Skinfaxi - 01.05.2007, Síða 19
10.UNGLINGA
LANPSMÓT
UMFf
Íþróttahátíð
sem hittir
beint í mark
Hjalti Þór l''iqnMum.,
bœjartfjóri á, HontaÁrÓi:
Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Hornafirði,
segir að frá upphafi hafi verið mikil jákvæðni
í bænum fyrir Unglingalandsmótinu og að
bæjarbúar hafi lagst á eitt við að gera mótið
sem glæsilegast. Bæjarstjórnin var tilbúin að
gera það sem hægt var til að undirbúningur
og framkvæmdir gengju sem best.
„Það hefur geysilega mikla þýðingu að fá að halda þetta stóra
mót og um leið setti það íþróttamál almennllega á dagskrá hjá
bæjarfélaginu. I kjölfarið var tekin ákvörðun um að laga íþrótta-
völlinn og byggja upp góða frjálsíþróttaaðstöðu. Síðan var tekin
ákvörðun um að ráðast í byggingu á nýrri sundlaug sem verður
þvf miður ekki tilbúin á Unglingalandsmótinu. í bígerð er að reisa
knattspyrnuhús og því má segja að við það að ákveðið var að
halda hér Unglingalandsmót varð vakning í allri uppbyggingu
á íþróttamannvirkjum í bænum. Það var kominn tími á það en
bærinn hafði áður komið að uppbyggingu glæsilegs níu holu
golfvallar. Eins hefur bærinn styrkt aðstöðu fyrir mótorcrossið og
síðan er bygging á reiðhöll hafin á vegum hestamannafélagsins,
sem sveitarfélagið tekur mikinn þátt í fjárhagslega," segir Hjalti
Þór.
- Samhliða þessu móti hlýtur bæjarfélagið að fá mikla kynningu
sem er mikilvæg til framtíðar litið?
„Vissulega fáum við mikla kynningu sem er af hinu góða og
við búumst við töluverðum fjölda fólks til bæjarins í tengslum við
mótið. Samhliða mótinu ætlum við að nota tækifærið og kynna
samfélagið og það sem það hefur upp á að bjóða. Ætlunin er að
hefja þá kynningu á unglingalandsmótshelginni og þá ætla fyrir-
tækin á staðnum og sveitarfélagið að kynna bæði atvinnutæki-
færi og þjónustu þannig að fólk sé meðvitað um það hvað er í
boði á Hornafirði."
- Aðstaðan, sem verður til vegna mótsins, hlýtur að vera sam-
félaginu eystra geysilega mikilvæg?
„Já, heldur betur. Það er stór hluti af lífsgæðum að hafa góða
aðstöðu til að iðka íþróttir. Við erum reyndar vel í sveit sett hvað
áhrærir möguleika til útivistar á Hornafirði. Það er stutt út í náttúr-
una og margar skemmtilegar gönguleiðir fyrir fjölskylduna. Fólk
er farið að spá í almenna hreyfingu og bætta lýðheilsu og því er
mikilvægt fyrir sveitarfélag að þjóða upp á góða aðstöðu fýrir
almenning. Það gerir ekkert annað en að efla samkeppnishæfni
okkar að ráðast í þessar framkvæmdir," sagði Hjalti Þór. Hann
sagði ennfremur að eftir að UMF[ ákvað að 10. Unglingalands-
mótið yrði haldið á Hornafirði hefði áhugi á frjálsum íþróttum
vaxið þar á nýjan leik. Aðrar íþróttir væru líka að færast í aukana
og dafna eins og mótorcrossið og golfið.
„Það er bara hvatning að halda mótið og gefur okkur byr í
seglin um ókomin ár," segir Hjalti Þór.„Það var afskaplega vel til
fundið að finna Unglingalandsmótum fastan stað um verslunar-
mannahelgina. Þarna koma börn og unglingar til að taka þátt í
íþróttum í heilbrigðu og uppbyggilegu umhverfi. Foreldarnir
fylgja með og því má segja fullum fetum að þetta sé íþróttahátíð
sem hittir beint í mark. Það er bara vonandi að við fáum gott
veður og allar aðstæður verða fyrsta flokks þegar stóri dagurinn
rennur upp."
- Er mikil eftirvænting meðal bæjarbúa eftir Unglingalands-
mótinu?
„Hún er það heldur betur og það er mikið talað um mótið
manna á milli. Starf okkar undanfarna mánuði hefur snúist um
mótið, að skipuleggja það og undirbúa þá þætti sem snúa að
framkvæmdum. Hornfirðingar eru metnaðarfullir um að reyna
að láta bæinn líta vel út og taka vel á móti fólki. Ég held að þetta
verði gott Unglingalandsmót og boðið verður upp á fjölbreyttar
íþróttir. Við erum í stakk búin til að taka á móti þeim fjölda sem
hefur verið á þessum mótum síðustu ár. Það sem skiptir mestu er
að hafa gaman af þessu og skemmta okkur saman. í ár er UMFÍ
100 ára en það eru 110 ár síðan að fyrstu húsin risu á Höfn þannig
að það er margs að minnast," sagði Hjalti Þór Vignisson, bæjar-
stjóri á Hornafirði, í spjallinu við Skinfaxa.
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags (slands 19