Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1952, Blaðsíða 10
betur má fara og ekki er of dýru verði keypt,
og ætti það að vera hverjum manni metnaðar-
mál að hlúa sem bezt að þeim atvinnurekstri,
sem hann ætlar að gera að sínu lífsstarfi.
Það er hvorki erfiðara né seinlegra að gera
vel, en meðvitundin um að hafa verið trúr í
starfinu og fastur ásetningur um að vera það
alla tíð, mun færa ykkur sanna vinnugleði og
þann menningarbrag, sem skapazt af því að
hafa það á meðvitundinni, að hafa hvorki svikið
sjálfan sig né aðra, því að skáldið segir: Að
ljúga að öðrum er ljótur vani, en ljúga að sér
sjálfum er hvers manns bani.
Skipstjórinn, sem fylgist vel með allri starf-
semi um borð í skipinu, verður fljótt þess var
hverjir eru bezt til forustu fallnir, einnig kom-
ast skipstjórar á öðrum skipum að því, og verða
slíkir menn eftirsóttir og geta því valið um skip-
rúm og komizt á þau skip, sem mest er hagn-
aðarvonin og flestar líkur til að komast í betri
stöðu. —
Þegar þið komið um borð í togara og eigið
að fara að vinna þar, er nauðsynlegt að þið
setjið vel á ykkur handbrögð vönu mannanna,
svo að þið getið sem fyrst tekið þátt í öllum
daglegum störfum.
Ég þekki einn gamlan og reyndan togara-
skipstjóra. Þegar hann kom fyrst á togara, þá
stóð hann fram á dekki á meðan verið var að
láta út trollið og taka það inn, og hafðist ekki
að, en tók vel eftir öllu, sem fram fór. Þetta
gekk svo til í tvö skipti, og var skipstjóranum
farið að þykja þetta nokkuð einkennilegt, en í
þriðja skipið gekk hann til allra algengra verka
eins og þeir, sem vanir voru, og sá þá skip-
stjórinn hvað hann hafði verið að gera og dáðist
að, enda varð þessi maður brautryðjandi í þess-
ari starfsgrein hér á landi.
Þegar þið farið að kynnast störfunum um
borð, farið þið að sýna hvað þið hafið lært, og
þar með að þið séuð staðráðnir að beita þeirri
kunnáttu hvenær sem hennar er þörf, og eink-
um og sér í lagi að auðga andann að öllu því, sem
verða má til Öruggrar framþróunar í starfinu.
Það er vert að láta þess getið, að nokkur hætta
fylgir þessum störfum, sem öðrum, en með því
að festa í minni hvernig beri að forðast hættur,
kemst það fljótt upp í vana, og set ég hér fram
nokkrar reglur þar um.
Standið ekki nálægt rúllunum, þegar verið er
að slaka eða hífa, því að ef staðið er of nærri
getur rúllan gripið stakkinn, og er þá eina vonin
að spilmaðurinn geti afstýrt slysi. Takið ekki
utan um trawlvírinn, þegar verið er að toga,
því ef skrikar út af vírnum, sem alltaf getur
komið fyrir, þá ertu kominn með hendina í rúll-
una. Eins má vara sig á hlerunum, þeir slást
mikið til, þegar vont er í sjóinn, og gefa þyngri
högg en nokkur maður getur þolað. En hér er
það sem annars staðar, að góð eftirtekt og
þekking á starfinu greiðir leiðina til öryggis,
og kemur þá í Ijós að ef þið þurfið vegna vinn-
unnar að standa nálægt rúllunum, þá standið
fyrir aftan þær, þegar verið er að toga, eða
þegar vírinn rennur út, en fyrir framan, þegar
hann rennur inn. Af þessu verður ljóst, að hægt
er að inna þessi störf af hendi án nokkurrar
verulegrar hættu, og þarf hver maður að þekkja
þetta eins og fingur sína, til þess að gera alla
vinnu auðveldari og skemmtilegri, og eykur af-
köst og vinnuvöndun, ef maðurinn er sér þess
meðvitandi að hann er réttstæður við vinnu
sína. —
Þegar farið er að hugleiða útgerðarmál af
nokkurri þekkingu, kemur fljótt í ljós, að mjög
stórar fjárhæðir er þar um að ræða, og virðist
mér að hollt og nauðsynlegt sé, að menn sem
stunda þesa atvinnugrein, kynmst því allræki-
lega, sérstaklega ef þau kynni gætu orðið þess
valdandi að fullrar sparsemi væri gætt í með-
ferð allra verðmæta, og ef allir eru samtaka
getur það numið stórum fjárhæðum til öryggis
atvinnuveginum, sem þið ætlið að byggja ykk-
ar lífsafkomu á í framtíðinni. Þetta kostar ekki
neitt auka erfiði, aðeins rétta hugsun.
Þegar útbúa skal togara í veiðiför með nýj-
um veiðarfærum, þá kostar eitt trawl með öllu
tilheyrandi kr. 46,000,00. Nú eru alltaf trawl
á báðum síðum og kosta þá tvö trawl kr.:
92,000,00. Trawlvírarnir eins og þeir, sem nú
eru notaðir, kosta kr. 50,000,00. Þá eru komnar
kr. 142,000,00. Svo koma allir varahlutir til túrs-
ins, sem ekki er ofreiknað kr. 100,000,00 og
kosta þá veiðarfærin til túrsins kr. 242,000,00.
Svo kemur allt annað sem til þarf, svo sem
mannakaup, matvæli, salt eða ís, olía og margt
fleira, sem of langt yrði upp að telja.
Enginn útgerðarmaður er svo óforsjáll, að
hann eigi ekki nægar birgðir af útgerðarvörum
til næstu túra, því að oft þurfa togararnir mikið
af veiðarfærum, þegar þeir koma inn, og ekki
ósjaldan að þeir missi trawlið með öllu saman
og kannske vírana líka, það sem úti var af þeim,
og er það mikið tjón, og erfitt að standast
slíkt.
Af því sem að framan er sagt, verður ljóst
að hér þarf fullrar hagsýni við, og það er sú
dyggð, sem þið getið auðveldlega innt af hendi
ykkur að kostnaðarlausu, og ég veit að þið eruð
fúsir til þess, ef þið skiljið köllun ykkar og
stöðu í þjóðfélaginu.
í meðferð fiskjarins er margs að gæta, því
1BB
V I K I N G U R