Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.2004, Blaðsíða 16

Skinfaxi - 01.12.2004, Blaðsíða 16
FJÖLSKYLDAN Á FJALLIÐ Ásd/s Helga Bjarnadóttir, stjórnarkona í UMFI, og verkefnisstjórn Göngum um ísland. Gestabækur á fjöllum Fjölskyldan á fjallið, landsverk- efni UMFI, var fram haldið í sumar, þriðja árið í röð. Um 14.000 landsmenn hafa nú skráð nöfn sín í gestabækur sem komið var fyrir á tuttugu fjöllum. Asdís Helga Bjarnadóttir, stjórnarkona í UMFI hefur setið í vekefnisstjórn Göngum um Island. Hvernig hefur verkefnið Fjölskyldan á fjallið gengið í ár? Áhuginn fyrir verkefninu hefur verið mjög mikill, því maður hittir varla manneskju sem ekki hefur gengið á fjall í sumar eða kynnt sér verkefnið. Verkefnið Fjölskyldan á fjallið hefur kveikt áhuga fólks á útivist og að gefa sér tíma í að kynnast sínu nánasta umhverfi með að ganga á heimafjallið. Margir hafa þó gengið á fleiri en eitt fjall, það sér maður þegar litið er í gestabækurnar sem hafa verið á alls 22 fjöllum í sumar. Héraðssamböndin hafa verið dugleg við að tilnefna fjöll á hverju ári og stundum breytt til, valið annað fjall en árinu áður, til að hvetja heimamenn enn frekar til fjallgöngu. Einhverjir brestir hafa þó verið á því að gestabækurnar eru ekki komnar upp þegar tilkynning er gefin út um fjöll ársins. Einnig hefur það komið fyrir að bókum hefur verið stolið af fjöllunum sem er alveg með eindæmum! Almennt má þó segja að verkefnið hafi gengið vel. Hvað hefur verið mikil þátttaka í verkefninu? Miðað við upplýsingar úr gesta- bókunum og upplýsingum frá héraðssamböndunum hafa um 14.000 manns tekið þátt í verkefninu. Þátttakan fer að nokkru eftir því hvaða fjöll verða fyrir valinu á ári hverju, því þau eru miserfið og mislangt frá þjóðvegi 1. Fólk hefur sig ekki í að fara langar leiðir til að ganga á fjöll, þó þau gefi oft frábært útsýni fyrir stærri svæði! Hvernig verður framhaldinu háttað, t.d. næsta ár? Á síðasta Sambandsþingi UMFI var samþykkt að halda þessu vekefni áfram. Á meðan áhugi er meðal aðildafélaga UMFÍ að halda verkefninu áfram verður það gert. Ég geri ráð fyrir að verkefnið verði með svipuðu sniði og árin á undan. Við munum væntanlega reyna að fá tilnefningar um fjöll fyrr en verið hefur og auglýsa það fyrst og fremst á heimasíðu UMFI og á ganga.is. Héraðssamböndin og Upplýsinga- miðstöðvar ferðamála um allt land hafa einnig verið duglegar að koma fjöllunum á framfæri. Hvert er markmiðið með verkefninu? Markmiðið er fyrst og fremst að hvetja einstaklinga til hollrar útivistar og til að auka þekkingu sína á eigin landi. Eins og nafn verkefnisins bendir á er fjölskyldan sérstaklega hvött til að fara saman, hvort sem það er ,,gamla settið", vísitölu- fjölskyldan, ættmenni, fjölskyldan í fyrirtækinu eða innan stofnana. Það að fólk fari saman gefur göngunni aukið gildi, því þá koma reynslusögurnar, fróðleikurinn um lífið og tilveruna, uppryfjun á nöfnum tegunda plantna og fugla og hver aldurshópur hefur alltaf einhverju að miðla. Ut frá slíku lærist margt, m.a. að bera virðingu fyrir náttúrunni þannig að fólk umgangist hana af varúð og er síður tilbúið að spilla henni. Því betur sem við þekkjum landið, því betur göngum við um það og hæfari til að taka þátt í umræðum um viðkomandi landssvæði. Hverjir hafa helst tekið þátt í verkefninu? Það er erfitt að segja, en mér sýnist að það sé fólk á öllum aldri. Einstaklingar sem geta gengið einir og nær óstuddir um óslétt land, svona frá þriggja og fram á níræðis aldur. Fólkið kemur úr öllum þjóðfélagshópum og jafnt úr dreifbýli sem þéttbýli, þannig að verkefnið hefur náð fyllilega sínum markmiðum. Það má þó segja að vinsælustu fjöllin í ár voru Stóri Dímon og Vörðufell á Suðurlandi, tilnefnd af HSK, þannig að það mætti ætla að íbúar á því svæðinu hafi verið hvað duglegastir að fjölmenna í ár! Ég vil að lokum hvetja alla til að taka þátt á næsta ári," segir Ásdís Helga. UMFÍ - Ræktun lýðs og lands 16

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.