Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1939, Page 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1939, Page 9
Sjómannsæfi VI. Hrakningur á Ólafi. Vorið 18 .. réðist ég á þilskipið Ólaf, eign Ásgeirs-verzlunarinnar hér. Skipstjóri var Bjargmundur Sigurðsson (síðar í Hafnarfirði). Þann 7. maí ruddi upp norðan stórviðrisgarði. Vorum við þá við fisk djúpt á Hornbanka, á- samt fjölda annarra skipa. Skipstjóri fór af vakt kl. 12 á miðnætti og segir áður stýrimanni, að ef veður versni, skuli hann draga upp sem fyrst, því að vonzkuveður sé í aðsigi. Við vor- um alls 9 á skipinu, 4 á hvorri vakt, og var ég á stýrimannsvaktinni. Stýrimaður fór niður í hásetaklefann aftur og einnig hinir tveir skip- verjar, því að fiskfátt var. Ég stóð einn á þilj- um, og fékk sæmilegan fiskreiting. Logn var fram eftir nóttunni með drífukafaldi, og aukn- um sjóþunga. Rétt fyrir vaktaskiptin, sem voru kl. 4, fór ég að vekja félaga mína. Voru þá mörg skipin tekin að sigla til lands. Vakn- aði þá skipstjórinn, og vakti alla skipshöfnina. Var þá tekið að rifa og sigla til lands. Þegar við höfðum siglt nokkra stund, tók óðum að hvessa; fengum við brátt brot á skipið að aft- an. Voru hekk-bjálkar aftur af skipinu fyrir skipsbátinn. Braut brotið hekk-bjálkana og dró þá með sér sem dræsu um stund. Þóttist ég sjá, fyrir, að það gæti riðið á lífi okkar að losna við dræsuna, og hjó hana því frá eftir skipun skipstjóra. Mistum við þar skipsbátinn í fyrsta áfalli. Við höfðum ætlað okkur að ná Hornhöfn, en það var ófært, vegna sjóa og veðurs. Lögðum við því frá og héldum áfram að sigla. Vorum við fjórir einir á þiljum: skipstjórinn Bjarg- mundur Sigurðsson, Bjami Sigurðsson (sögu- maðurinn)’, Jens Jónsson (frá Fjallaskaga í Dýrafirði), nú í Bolungavík, og Magnús Hanni- balsson, nú á Gjögri í Strandasýslu. Var þetta Þœttir úr sjómennsku BJARNA SIGURÐSSONAR frá ísafirði fyrsta vera Magnúsar á þilskipum, og hann að- eins 17 ára; dugði hann ágætlega. Sigldum við síðan meðan hægt var vegna- veð- urs. Þá var skipinu lagt upp að til þess að leggja því til, en þá kom ógurlegt bort yfir skipið. sem braut allt ofan af því. Þeir Bjargmundur og Jens voru við að hala inn skautið; ég var við að fíra pikkfalnum, en Magnús við að fíra klófalnum. Vissi ég ekki fyr til en ég var í kafi í sjónum, laus við skipið, og líkt var víst hjá þeim aftur á, því að síðasta orðið, sem ég heyrði var, að Jens kallaði: ,,Það er þá búið, piltar!“ Magnúsi skaut fyrst upp úr sjókófinu; losn- aði hann aldrei við skipið, og ekki heldur þeir Bjargmundur og Jens, lágu þeir í skautinu. — Magnús sá, að fokkan var full af sjó, og hélt skipinu niðri. Hljóp hann til og risti sundur fokkuna, og rétti skipið sig þá nokkuð, en lá hálfflatt, því um leið og brotið skall á skipinu, brotnaði vatnskassinn og saltstíurnar til vinds, og skellti öllu yfir í hlésíðuna. Þegar ég hrökk útbyrðis hafði fokkufalsend inn flækst um annan fót minn. Þegar skipið rétti sig við, reið að alda, sem kastaði mér inn á þilfarið aftur. Fann ég að ég lenti á einhverju hörðu með brjóstið, og var það brot af öldu- stokknum, aftan við vantinn. Þegar ólagið var riðið af, bárum við saman ráð okkar. Varð það að ráði, að freista að opna einn lestarhlerann og þeir Jens og Magnús færu þar niður, til þess að moka til saltinu, svo að skipið kæmist á réttan kjöl, en skipstjóri og ég skyldum haga seglum svo að skipinu yrði lagt til. Bundum við okkur saman á streng, og urð- um að standa f sjó upp undir mitti, til hlés. — Okkur tókst þó að leggja til skipinu, og þeim að laga til niðri, svo að skipið rétti sig alveg, að heita mátti. 17 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.