Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1941, Blaðsíða 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1941, Blaðsíða 12
fiskiflotans, „Reykjaborg", frá Reykjavík upp í Englandsferð með fiskfarm, og var gert ráð fyrir, að skipið myndi vera komið í höfn á Englandi þ. 13. þ. m. Svo var þó ekki, og fóru menn þá að óttast um skipið. Hinn 15. þ. m. var togarinn „Vörður“ frá Patreksfirði staddur um 170 sjómílur norður af Hebríds- eynni St. Kilda. Rakst hann þar á fleka á floti, merktan „Reykjaborg“, og umhverfis hann lest- arborð og borð úr þilfarsstíum. Á flekanum, sem orðið hafði fyrir fjöldamörgum vélbyssu- skotum, var voð, björgunarhringur, matar- og vatnsforði, en ekki varð séð, hvort flekinn hafði verið notaður, og gætu skotförin frekar bent til þess, að hann hafi skemmzt á þilfari og flot- ið mannlaus af hinu sökkvandi skipi. Skipinu var sökkt af kafbát að kveldi hins 10. marz 140 mílur út af Barrahead á Hebrídseyjum. Þarf naumast að efa, að skip möndulveldanna hafa verið þar að verki. — Á skip- inu var 14 manna áhöfn. Af henni létust 12 af sárum, áður en skipið sökk, en 2 var bjarg- að af brezku skipi, eftir tæpan 4 daga hrakn- ing, og voru þeir fluttir til lands á Skotlandi. Hinir látnu voru: 50. Ásmundur Sigurðsson skipstjóri, fæddur 21. júní 1901. Kvæntur. Barnlaus. 51. Ásmundur Sveinsson, 1. stýrimaður, fæddur 24. febrúar 1905. Ókvæntur. 52. Óskar Þorsteinsson, 1. vélstjóri, fæddur 24. marz 1902. Kvæntur. Barnlaus. 53. Gunnlaugur Ketilsson, 2. vélstjóri, fædd- ur 3. maí 1912. Kvæntur, á barn í ómegð. 54. Daníel Kr. Oddsson loftskeytamaður, fæddur 21. júlí 1888. Kvæntur; átti 8 börn, þar af 4 í ómegð. 55. Guðjón Jónsson, 2. stýrimaður, fæddur 29. janúar 1894. Kvæntur, lætur eftii' sig fóst- urson. 56. Jón Lárusson, matsveinn, fæddur 25. sept. 1915. Kvæntur, átti 1 barn í ómegð. 57. Oslcar Ingimundarson, kyndari, fæddur 5. nóv. 1909. Ókvæntur, átti 1 barn í ómegð. 58. Hávarður Jónsson, háseti, fæddur 19. apríl 1901. Kvæntur, barnlaus. 59. Þorsteinn Iiarlsson, háseti, fæddur 26. sept. 1917. Ókvæntur. Árásin á e.s. „Reykjaborg“. Skyldu sömu menn hafa verið hér að verki, sem gerðu árásina á e. s. Fróða? Hér tókst þeim að drepa 13 menn, algjörlega varn- arlausa, aðeins 2 skipverja komust nauðulega af eft- ir 86 klukku stunda baráttu upp á líf eða dauða, á hálf- sokknum hjörg- unarfleka. Ásmundur Sigurðsson, skipstjói'i. Ásmundur Sveinsson, 1. stýrimaður. Óskar þorsteinsson, 1. vélstjóri. Guðjón S. Jónsson, 2. stýrimaður. Gunnlaugur Ketilsson, 2. vélstjóri. VÍKINGUR 12

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.