Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1941, Blaðsíða 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1941, Blaðsíða 22
SVEINN ÞORSTEINSSON, skipstjóri: Nýr sjómannaskóli Það hefir oft verið um það talað, að sjó- mannastétt landsins léti sig litlu skipta stjórn- mál almennt, en hugsuðu þess meir um sín dag- legu viðfangsefni á sjónum. Fyrir starf sitt í þágu þjóðfélagsins hefir sjómannastéttin hlot- ið fögur orð, svo sem stríðsmenn þjóðarinnar, hetjur hafsins o. s. frv. Vanalega hafa þó þessi fögru orð aðeins heyrzt, þegar einhverjir hafa orðið undir í átökunum við Ægi og ekkjur og munaðarleysingjar hafa haft um sárt að binda. Nokkrar hjáróma raddir hafa þó heyrzt um það, að þessa menn þyrfti þó að kaupa fyrir hræðslupeninga til þess að sigla með afurðir þjóðarinnar til markaðslandanna. Sjómenn láta sig yfirleitt litlu skipta, hvort heldur það eru fögur orð, sem þeim eru valin, eða niðrunarorð. Þeirra óeigingjarna starf er meira alvörustarf en svo, að slíkt fái nokkurn hljómgrunn hjá þeim. Það sem þeir vilja eru athafnir en ekki orð, verk en ekki fögur lof- orð. Nú undanfarið hafa verið uppi háværar radd- ir meðal sjómanna um það, að byggður yrði veglegur sjómannaskóli, sem yrði til afnota fyrir allar sérgreinar sjómannastéttarinnar, en þessi sjálfsagða krafa hefir enn ekki fundið náð fyrir augum forráðamanna þjóðarinnar. Það virðist svo, sem að þeir kunni betur við það að taka á móti þeim auðæfum, er sjómanna- stéttin lætur þeim í té, en láta nokkuð af mörk- um á móti, annað en fögur , innantóm orð. Nú er það talið svo, að forráðamenn þjóðar- innar vinni og hafi unnið að því að mennta þjóðina, minnsta kosti að vissu menntunartak- marki, og má í því sambandi benda á hina dýru sveitaskóla er reistir hafa verið víðsvegar um landið svo og æðri skóla kaupstaðanna, ásamt fleiru þar að lútandi. En sjómannastéttin hefir orðið útundan eins og svo oft áður. Þrátt fyrir hinar eindregnu kröfur um jafnrétti á þessu sviði, móts við aðra þjóðfélagsþegna, er hinn gamli, hrörlegi sjómannaskóli enn látinn nægja henni. Nú virðist þó sem einhver breyting ætli að verða á þessu, þar sem fram er komið á Alþingi frumvarp um byggingu nýs sjómannaskóla. I því frumvarpi er þó ekki gert ráð fyrir kennslu í öllum þeim sérgreinum, er um hefir verið rætt af sjómönnum sjálfum, og nær það vitaskuld ekki átt. Sömuleiðis munu framlög þau, er frumvarpið fer fram á, ekki nægja til bygging- ar slíks skóla. En þetta getur allt staðið til bóta bara ef einlægur vilji er með, og að svo komnu máli skal ekki dregið í efa, að skilningur þing- manna á málinu sé orðinn svo almennur, að það nái fram að ganga á þessu þingi, þó saga undanfarinna ára hljóta að gera menn tor- tryggna um einlægni valdhafanna í þessu máli. En að svo komnu máli ber að vona að engum frestunarfleig verði stungið í það eða deiluatr- iði vakin því til tálmunar. En þá er komið að annarra hlið málsins, sem er sú, að hinn nýi skóli verði til afnota fyrir sjómenn landsins almennt, en ekki bara nokk- urn hluta þeirra, eins og segja má með nokkr- um rétti að nú eigi sér stað, og skal hér vikið nokkru nánar að því. Þegar siglingalögin voru endurskoðuð 1936, komu fram tvær skoðanir um kennsluna í sigl- ingafræði. Önnur, sem var skoðun Sunnlend- inga, var sú, að kennsla færi eingöngu fram í Reykjavík, við Stýrimannaskólann og yrði þá felld alveg niður kennsla til minna fiskimanna- prófsins, ásamt samskonar námskeiðum út um land. Eða með öðrum orðum að hinu svokall- aða „pungaprófi" yrði útrýmt alveg. VÍKINGUR 22

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.