Skinfaxi - 01.05.2007, Síða 45
\Zori4LMUt ÍUmM
Jón M. ívarsson, sagnfræðing-
ur, er nú á fullu við að rita 100
ára sögu UMFÍ, Vormenn
(slands, eins og hún mun heita.
Jón segist vera í kapphlaupi við
tímann að Ijúka sögunni í haust
og verður lítið um frídaga hjá
honum þangað til.
Margt fróðlegt hefur rekið á
fjörur Jóns við heimildasöfnun.
Vissi til dæmis nokkur maður
að UMFI var komið á fremsta
hlunn með að stofna (SÍ árið
1911 og að ungmennafélögin
áttu drýgri hlut að stofnun
þess en áður hefur verið talið?
Annað athyglisvert, sem Jón
nefnir, er að flokkadrættir inn-
an stjórnar UMFÍ árið 1922 voru
svo miklir að bæði formaður og
ritari sögðu afsérstörfum og
gengu úr stjórninni!
Svo að litið sé til nútímans,
þá er þarna að finna litríkar lýs-
ingar á útihátíðum í Atlavík og
Flúsafelli og á fleiri stöðum en
héraðssamböndin stóðu fyrir
þeim lengi vel. Þá er kortlögð
þarna mikil umhverfisvakning
og margs konar landsverkefni
UMFÍ sem hrifu fjöldann, allt frá
göngu Stefáns Jasonarsonar
umhverfis landið til hjólreiða-
ferðar 3200 ungmennafélaga
til að efla íslenskan iðnað. Þá er
farið í saumana á dramatískum
átökum innan íþrótta- og ung-
mennafélagshreyfingarinnar
þegar upp komu hugmyndir
um að sameina stóru samtökin
ÍSÍ og UMFÍ. Það reiptog stóð í
meira en áratug en niðurstaðan
var óskert sjálfstæði UMFÍ.
Þessi saga er öll ævintýri
líkust og hún er enn að gerast.
Nú eru sum elstu ungmenna-
félögin að halda upp á aldar-
afmæli sitt og þau eru enn í
fullu fjöri. Flreyfingin er aldar-
gömul en samt síung, sagði
Jón M. ívarsson. Flann vildi
koma eftirfarandi orðsendingu
til ungmennafélaga og ann-
arra, því að vitanlega á þessi
bók að komast sem fyrst í
hendur lesenda og besta ráðið
er að gerast áskrifandi.
Heiðursáskrift
(tilefni af 100 ára afmæli Ung-
mennafélags íslands býður
UMFÍ öllum landsmönnum
að taka þátt í heiðursáskrift í
afmælisritinu Vormenn (slands
þar sem héraðssambönd og
félög með beina aðild að UMFÍ
hafa merki sitt. Nöfn aðildar-
félaga, sveitarfélaga, fýrirtækja
og einstaklinga birtast þá hjá
viðkomandi héraðssambandi.
FHeiðursáskriftin ásamt afmælis-
ritinu kostar 8.500 krónur fyrir
einstaklinga og aðildarfélög en
25.000 krónur fyrir sveitarfélög
og fyrirtæki.
Pantanir og nánari upplýs-
ingar gefur Alda Pálsdóttir hjá
Þjónustumiðstöð UMF(, í síma
568-2929 & 863-2665 eða á
tölvupósti alda@umfi.is
Nú er ekki eftir neinu að bíða,
hringið strax.
Sumanilboð!
*' — *— •— - •"1 »— —
mtmmm gildir úi agust m
FJÖLSKYLDUPAKKI
10 KJÚKLINGABITAR MED FRÖNSKUM,
SÓSU OG SALATI 2995 kf
OSTBORGARATILBOD
4 OSTBORGARAR MED FRÖNSKUM,
SÓSU OG SALATI 2395
GERIR GÚÐAN MAT BETRI
II
& ^RAor
i
KRINGLAN
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 45