karla í 10 km. hlaupinu á 41.40 mín., Ingveldur Ingibergsdóttir í kvennaflokki á 48.04 mín og Gunnar Ingi Friðriksson í unglingaflokki á 50.29 mín. þau keppa öll fyrir UMSB. Sigmar H. Cunnarsson afhenti Jóhönnu Eiríksdóttir verðlaun en hún var eina konan sem hljóp 25 kílómetrana. Rósa Marinósdóttir afhendir Ingveldi Ingibergsdóttur verðlaun fyrir 10 km. hlaup kvenna. Sigurvegarar í 25 km. hlaupinu, Stefán Örn Einarsson, Sigurður Ingvarsson og Alfreð Guðmundsson. Þetta hlaup er nýmæli hjá UMSB en undanfarin ár hefur Sparisjóðs- hlaupið verið um þetta leiti, en það var fært í Borgarnes í sumar, sem liður í Borgfirðingahátíð. Mat undirbúningsnefndar hlaupsins er að vel hafi tekist til og verður örugglega reynt að festa hlaupið í sessi og stefna á enn fleiri þátttakendum að ári. KB banki í Borgarnesi og Mjólkursamlagið í Búðardal voru styrktaraðilar hlaupsins. UMFÍ - Þátttaka er lífsstíll 28

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.