Skinfaxi - 01.05.2007, Síða 24
Valátmar EUuwssœn, 'verkejhJssJjóri Un^U^aLutdsuiÆuvs:
Valdemar Einarsson, verkefnis-
stjóri 10. Unglingalandsmóts
UMFÍ, hefur haft í nógu að
snúast í undirbúningi mótsins.
Valdimar segir að heilt yfir
hafi undirbúningurinn gengið
samkvæmt áætlun nema það
sem snýr að sundlaugarmálum.
Að sögn Valdemars mistókust
jarðvegsskiptin í grunninum
þannig að aldrei var möguleiki á
því að sundlaugin yrði byggð á
réttum tíma.
1 □. UNGLINGA
LANDSMÓT
UMFÍ
Spenningurinn vex með hverjum deginum
„Það átti að skipta um jarðveg, hann
átti að síga með tímanum en gerði það
ekki, því miður. Verkið tafðist af þeim sök-
um og er eiginlega ekki komið í gang aftur.
Þetta var bara eitthvað sem ekki varð ráðið
við. Annað hefur gengið eftir samkvæmt
bókinni. Þegar gerviefnið verður komið
á hlaupabrautirnar verður íþróttasvæðið
stórglæsilegt," segir Valdemar.
- Það hlýtur að vera mikið verkefni að
ráðast í framkvæmd sem þessa?
„Það er það óneitanlega en það hjálpar
mikið að það er komin mikil reynsla á þessi
mót og það nýtist okkur svo sannarlega.
Ómar Bragi, framkvæmdastjóri, og stjórn-
arfólk UMFI' hefur mikla reynslu í þessu og
hefur miðlað þekkingu sinni áfram til okkar.
Það má segja að við komum inn í fullmótað
módel. Þess vegna hefur undirbúningur og
annað gengið svo til smurðulaust fyrir sig,"
segirValdemar.
Valdemarfluttisttil Hornafjarðar 1979
og hefur búið þar allar götur síðan. Hann
hefur starfað mikið að íþrótta- og æskulýðs-
málum og félagsmálum almennt i bænum.
Hann var um tíma formaður briddsfélagsins
sem hélt lengi vel eitt af stærstu mótum
landsins. Síðan söðlaði hann um og var for-
maður knattspyrnudeildarinnar í nokkur
ár. Hann hefur átt sæti í íþrótta- og tóm-
stundaráði Hornafjarðar í sex ár og var
starfandi framkvæmdastjóri Sindra síðast-
liðin ár í fullu starfi. Verkefnistjórnun á
Unglingalandsmótinu hefur hins vegar
tekið allan tíma hans síðustu misseri.
„Þegar undirbúningi er lokið verður
risið hér gríðarlega flott íþróttasvæði.
Aðstöðuleysi í frjálsum íþróttum hefur
staðið framgangi þeirra fyrir þrifum en nú
sjáum við fyrir bjartari tíma i þeim efnum.
Þetta nýja íþróttasvæði verður mikil hvatn-
ing fyrir börn og unglinga og við bindum
vonir um að þessi uppbygging verði mikil
lyftistöng fyrir íþróttalíf hér á svæðinu."
Valdemar segist ekki finna annað en að
bæjarbúar séu almennt séð mjög spenntir
og fullir tilhlökkunar fyrir Unglingalandsmót-
inu. Það verði mjög spennandi að koma
öllum þeim fjölda fyrir sem sækja muni
mótið.
„Ég hefsvolítið komiðað humarhátíð-
inni svo að ég veit alveg um hvað þetta
snýst. Ég hef starfað óslitið að undirbún-
ingi humarhátíðarfrá 1999en Unglinga-
landsmótið er af allt öðrum toga enda
meira fjölskyldumót. Við erum að búast
við 8-10 þúsund manns á Unglingalands-
mótið og ég er þess fullviss að það á eftir
að fara vel um keppendur og gesti. í
tengslum við mótið verður tekið í notkun
glæsilegt tjaldsvæði en að auki var fyrir
annað samslags svæði sem er mjög vel
útbúið í alla staði," segir Valdemar.
„Satt að segja erum við með í höndun-
um mjög spennandi verkefni sem gaman
er að kljást við. Spenningurinn fer stigvax-
andi og þegar gerviefnið verður lagt á
hlaupabrautirnar kemur fiðringurinn fyrir
alvöru. Undirbúningur fyrir svona mót
spannar yfir eitt ár og hann mætti í sjálfu
sér vera lengri að mínu mati. Það yrði gott
ef bæjarfélögin fengju meiri tíma til undir-
búnings. Það verður svakalega gaman að
taka á móti fólki og veðurguðirnir verða
örugglega með okkur en sumarið til þessa
hér um slóðir er búið að vera ágætt," sagði
Valdemar Einarsson, verkefnisstjóri Ungl-
ingalandsmótsins, í spjallinu við Skinfaxa.
24 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags Islands