Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1941, Blaðsíða 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1941, Blaðsíða 30
Minningarorð um skipverjana á e.s. Fróða Framhald af bls. 15 lífsskoðun þjóðar vorrar. Mennirnir fimm, sem létu líf sitt í árásinni á línuveiðarann Fróða, dóu til þess að þjóð þeirra mætti lifa áfram í þjónustu þessarar lífsskoðunar. Hvorki ég né nokkur maður annar, getur sagt nokkuð til þess að göfga, hylla og helga minningu þessara manna. Þeir hafa sjálfir göfgað og helgað minn- ingu sína með lífi sínu og starfi, baráttu sinni og dauða, og gengið svo frá henni, að vor veiku orð fá þar engu við aukið. Þau orð gleymast, sem hér eru töluð; en hinu mun þjóðin ekki gleyma, sem þessir menn gerðu. Svo langminn- ug mun söguþjóðin, að seint mun henni fyrn- ast saga þessara manna og ævilok þeirra. Sjómannastétt vor og vér öll ásamt henni, fögnum þeim mönnum, er koniu aftur heilir úr hinum ójafna leik, sem háður var úti á öld- um Atlantshafsins, baráttu friðsamra, vopn- lausra manna gegn þeim, er beindu þeim tækj- um eyðingarinnar, og ekki vissu, hvað þeir voru að gera. Og með djúpri lotningu og hljóðri þökk, heilsum vér föllnum hetjum friðarins. Vér sjáum í sögunni um hinztu baráttu þeirra, tákn hins bezta, sem býr í eðli þjóðar vorrar. Skipstjórinn, sem helsærður bað bróður sínum virkta og umsjár, áður en honum væri sjálfum sinnt, og hélt svo áfram deyjandi að segja fyr- ir um leið skips síns í örugga höfn, hann skal vera oss göfug og glæsileg ímynd þeirrar heysti og karlmennsku, já, þeirrar heilögu fórnarlund- ar, sem er kynfylgja hinna beztu manna. Þeg- ar hann, ásamt sínum látnu félögum, kemur hér við á leiðinni þangað, sem fósturmoldin skal breiða skrúðklæði vors og sumars yfir eins og áður segir. Er viðbúið, að þarna hefði orðið hroðalegt manntjón í slæmu veðri og eld- urinn orðið hamslausari undir slíkum kringum- stæðum. Yfirleitt mátti lesa þakklæti og aðdáun úr hvers manns augum og höfðu yfirmennirnir orð á því, að björgunin væri hið mesta hreystiverk og íslendingum til sóma. Þegar flutningi fólksins úr Arinbirni hersi var lokið, var bátur okkar tekinn upp og síðan hinzta kvílurúmið, bjóðum vér þá alla velkomna heim, og þökkum þeim göfugt starf og góða baráttu, háða í anda friðarins til hinztu stund- ar, um leið og vér felum anda þeirra eilífum Guði, sem mun leiða þá „heilu heim í höfn á friðarlandi“. Vér vottum dýpstu hjartans sam- úð eiginkonum og börnum, mæðrum og feðrum, systrum og bræðrum, og biðjum þeim huggun- ar almáttugs og gæzkuríks Guðs. Islenzk sjómannastétt heiðrar og geymir minningu þessara hraustu félaga. En öll skul- um vér, Islendingar, meðan vér lifum vígja oss og helga hugsjónum friðarins og vinnunnar, sem þessir menn börðust svo drengilega fyrir. Látum hollustu þeirra við hugsjónir og fagrar erfðavenjur sjómannastéttarinnar og þjóðar sinnar glæða hjá oss hina sömu hollustu og trúnað við frið og bræðralag. „Meiri elsku hefir enginn en þá, að hann lætur lífið fyrir vini sína“. Gætum þess vel sjálf, að þeir, sem þannig falla, hafi eigi látið lífið til ónýtis. Látum dæmi hreystinnar, drengskaparins og fórnarlundar- innar oss að kenningu verða, svo að vér stuðl- um til þess, að þjóð vor megi, undir stjórn Guðs, lifa í friði og frelsi, og eigi týnast af jörðunni. Látum minningu þeirra, er af dreng- skap og hreysti háðu hinztu þrautabaráttuna hvetja oss, svo að vér eigum í því einhvern þátt, að skrifa sögu þjóðar vorrar á þá leið, sem skáldið lýsir: „í þúsund ár bjó þjóð við nyrztu voga, mót þrautum sínum gekk hún djörf og sterk“. Guð blessi oss minningu göfugra og hraustra drengja. Vér hugsum til þeirra og ástvina þeirra og vottum þeim virðingu vora og þökk með augnabliks þögn. haldið af stað í áttina heim. Horfðum við á hið brennandi skipsflak fjarlægjast smám saman og hverfa að lokum bak við bungu jarðar. Hér hefir verið getið einnar tölu af ótal- mörgum úr hinu mikla reikningsdæmi, sem kallast styrjöld milli menningarþjóða, en sem erfitt mun reynast að fá aðra útkomu út úr en negatíva, þ. e. eyðileggingu og niðurrif þess, sem kynslóðirnar hafa byggt upp til aukins þroska og þæginda fyrir mannkynið. VÍKINGUR 30

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.