Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1941, Blaðsíða 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1941, Blaðsíða 26
Mál sjómanna á Alþingi Sj ómannaskólinn. Fram er nú komið á þinginu frumvarp um byggingu skólans. Er það borið fram í efri deild af þeim Sigurjóni Á. Ólafssyni og Erlendi Þor- steinssyni. Þykir rétt að birta í heild, bæði frumvarpið og greinargerð þá, er flutningsmenn létu fylgja því: Frumvarpið. 1. gr. — Bvggja skal á árunum 1941 til 1 !)i'i sjó- mannaskóla í Reykjavík eða nágrenni. 2. gr. — Forstaða skólabyggingarinnar skal falin fimm manna nefnd. Atvinnumálaráðherra skipar nefndina og tilnefnir formann hennar, en tveir nefnd- armenn skulu skipaðir eftir tilnefningu Farmanna- og fiskimannasambands íslands, einn eftir tilnefn- ingu Sjómannafélags Reykjavíkur og einn eftir til- nefningu Stýrimannafélags íslands. 3. gr. — Byggingarnefnd skal þegar láta gera upp- drœtti að skólahúsi í samráði við skólastjóra þeirra skóla, sem þar er astlað pláss, en það eru stýrimanna- skólinn og vélstjóraskólinn; jafnframt skal nefndin gera tillögu um skólastað, og skal sérstakt tillit tekið til þess, að nægilegt landrými sé fyrir framtíðar- þarfir skólans. í skólanum skal vera heimavist fyrir hæfilegan nemendafjölda, og skal húsakynnum heimavistar- innar þannig háttað, að þar verði auðveldlega við- komið kennslu fyrir matsveina. Atvinnumálaráðherra staðfestir teikningu og úr- skurðar um skólastað. 4. gr. — Ríkissjóður her allan kostnað af byggingu skólans, og skulu veittar í fjárlögum minnst 100 þús. kr. á ári, þar til byggingarkostnaði er að fullu lokið. Heimilt er byggingarnefnd með samþykki fjármála- ráðherra, að taka bráðahirgðalán eða selja skulda- bréf til að greiða byggingarkostnað, cftir því, sem ár- leg fjárveiting hrekkur ekki til. Ríkissjóður ábyi'gist slík kVn og stenzt kostnað af þeim. 5. gr. — Byggingarnefnd skal veita viðtöku gjöf- um til sjómannaskólans, en gjafafé skal ekki verja til greiðslu á venjulegum stofnkostnaði skóla, held- ui' til sérstakra umbóta vegna kennslu og skólalífs, sem annars mundi verða bið á að fá. 6. gr. — Lög þessi öðlast þegar gildi. Greinargerð. Menn munu sammála um það, að sjálfsagt sé að nota nokkuð af hinum miklu tekjum, sem fiskiveið- VÍKINGUR arnar færa nú ríkissjóði, til að búa í haginn fyrir sjómenn sjálfa. þar liggur næst að bæta nú þegar úr liinni ríku þörf stýrimannaskólans og vélstjóra- skólans fyrir fullnægjandi húsnæði. Hefir því máli oft verið hreyft, en nú er engin afsökun lengur um að fresta framkvæmdum. Um 1. gr. Ef hafizt er handa nú þegar á næsta vori, má búast við, að hægt verði að ljúka skólabygging- unni sumarið 1942, en þó ekki vert að kveða fastar að en að byggingu skuli lokið á árinu 1943. Um 2. gr. það er æskilegt, að fulltrúar sjómanna hafi forustu í byggingarmólinu, og er hér ætlazt til, að Farmannasambandið tilnefni einn mann úr hópi skipstjóra og einn mann úr hópi vélstjóra, Sjómanna- félag Reykjavíkur tilnefni mann fyrir liáseta og aðrar starfsgreinir þess, sem margir eru væntanlegir nemendur, og Stýrimannafélag íslands tilnefnir mann úr hópi stýrimanna. Er þá náð þeim tilgangi, að full- trúar aðalfélags sjómanna og aðalstarfsgrcina hafa fulltrúa í nefndinni. Um 3. gr. Byggingarnefndinni er hér ætlað að gera tillögur um skólastað og teikningar, en róðherra hef- ir úrskurðarvaldið. Auk stýrimannaskólans og vél- stjóraskólans er æskilegt að sjá matsveinaskóla fyrir . húsnæði, og fellur það vel heim við þarfir heima- vistar. Um 4. gr. Ríkissjóður leggui' að sjólfsögðu fram stofnkostnaðinn, og væri vorkunnarlaust að greiða hann á 2—3 órum, eftir því sem nú lítur út fyrir, en þó rétt að gera ráð fyrir bráðaþirgðalántöku, svo að framkvæmdir þurfi ekki að tofjast, ef árleg fjár- veiting hrekkur ekki til. Að vísu mætti einnig leggja til, að til sjómannaskólabyggingar gangi viss hluti af tiltcknum tekjum af sjávarafurðum, en það rnundi koma í sama stað niður, og hreinlegast að ríkissjóð- ui' hirði sínar tekjur og greiði gjöld sín beint úr ríkissjóði. Um 5. gr. Gera má ráð fyrir, að margir sjómenn vilji minnast skólans í sambandi við byegingarmól hans, ekki sízt ef fulltrúum stéttarinnar er falin for- usta í byggingarmólinu, og er því nefndinrii hér falið að gangast fyrir samskotum, sem þó ganga ekki til að spara ríkissjóði stofnkostnað, heldur til að prýða skólann og búa í haginn fyrir kennsluna og skóla- lífið á þann hátt, sem ella mundi vafasamt að gei't væri. Að sjálfsögðu ber að fagna framkomu þessa frumvarps og þá um leið að þakka það lið, sem flutningsmenn þess vilja ljá þessu stærsta á- hugamáli sjómannastéttarinnar. En það mun 26

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.