Skinfaxi - 01.05.2007, Page 20
Un^UHaaJxmxUmÆr UMFÍ:
Áhugaverðir staðir
Gönguleiðir í ríki Vatnajökuls
Margar góðar gönguleiðir í fallegu umhverfi eru í„Ríki Vatnajökuls".
Vel unnin gönguleiðakort eru fáanleg í upplýsingamiðstöðinni sem er í
sama húsi og Jöklasýning, Hafnarbraut 30 á Höfn, og þjónustumiðstöð-
inni í Skaftafelli. Einnig hægt að panta í síma 478-1500 eða
touristinfo@visitvatnajokull.is.
Ef þið viljið fara í styttri gönguferðir þá eru margar skemmtilegar leiðir
innan Hafnar og í nágrenni bæjarins.
Óslandið er friðlýst svæði við sjávarsíðuna. f Óslandinu er að finna
upplýsingaskilti um svæðið og þar er hægt að ganga skemmtilegan hring
frá tjörninni og virða fyrir sér hið mikla fuglalíf. Skemmtilegt er að fylgjast
með bátum fara í gegnum Ósinn sem er innsiglingin til Hafnar. Glæsilegt
útsýni er til sjávar, fjalla og jökla. Yfir sumartímann er svæðið varpsstaður
kríunnar og þá er hún þar allsráðandi.
Ægissíðuna á Höfn er skemmtilegt að ganga. Farið er með fjörunni
austan við bæinn um grasi gróið svæði sem þægilegt er að ganga um.
Mikið fuglalíf er á þessum slóðum.
Skemmtilegt er að ganga við sjávarsíðuna í átt að Óslandinu frá golf-
skálanum á Höfn. Þetta er létt ganga á göngustígum. Hægt að virða fyrir
sér fjöruna og glæsilegt útsýnið til jöklanna.
Skemmtilegt er að ganga upp að Bergárfossi sem er í nágrenni Hafnar.
Haldið er frá vegamótum Hafnar og þjóðvegar 1. Gangan að fossinum
tekur um 'h klst. á malarvegi meðfram Bergánni. Hægt er að fara á bak við
fossinn og njóta útiverunnar í fallegu umhverfi.
íslenskir fjallaleiðsögumenn
íslenskirfjallaleiðsögumenn hafa bækistöðvar í Skaftafelli og bjóða þeir
upp á sérstæðar gönguferðir auk kletta- og ísklifursferða í Öræfasveit. Með
í för eru reyndir fjallamenn sem leggja sig fram við að veita ferðalöngum
ómetanlega lífsreynslu í ferðum sínum. Lengri og styttri ferðir eru í boði
auk mismunandi erfiðleikastiga, s.s. eitthvað fyrir alla. Ferðirnar eru í boði
frá miðjum maí til miðs september (jafnvel er farið með hópa á Hvanna-
dalshnúk í apríl).
Jeppa- og sleðaferðir
Hjá Jöklajeppum - ís og Ævintýri eru í boði fjölbreyttar jeppa- og sleða-
ferðir um Vatnajökul. Má þar nefna lengri ferðir, eins og í Grímsvötn, Kverk-
fjöll og Snæfell, en vinsælast er að fara í styttri sleðaferð á Vatnajökli og
staldra við á Brókarbotnstindi, þaðan sem er ómótstæðilegt útsýni. Þar að
auki skipuleggja Jöklajeppar göngu- og skíðaferðir um jökulinn. Nánari
upplýsingar má finna á heimasíðu sem er www.glaciersjeeps.is.
Lónsöræfaferðir
(Lónsöræfum er stórbrotin náttúra sem vert er að upplifa. Þar er fjölskrúð-
ugt gróðurfar og mikil litadýrð í bergi, m.a. vegna þess að þar er gömul
megineldstöð. Vegna sérstæðrar náttúru svæðisins voru Lónsöræfi friðlýst
árið 1977. Jeppavegur liggurfrá þjóðvegi nr. 1 að lllakambi og á sumrin
(15. júní til 5. september) er boðið uppá daglegar ferðirá sérútbúnum
fjallabíl um svæðið. Farið er að Kollumúla þar sem stoppað er í um þrjár
klst. og meðal annars er gengið að skála Ferðafélagsins. Einnig boðið upp
áfleiri gönguferðir aukþess sem fólk getur slappað af og notið útsýnisins.
Bílstjóri ferðarinnar er einnig leiðsögumaður. Hægt er að leggja af stað frá
Höfn eða Stafafelli í Lóni. Panta þarfferðirfyrirfram.
Nánari upplýsingar eru í síma 478-2415, 864-4215 eða á www.lon.is.
Fuglaskoðun
Hornfirðingar eru þekktir fyrir fuglaskoðun. Á Höfn er m.a. sérstakur trjá-
lundur sem heitir Einarslundur og hefur Félag fuglaáhugamanna Horna-
firði hann til umráða. Einar Hálfdánarson, skógræktaráhugamaður á Höfn,
byrjaði að planta trjám við Miðfjárhúsahól um eða upp úr 1950. Hann hef-
ur nú ánafnað félaginu iundinum og á vordögum var gerður samningur
við Sveitarfélagið Hornafjörð um svæðið í kringum lundinn.
Ferðamenn, sem koma til Hafnar, ættu ekki að láta Einarslund fram hjá
sérfara. Nánari upplýsingar má fá hjá Upplýsingamiðstöðinni.
Golf
Á Höfn eraðfinna glæsilegan níu holu golfvöll sem rekinn er af Golfklúbbi
Hornafjarðar. Hann er á fallegum stað við sjávarsíðuna með stórkostlegu
útsýni til jökla. Þar eru einnig skemmtilegar gönguleiðir. Á golfvellinum er
boðið upp á námskeið fyrir byrjendur. Veitingasala er opin 16:30-22:30.
Golfskálinn stendur við Dalbraut. Sími: 478-2197.
20 SKINFAXI - tímarit Ungmannafálags (slands
r.