Skinfaxi - 01.12.2004, Qupperneq 25
SIGURÐUR GEIRDAL - MINNING
um 80% og með aukinni starfsemi
græddist okkur fé. Erlend samskipti
voru endurvakinn. Atak var gert í
uppbyggingu í Þrastaskógi.
Stofnaður var Félagsmálaskóli
UMFI. Erindrekstur tekinn upp af
fullum krafti, sem formaður og
framkvæmdastjóri fóru fyrir.
Blásið nýju lífi í Skinfaxa máigagn
samtakanna og útgáfustarfsemi á
vegum félaganna komið á. Unnið var
markvisst að því að efla einstök
ungmennafélög og héraðssambönd í
samvinnu við sveitarstjórnir á
hverjum stað og við nutum sívaxandi
velvilja og stuðnings ríkisvaldsins.
Okkur Sigurði var mjög í mun að
afsanna þá kenningu að
ungmennafélögin í landinu, væru
bara einhver, „fornaldar frægð".
Með nýjum og breyttum áherslum
ættu þau fullt erindi til nútíðar og
langrar framtíðar. Þessi var hugsjón
okkar og forystunnar í heild og það
stendur enn. Engum manni
vandalausum hefi ég kynnst sem mér
hefur þótt jafnmikið til um. Við
Sigurðir vorum svo rækilega tengdir
hugsjónalega, en faglega og
framkvæmdalega höfum við líklega
bætt hvor annan upp. Sigurður var
einstakur gleðigjafi og fræðari hvar
sem hann fór hann var með
ólíkindum sjáandi fram í tímann og
snöggur að sjá aðalatriðin í því sem
við var að fást. Vörslumaður
fjármuna með afbrigðum. Þá naut
hann þess að vera innan um fólk og
vinna með því og fyrir það. Stjórn
samtakanna naut líka tungumála-
kunnáttu hans á þessum tíma þegar
erlendu samskiptin tóku að blómstra
á ný.
Sigurður var hagyrðingur góður
og þótti mér mjög vænt um þá
hæfileika hans. Osjaldan voru ávörp
hans eða kveðjuorð á samkomum
ungmennafélaganna afburða snjöll
vísa sem sagði allt sem segja þurfti.
Dæmi um það, er kveðjuræða á
kuldalegu vorþingi Héraðssambands
Suður-Þingeyinga sem haldið var í
Bárðardal, hér fyrr á árum.
Þakin snæ er þingeysk grund
þróttur vors er falinn.
Kært við þökkum kynni og fund
og kveðjum Bárðardalinn.
Vinnuþjarkur var Sigurður með
afbrigðum og gerði tæpast greinar-
mun á því hvenær sólahringsins sú
vinna var látin í té.
Til marks um ótakmarkað
vinnuþrek Sigurðar. Bætti hann við
Samvinnuskólaprófið frá Bifröst,
stúdentsprófi frá Hamrahlíð og
Viðskiptafræðiprófi frá Háskóla
íslands meðan hann var í fullu starfi
hjá UMFÍ og skilaði þó ómældum
afrekum þar á þeim tíma.
í öllu sínu fjölþætta félagsstarfi
naut Sigurður þess að eiga góða
konu og skilningsríka og sama má
auðvitað segja um börnin hans.
Olafía Ragnarsdóttir stóð við hlið
manns síns á hverju sem gekk og
hafa þau hjón verið áberandi dugleg
að mæta á mannfundum á þeim
fjölþætta akri félagsmála sem
Sigurður hefur starfað á í gegnum
árin.
Ungmennafélagshreyfingin sér á
bak einum virtasta leiðtoga hennar
frá upphafi vega.
Mikill stuðningsmaður öflugs
íþróttastarfs í landinu er á braut.
Framsóknarflokkurinn missir einn
öflugasta leiðtoga sinn, sem einn
framsóknarmanna hóf störf í
Bæjarstjórn Kópavogs vorið 1990 og
tók þá einnig við starfi bæjarstjóra.
Nú rúmum 14 árum seinna á
flokkurinn 3 kjörna fulltrúa. Mér er
til efs að nokkur bæjarstjóri á íslandi
hafi átt jafn stóran hlut að máli,
þegar við horfum til uppbyggingar
Kópavogskaupstaðar á öllum sviðum
á þessum tíma. Sigurður átti líka sem
fyrr því láni að fagna að vera virtur
að verðleikum af samstarfsmönnum
sínum í bæjarstjórn og samstarfsfólki
öllu hjá bæjarfélaginu, sem og
íbúum Kópavogs.
Það mun taka okkur vini og
samstarfsmenn Sigurðar Geirdal
langan tíma að sætta okkur við að
hafa hann ekki lengur á meðal
okkar. Minningin mun lifa um góðan
dreng sem stóð fyrir djörfum og
fögrum hugsjónum og vann þeim
brautargengi af sannfæringu og
sannri gleði. Þess vegna átti Sigurður
Geirdal alstaðar vinum að fagna.
Elsku Ólafía, við Hildur og
fjölskylda okkar, flytjum þér og
aðstandendum öllum innilegar
samúðarkveðjur við fráfall Sigurðar.
Hafsteinn Þorvaldsson
fyrrverandi form. U.M.F.Í.
25
SKINFAXI - tímarit um menningu