Skinfaxi - 01.12.2004, Blaðsíða 21
VELFERÐARSJÓÐUR BARNA
30-40 börn hér á landi talin þurfa á
þjónustu af þessu tagi að halda.
„Með uppbyggingu Rjóðurs vildum
við byggja upp aðstöðu fyrir langveik
börn og fjölskyldur þeirra. Rjóður var
byggt upp í Kópavogi og þar fá
langveik börn fulla aðhlynningu og
foreldrar um leið möguleika á
þessari þjónustu fyrir börnin sín.
Langveik börn geta brotið upp
fjölskyldur vegna þess að fólk
hreinlega gefst upp. Sjóðurinn
borgaði fyrir húsnæði og tæki en
ríkið hefur síðan séð um reksturinn,"
segir Kári
íþróttafatnaður,
hljóðfæri og námskeið
Sjóðurinn hefur styrkt börn sem búa
við erfið kjör með því að veita þeim
tækifæri til að taka þátt í margs
konar sumarnámskeiðum og veitt
styrki til kaupa á hlutum sem þau
hafa ekki átt kost á. Markmiðið er að
gefa börnunum kost á uppbyggjandi
afþreyingu sem örvar félagsþroska
þeirra og stuðla að velferð þeirra
með ýmsum hætti. Á sjötta hundrað
barna hafa notið framlaganna og
víst er að ekkert eitt verkefni sjóðsins
hefur komið jafn mörgum börnum til
góða. „Við höfum til dæmis á sumrin
gefið börnum íþróttafatnað eða
greitt fyrir aðstöðu á námskeiðum.
Síðan höfum við gefið börnum í
tónlistarnámi hljóðfæri og öðrum
höfum við gefið rúm eða annað í
heimilið. Þetta höfum við gert mikið
í gegnum ábendingar frá fólki, t.d.
kennurum eða íþróttafélögum og
höfum ekki viljað að þessir styrkir
væru áberandi á þann hátt að það
kæmi fram hver fengi þessa
styrki/'segir Ingibjörg.
Mentorverkefnið Vinátta
Velferðarsjóðurinn setti af stað
mentorverkefnið Vináttu árið 2001.
Verkefnið er í því fólgið að háskóla-
og framhaldsskólanemendur veita
grunnskólabörnum stuðning og
hvatningu. Um 100 börn eru nú
þátttakendur. „Markmiðið með
þessu verkefni er að efla samskipti
barna og fullorðinna og þá annara
„Vi<3 getum breytt umhverfi ísienskra
barna," segir Ingibjörg.
en þeirra nánustu úr fjölskyldunni.
Þetta er svona gæðatími þar sem
börnin kynnast eldri einstaklingi á
framabraut, sem verður þeim um
leið ákveðin fyrirmynd. Sérstaklega
núna á meðan á verkfallinu stóð, þá
var þetta að reynast mörgum
börnum ákaflega vel. Mörg þessara
barna hafa aldrei farið í bíó með
fullorðnum, eða aldrei farið í sund
með fullorðnum, ekki lært að tefla. í
þessu verkefni eru þeir fullorðnu að
kenna börnunum, ekki skólabókar-
lærdóm, heldur meira svona á lífið
og tilveruna," segir Ingibjörg.
Kári telur að þetta sé bæði mjög
spennandi og um leið gefandi
verkefni. Ekki þá bara fyrir börnin
heldur líka fyrir hina fullorðnu sem
mynda þessi tengsl við þörnin.
„Hugmyndin með þetta verkefni er
síðan að fá ríkið til að taka þetta að
sér. Þetta er svo ódýrt, það er hægt
að fá fólk til að taka þetta að sér fyrir
lítil laun og það er enginn annar
kostnaður í aðstöðu."
Víðátta
Annað verkefni á sviði menntamála
er Víðátta. Því er ætlað að skapa
aðstæður sem gagnast nemendum
víðs vegar urn landið og efla
kunnáttu kennara til að starfa í
tæknivæddu umhverfi. Áhersla hefur
verið á að bæta kennslu í stærðfræði
og íslensku. Þá hefur sjóðurinn
einnig styrkt gerð fræðsluefnis fyrir
börn og ungmenni, meðal annars
fjögurra myndbanda sem voru
ákaflega vel heppnuð.
Getum breytt
umhverfi íslenskra barna
„Við viljum gjarnan fara í samstarf
við íslensk stórfyrirtæki til þess að
fjárfesta í gæðum í íslensku
samfélagi," segir Ingibjörg. „Ef við
fáum góðan hóp fyrirtækja getum við
breytt umhverfi íslenskra barna."
Kári tekur undir með Ingibjörgu. „Við
getum gjörbreytt þessu umhverfi, ég
held að það séu forsendur til þess.
Það eru peningar á íslandi til að gera
þetta og það eru til aðferðir til að
gera þetta. Það eina sem þarf að
gera er að brýna fólk til að rísa undir
þeirri ábyrgð sem í felst því að búa til
auð, " segir Kári og heldur áfram;
„Það þarf engan Einstein til að sjá að
þessi mikli auður sem situr í þessum
fyrirtækjum í samfélagi þar sem er
svona mikil misskipting að ef að þeir
ætla að halda áfram að mynda
þennan auð, þá verða þeir að skila
einhverju meiru til samfélagsins,
bara annað gengur ekki."
Gamall kommi
Kári segir að Velferðarsjóðurinn hafi
ekki verið mjög áberandi í
fjölmiðlum fyrstu ár sjóðsins og telur
að það hafi verið skynsamlegt. Aftur
á móti sé kannski kominn tími til að
vekja athygli á ýmsu sem sjóðurinn
er að standa fyrir og um leið höfða
til annarra stórfyrirtækja með
samstarf í huga. „Það verður að
sýna fyrirtækjum fram á að þau fái
eitthvað fyrir þetta, að þau fái fyrir
það velvilja og skilning á því að þau
séu að vinna af ábyrgð í sínu
samfélagi. Þó svo auðvitað væri
æskilegt að vinna að þessu algerlega
í kyrrþey, þá komust við bara ekki hjá
því að láta vita af því hvað við erum
að gera." Aðspurður hvort þetta sé
hugmyndafræði ættuð frá
Bandaríkjunum segir Kári ekki svo
vera. Ingibjörg grípur fram í fyrir
honum og segir að hann vera
21
SKINFAXI - tímarit um menningu