Skinfaxi - 01.05.2007, Page 4
Ólajvw KjO^kat CfríMMUJK, CorzeU ÍvLmioU:
Kveðja frá
Forseta íslands
Þegar Ungmennafélag íslands var stofnað á Þingvöllum 1907
brann hugsjónaeldur í brjóstum æskufólksins og draumurinn
um frelsi og sjálfstæði íslendinga varaflvaki til aukinna dáða.
Kjörorðið um ræktun lands og lýðs varð áhrifamikið í nýrri sókn
sem markaði spor i byggðum landsins.
Á aldarafmælinu getur UMFÍ glaðst yfir glæsilegri sögu og
fagnað því hve kröftug hreyfingin er á okkar tímum, burðarás
í íþróttalífi og æskulýðsmálum íslendinga; landsmótin jafnan
vettvangur gleði og leikja, vitnisburður um aga og þjálfun, þrótt-
mikinn undirbúning og heilbrigðan keppnisanda.
Það er fjölmenn sveit sem þar hefur í tímans rás skarað framúr,
sett ný met sem mörg hver hafa lengi staðið. Afreksfólk sem náð
hefur á verðlaunapall Ólympíuleika kom fyrst til leiks á landsmót-
um UMFÍ, íþróttahátíðum sem enn eru að ala upp nýja kynslóð til
frækinna sigra.
Aldarafmælið hefur orðið UMFÍ hvatning til að halda lands-
mótin nú, bæði í Kópavogi og Hornafirði, með glæsibrag og
heimamenn hafa sýnt í verki hve mikils þeir meta UMFÍ, starfið
sem hreyfingin hefur sinnt í heila öld.
Við Dorrit sendum keppendum og fjölskyldum þeirra árn-
aðaróskir um leið og við þökkum UMFÍ fyrir fjölmargar ánægju-
legar samverustundir.
Landsmótin hafa verið okkur eins og öllum öðrum einstök
hátíð og efniviður í fjársjóð minninganna.
Hejð jyrir U^UM^alaMÁsMiÆuvL UMPÍ
Unglingalandsmót UMFÍ eru jafnt og þétt að
skapa sér hefð. i upphafi var hugsunin sú að
halda uppi keppni og skemmtun tii handa
aldursflokknum 11 -16 ára. Vel var tekið í
þessa hugmynd og frá og með árinu 1992
hófst saga Unglingalandsmóta UMFÍ.
Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Dalvík
10.-12. júlí 1993. Mótið, sem haldið var á
vegum UMSE, tókst vel í alla staði og varð þá
alveg Ijóst að þetta mótshald var komið til að
vera. Fyrirmyndarfélag mótsins var HHF.
Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Blöndu-
ósi dagana 14.—16. júlí 1995, á vegum USAH.
Fyrirmyndarfélag mótsins var UNÞ. Ungl-
ingalandsmót UMFt var haldið í Grafar-
vogi 1998, á vegum Ungmennafélagsins
Fjölnis. Fyrirmyndarfélag mótsins var HSH.
Unglingalandsmót UMF( var haldið 2000
í Vesturbyggð/Tálknafirði, á vegum HHF.
Mótið markaði skil í sögu mótanna því að
1 □ .UNGLINGA
LANDSMOT
UMFÍ
það var haldið um verslunarmannahelgina í
fyrsta skipti. Þetta var á þeim tíma umdeild
ákvörðun en sagan hefur kennt okkur að
þetta var afar farsælt skref í sögu mótanna.
Fyrirmyndarfélag mótsins var UMSS. Ungl-
ingalandsmót UMF( var haldið í Stykkis-
hólmi um verslunarmannahelgina 2002, á
vegum HSH. Fyrirmyndarfélag mótsins var
USVS. Unglingalandsmót UMFl var haldið á
(safirði um verslunarmannahelgina 2003, á
vegum HSV. Fyrirmyndarfélag mótsins var
HSÞ. Á þessu móti var tekin sú ákvörðun að
hækka aldursmörk mótsins upp í 18 ár í stað
16 áður. Á þingi UMFl eftir mótið var ákveðið,
með miklum meirihluta atkvæða, að halda
mótið árlega um verslunarmannahelgina.
Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Sauðár-
króki 2004, á vegum UMSS. Fyrirmyndarfélag
mótsins var HSK. Þetta var í fyrsta skipti sem
Unglingalandsmót var haldið á sama stað
og Landsmót UMFÍ. Unglingalandsmót UMFl
var haldið í Vík í Mýrdal 2005, á vegum USVS.
Fyrirmyndarfélag mótsins var HSK. Mótið
tókst í alla staði mjög vel og er talið að um
sjö þúsund gestir hafi sótt mótið í blíðskapar-
veðri. Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á
Laugum í Þingeyjarsýslu 2006, á vegum HSÞ.
Mótið fór mjög vel fram í ágætu veðri.
Keppendur og gestir á mótinu voru þegar
best lét um tíu þúsund.
4 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands