Skinfaxi - 01.05.2007, Side 36
Eréttw wr twej/jwxjUMMÁ:
Kolbrún Ósk
formaður USVS
Um fjörutíu manns sátu 37. ársþing USVS sem haldið var á
Ströndinni ÍVÍk í Mýrdai 25. mars sl. Á þinginu kom fram að mjög
blómlegt starf hefur verið hjá sambandinu og aðildarfélögum
þess á síðasta ári. Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri
UMFl, var fulltrúi UMFÍ á þinginu en Engilbert Olgeirsson, stjórnar-
maður í ÍSf, sat þingið fyrir hönd sambandsins.
Aðrir gestir þingsins voru Gísli Páll Pálsson, formaður FISK,
Jón Magnús Ivarsson, söguritari UMFÍ, og Birgir Ari Flilmarsson,
UMSK, sem kynnti Landsmót 2007. Þá sendi Ómar Bragi Stefáns-
son, framkvæmdastjóri Unglingalandsmóts, góðar kveðjur og
kynningarmyndband fyrir Unglingalandsmótið á Höfn í sumar.
Sæmundur Runólfsson veitti Steinu Harðardóttur, fráfarandi
stjórnarmanni USVS, starfsmerki UMFÍ og Engilbert Olgeirsson
veitti þeim Sædísi ívu Elíasdóttur, fráfarandi formanni USVS, og
Þorgerði Einarsdóttur, fráfarandi gjaldkera og framkvæmdastjóra
USVS, silfurmerki ÍSÍ.
Góðar umræður urðu um málefni sambandsins í fjórum
starfsnefndum og samþykktar voru 15 tillögur á þinginu. Harpa
Ósk Jóhannesdóttir var kjörin íþróttamaður USVS 2006 og Arnar
Snær Ágústsson var kjörinn efnilegasti íþróttamaður USVS 2006.
Stjórn sambandsins veitti Kristínu Marti Kasparsdóttur, frjáls-
íþróttakonu og þjálfara, sérstaka viðurkenningu, Eldhugi USVS
2006, fyrir frábært starf í frjálsum íþróttum.
í lok þingsins fóru fram kosningar en talsverðar breytingar
urðu á stjórn sambandsins.
í stjórn voru kjörin:
Kolbrún Ósk Guðjónsdóttir, formaður, Umf. Dyrhólaey
Guðný Sigurðardóttir, Umf. Dyrhólaey
Kristín Lárusdóttir, Hestamannafélaginu Kópi
Inger Schiöth, Umf. Drangi
Svavar Helgi Ólafsson, Umf. Ármanni
Ivarastjórn eru:
Arnar Páll Gíslason, Umf. Skafta
Petra K. Kristinsdóttir, Hestamannafélaginu Sindra
Margrét Birgisdóttir, Umf. Dyrhólaey
Harpa ÓskJóhannesdóttir, iþróttamaður USVS 2006, og Arnar Snær Ágústs-
son sem varkjörinn efnilegasti íþróttamaður USVS 2006.
Frá vinstri: Steina Harðardóttir, fráfarandi stjórnarmaður, Sædís iva Elíasdótt-
ir, fráfarandi formaður, og Þorgerður Einarsdóttir, fráfarandi gjaldkeri.
-
Kristii
teinn Ásgrimsson lét afstarfi formanns en
tinn Ragnarsson tók við formennsku í Uió.
Síðbúið ársþing U(Ó fyrir árið 2005 var
haldið á Ólafsfirði fimmtudaginn 15.
mars. Þorsteinn Ásgeirsson, formaður,
setti þingið og fór yfir skýrslu stjórnar
sem og reikninga félagsins er voru sam-
þykktirsamhljóða.
U(Ó úthlutaði úr sjóði sínum tveimur
milljónum króna til aðildarfélaga sinna á
fundinum en þeir peningar munu örugg-
lega koma sér vel fyrir félögin. Þorsteinn
Ásgrímsson lét af starfi formanns en Krist-
inn Ragnarsson tók við formennskunni.
36 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands