Skinfaxi - 01.05.2007, Síða 27
Uppbygging íþróttamannvirkja
hefur áhrif á búsetu fólks
Ragnheiður Einarsdóttir, formaður Ungmennasambands-
ins Úlfljóts, USÚ, og formaður Unglingalandsmóts-
nefndar segir í mörg horn að líta á lokasprettinum í
undirbúningi að 10. Unglingalandsmóti UMFÍ á Horna-
firði um verslunarmannahelgina. Hún telur að um 20
manns hafi unnið að undirbúningi í vetur en fólki hafi
síðan fjölgað jafnt og þétt eftir því sem nær hefur dregið.
„Að standa í undirbúningi
fyrir svona mót er mikill skóli
en jafnframt gaman og spenn-
andi verkefni. Það þarf að huga
að mörgu en ég held að við
getum sagt að það sé mikill
metnaður hér að gera vel svo
öllum, sem hingað leggja leið
á Unglingalandsmótið, líði vel
og að þeir njóti þess að vera á
Hornafirði yfir mótsdagana,"
sagði Ragnheiður.
Aðspurð um fjölda gesta á
mótinu sagði hún erfitt að
nefna tölur í því sambandi.
„Við erum að gera okkur
vonir um að skráningar verði
ekki færri en eitt þúsund og
allt um fram það yrði frábært.
Ég veit um gríðarlegan áhuga
fólks fyrir mótinu sem nú
þegar hefur skapað sér mikla
hefð.
Að koma á Unglingalands-
mót er vænlegur kostur fyrir
fjölskyldufólk til að eyða helg-
inni í heilbrigðu og fallegu
umhverfi."
- Uppbygging íþróttamann-
virkja hlýtur að hafa mikil áhrif
á byggðarlagið, til lengri tíma
litið?
„Það er ekki nokkur spurn-
ing. Uppbyggingu þeirra miðar
vel áfram og það verður allt
klárt þegar stóra stundin renn-
ur upp. Mannvirkin standa eftir
þegar mótinu lýkur og ég er
viss um að til lengri tíma litið
eiga þau eftir að vera mikil
lyftistöng fyrir okkur sem hér
búum. Það skiptir afar miklu í
mínum huga því að fólk, sem
hefur hug á að setjast að úti
á landsbyggðinni, er farið að
horfa í æ ríkara mæli til íþrótta-
og æskulýðsstarfsins og að sá
málaflokkur sé í lagi. Uppbygg-
ing á íþróttamannvirkjum í
kringum Unglingalandsmótin
skilar sér tvímælalaust inn í
framtíðina," sagði Ragnheiður.
- Heimamenn hljóta að
hlakka mikið til mótsins?
„Já, það er óhætt að segja
það. Hér hafa allir lagst á eitt
og tilhlökkunin er óneitanlega
mikil. Aðstaðan verður öll til
fyrirmyndar og við munum
kappkosta að halda hér veg-
legt og skemmtilegt mót.
[þróttavöllurinn mun líta glæsi-
lega út þegar lagningu gervi-
efnisins á hlaupabrautir verður
lokið. Við vonumst eftir að sjá
sem flesta á Unglingalands-
mótinu á Hornafirði," sagði
Ragnheiður Einarsdóttir að
lokum.
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags Islands 27