Skinfaxi - 01.05.2007, Page 22
Un^U^aÍMuUmM- UMFÍ:
Áhugaverðir staðir
Opnunartími Skaftafellsstofu:
2. maí - 31. maí
l.júní -16. júní
17. júní - 21. ágúst
22.ágúst- 15. sept.
16. sept. - 30. sept.
10 - 15 alla daga vikunnar
9-17 alla daga vikunnar
8- 21 alla daga vikunnar
9- 18 alla daga vikunnar
10 — 15 alla daga vikunnar
Opnunartími: 15. maítil 15. september, kl. 13:00-18:00,ogfrá l.júlítil
10. ágúst 13:00-21:00. Hægt erað óska eftir heimsókn utan opnunartíma.
Allir eru velkomnir í Byggðasafnið, frítt inn!
Pakkhúsið
Opnunartími verslunar:
1. júní- 16. júní 9 - 17 alla daga vikunnar
17. júní — 21. ágúst 9- 19 alla daga vikunnar
22. ágúst - 31. ágúst 9 - 18 alla daga vikunnar
Á öðrum tíma ársins er hægt að taka á móti ferðamönnum ef pantað er
með fyrirvara. Ragnar Frank Kristjánsson, þjóðgarðsvörður. Sími 478-1627
og 478-1946, fax 478-1949. Hafdís S. Roysdóttir, starfsmaður Skaftafells-
þjóðgarðs, sömu símar. Helga Davíðs, starfsmaður Skaftafellsþjóðgarðs,
Höfn. Sími 470-8090. Kári Kristjánsson, starfsmaður Skaftafellsþjóðgarðs,
Kirkjubæjarklaustri. Sími 822-4028.
Menning og söfn
Á Höfn er starfrækt Menningarmiðstöð Hornafjarðar sem gegnir leiðandi
hlutverki í uppbyggingu á menningarstarfsemi sveitarfélagsins. Helstu
þáttur starfseminnar er rekstur safna, en á Höfn eru bókasafn, byggðasafn,
héraðsskjalasafn, náttúrugripasafn, listasafn og sjóminjasafn í pakkhúsinu.
Þar að auki kemur Menningarmiðstöðin að ýmsum sýningum, tónleikum
og öðrum skemmtunum í Hornafirði og hún annast útgáfu á völdu efni
sem varðar sveitarfélagið. Eins og sjá má er starfsemin mjög margþætt og
fer hún fram vítt og breitt um Höfn og víðar innan sveitarfélagsins.
Gamlabúð
(Gömlubúð er að finna marga áhugaverða muni, nytjahluti og vinnuvélar
frá liðinni tíð sem vert er að skoða og skyggnast þar með inn í heimilis-
hald, félagslff og atvinnuhætti frá síðari hluta 19. aldar og fyrri hluta 20.
aldar (Austur-Skaftafellssýslu. Á safninu er einnig að finna náttúrugripa-
safn sem fræðir um dýralíf í sýslunni. Byggðasafnið er við Hafnarbraut,
vinstra megin þegar komið er inn í bæinn. Sími 478-1833. Utan opnunar-
tíma er hægt að ná í tengilið í Menningarmiðstöðinni, sími 470-8050 eða
gsm 892-1869.
Pakkhúsið á Höfn er á skemmtilegum stað við höfnina. Þar er að finna sjó-
minjasafn og handverksbúð með heimaunnum vörum til sölu. Á veturna
er hægt að taka húsið á leigu við ýmis tilefni líkt og sýningar og tónleika.
Menningarmiðstöð Hornafjarðar veitir nánari upplýsingar.
Opnunartími: Frá 13:00 til 18:00 daglega frá 1. júní til 31. ágúst.
Sími: 478-1540. Frítt inn.
Þórbergssetur
Þar er nú veitingasala, gestamóttaka, salerni og tveir sýningarsalir. í eystri
sýningarsal er Ijósmyndasýning úr Suðursveit, gamlar Ijósmyndir frá árun-
um 1930-1960 sem varpa Ijósi á atvinnuhætti og mannlíf í Suðursveit á
þeim tímum er beljandi jökulfljót hömluðu samgöngum og afkoma fólks
byggði á sjálfsþurftarbúskap og sjósókn frá hafnlausri strönd.
Opnunartími Þórbergsseturs er frá 1. mai til 1. október kl. 12:00-17:00
alla daga nema mánudaga. Ef enginn er við í Þórbergssetri má banka
upp á á Hala eða hringja í síma 478-1073 eða 867-2900.Tímapantanir og
fýrirspurnireru í síma Þórbergsseturs, 478-1078, eða 867-2900, netfang:
thorbergssetur@simnet.is.
Veitingastaðir
Fosshótel Vatnajökull
Hótelið er á kyrrlátum stað í fallegu umhverfi, um 10 km sunnan við Höfn.
Þar eru í boði 26 rúmgóð tveggja manna herbergi sem öll eru með sérbað-
herbergi, síma og útvarpi. Á hótelinu er fallegur veitingasalur með bar þar
sem opið er fyrir hópa (hádeginu en gesti og gangandi á kvöldin. Mögu-
leiki er á að nýta veitingasal sem fundaraðstöðu milli morgun- og hádegis-
verðar.
Hótel Edda Nesjum (sumarhótel)
Hótel Edda Nesjum er við þjóðveg 1, um 8 km sunnan við Höfn. Þaðan er
glæsilegt útsýni til jökla. Þar er boðið upp á gistingu í 31 herbergi með
22 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands