Skinfaxi - 01.05.2007, Síða 41
Préttirjrá vtarji UMPÍ:
Fróðlegar umræður á samráðsfundi UMFÍ
Samráðsfundur UMFÍ var haldinn á
Smyrlabjörgum í Suðursveit helgina 18.-19.
maí. Stjórnarfundur var á föstudeginum og
lauk um hádegisbil á laugardag. Eftir hann
hófst samráðsfundurinn með kynningu á
Landsmótinu sem haldið verður í Kópavogi
dagana 5.-8. júlí nk.
Björn Hermannsson, framkvæmdastjóri Landsmótsins, sagði frá
undirbúningi mótsins sem gengur mjög vel. Ljóst er að dagskrá
verður metnaðarfull og finna eflaust allir eitthvað við sitt hæfi.
Setningarathöfnin verður glæsileg en auk hefðbundinna dag-
skráratriða verður tónlist og sögusýning áberandi á mótinu.
Þá var skipulagning og hlutverk hreyfingarinnartil umræðu
og voru Björn Ármann Ólafsson, gjaldkeri UMF(, Gísli Páll Pálsson,
formaður HSK, og Arnór Benónýsson, formaður HSÞ, framsögu-
menn. Um þessi efni spunnustfróðlegarog spennandi umræður.
Því næst var sameining héraðssambanda á dagskrá. Björn B.
Jónsson, formaður UMFÍ, sagði að þessi umræða hefði verið mjög
þörf og byrjunin á einhverju meiru.
Að lokum var haldið til Hafnar í Hornafirði þar sem fundarmönn-
um var kynnt mótssvæði Unglingalandsmótsins sem haldið verð-
ur þar í bæ um verslunarmannahelgina. Undirbúningi og upp-
byggingu íþróttamannvirkja miðar vel áfram og er Ijóst að
umgjörð mótsins verður öll hin glæsilegasta.
►
►
L^TUMiÚ^CT^NI^UMyATNSSflLERWjj
HHflÞJQNUSTfl
Borgarflöt 15:: 550 Sauðárkrókur
Sími: 891 9181 :: Fax: 453 5778
Netfang: okgam@simnet.is
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags Islands 41