Skinfaxi - 01.05.2007, Qupperneq 28
Préttiv úr IweyjwjjUAMU:
HSÞogUNÞ
sameinast í
eitt héraðs-
samband
Héraðssamband Suður-Þingeyinga, HSÞ, og Ungmennasamband
Norður-Þingeyinga, UNÞ, sameinuðust í eitt héraðssamband
sem ber nafnið Héraðssamband Þingeyinga, skammstafað HSÞ, á
Húsavík 9. júní síðastliðinn. Aðalstöðvar hins nýja héraðssam-
bands verða á Húsavík.
Sameiginleg stjórn var kjörin sem sitja mun fram á framhalds-
stofnþing sem haldið verður í janúar. Stjórnina skipa Arnór
Benónýsson, formaður, Guðmundur Magnússon, Kópaskeri, Linda
Baldursdóttir, Húsavík, Kristjana Kristjánsdóttir, Laugum, Einar
Ingi Hermannsson, Bárðardal, Ólafur Ólafsson, Bárðardal, Jóhann
Rúnarsson, Lundi, Svandís Sverrisdóttir, Húsavík, og Stefán Már
Guðmundsson, Svalbarði.
„Mér líst vel á þessa sameiningu og í henni felast mörg tæki-
færi. Það má segja að sameiningarumræðan hafi farið af stað fyrir
rúmu ári. I gegnum árin hafa menn samt rætt þennan möguleika
sem nú er orðinn að veruleika. Með þessari sameiningu sé ég
tækifæri sem felast í því að reka öflugri þjónustumiðstöð fyrir
félögin á svæðinu. Einnig verður komið þetra skipulagi á íþrótta-
og æskulýðsstarfsemina," sagði Arnór Benónýsson, formaður
hins nýja sambands, en hann sagði gengið út frá því að aðsetur
sambandsins yrði á Húsavík.
Fulltrúar UMFÍ á stofnþinginu voru Sæmundur Runólfsson,
framkvæmdastjóri UMFÍ, og Hringur Hreinsson, stjórnarmaður.
Kristján Guðmundsson, Eflingu, og Ingólfur Pétursson, Eflingu,
hlutu starfsmerki UMFÍ.
íþrMaj'éi&qCð Qróéta, 40
ara,
íþróttafélagið Grótta varð 40
ára þann 24. aþríl sl. Af því
tilefni var sérstök hátíðardag-
skrá í (þróttahúsinu sumar-
daginn fyrsta sem hófst með
skrúðgöngu frá Sundlaug
Seltjarnarness undir stjórn
Lúðrasveitar Seltjarnarness.
Eftir skrúðgöngu var dag-
skrá í íþróttahúsinu þar sem
ýmislegt skemmtilegt var í
boði, s.s. sýningar og atriði frá
íþróttadeildum Gróttu.
íþróttamaður Gróttu var
heiðraður og bæjarstjóri og
formaður Gróttu fluttu ávörp.
Einnig voru hoppukastalar
og annað skemmtilegt í boði
fyriryngstu kynslóðina. Eftir
dagskrána í íþróttahúsinu var
boðið upp á kaffi og afmælis-
tertu í hátíðarsal félagsins.
íþróttafélagið Grótta var
stofnað 24. apríl 1967 af
Garðari Guðmundssyni en
hann rak félagið einn á fyrstu
árum þess. Grótta rekur þrjár
deildir innan félagsins; knatt-
spyrnudeild, handknattsleiks-
deild og fimleikadeild.
28 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands