Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.2007, Page 40

Skinfaxi - 01.05.2007, Page 40
Fréítír-jrá, vtarfi UMPÍ: Útgáfuhóf í tilefni af frímerkjaútgáfu Islandspóstur hélt útgáfuhóf hinn 25. maí síðastliðinn í tilefni af frímerkjaútgáfu sem helguð er merkisviðburðum á þessu ári. Ungmennafélag íslands er 100 ára, Þjóðskjalasafn íslands 125 ára, Skógrækt ríkisins 100 ára, Landgræðsla ríkisins lOOára og alþjóðlegt skátastarf 100 ára. Fulltrúum þessara samtaka og stofnana var boðið til hófsins og voru afhent frímerkin ásamt minja- grip í tilefni útgáfunnar. Á eftir voru bornar fram veitingar. Það var Hany Hadaya hjá H2 Hönnun í Reykjavík sem hannaði Frá útgáfuhófinu. Björn B. Jónsson, formaður UMFl, og Ingimundur Sigurpáls- frímerkin. son, forstjóri Islandspósts. 70 „A* 0 íslond ^ ^ 'r <f Spéfuuutdl 'verkepu jynv LUtytj-óík í umiar Á vegum Ungmennafélags íslands eru í boði eftirfarandi námskeið og verkefni ísumar: Leiðtogaskóli NSU 2007 verður haldinn I útjaðri Helsinki í Finnlandi 1 .—8. júlí. Þetta er vikunámskeið ætlað ungu fólki á aldrinum 18-25 ára sem hefur áhuga á að byggja sig upp félagslega og auka færni í mannlegum samskiptum. Ungmennavika NSU 2007 verður haldin í Svíþjóð 29. júlí til 5. ágúst. Á ungmennavikur koma ungmenni frá öllum Norðurlöndunum á aldrinum 16- 25 ára og vinna saman að verkefnum sem tengjast ákveðnu þema. Útilífsvika NSU verður haldin í Danmörku 15.-21. júlí. Eins og nafniðgefur til kynna er þetta námskeið í útivist þar sem meðal annars er kennt hvernig hægt er að lifa af I náttúrunni án allra þæginda. Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á útivist. Ævintýranámskeið á Grænlandi verður á vegum VNU en það eru vesturnorræn samtök sem UMFÍ á aðild að. Á námskeiðinu fá þátttakendur að kynnast grænlenskri náttúru, sigla á kajak og keyra á hundasleðum og margt fleira. Námskeiðið verður haldið 2.-9. júlí. 40 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.