Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Síða 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Síða 6
þar marga hildi. Frægasta afrek þess var að sökkva Hamborgar- fari með allri áhöfn norður í Eyjafirði 1529. Að þessu sinni hafði skipstjórinn, Jón Willers, bundizt samtökum við Thomas Hamond, skipstjóra á Önnu frá Harwich, og höfðu þeir lagt sam- tímis úr höfn í Lynn í Englandi, en dregið í sundur með þeim á leiðinni. Skipið Thomas frá Húll var 60 lestir að stærð og með 52 manna áhöfn. Aðalfarmur beggja ensku skipanna var salt, og voru 24 lestir í Thomasi frá Húll. Hins vegar var þýzka skipið hlaðið drykkjarföngum, mjöli, malti, smjöri og hunangi. Hansafarið var kaupskip, hingað komið til þess að stunda verzlun, kaupa skreið í skiptum fyrir varning sinn. Ensku skipin voru hins veg- ar aðallega komin hingað norður til þess að stunda fiskveiðar og útgerð, en til þeirra hluta voru þeim nauðsynlegar bækistöðvar á landi. Af þeim sökum voru á- hafnir enskra skipa miklu fjöl- mennari en þýzkra, því að Eng- lendinga beið hér umfangsmeira starf en Þjóðverja. Englendingar voru flestir með smávöruslatta í skipum sínum til þess að geta drýgt eigin afla með verzlun við Islendinga. Það var því ekki nema að nokkru leyti rétt hjá Ludtkin Smith, að næg skreið fengist ekki á Básendum í skipið Önnu frá Harwich, því að Eng- lendingar ætluðú að draga fisk- inn að mestu leyti sjálfir, og Bás- endar liggja vel við góðum mið- um. Englendingar höfðu lagt svo snemma í „löngu sjóferðina" að þessu sinni til þess að njóta síð- ari hluta vorvertíðarinnar við Suðurland. En þeir þurftu höfn til útgerðarinnar engu síður en til verzlunar, og nú lágu þeir fyr- ir framan höfnina, en fyrir inn- an lá eitt Hansaskip og bannaði þeim hafnarvist. Thomas Hamond, skipstjóri á Önnu frá Harwich, steig þegar í skipsbátinn, er Thomas frá Húll hafði varpað akkerum, og fór að hitta landa sína og félaga. Hon- um var vel tekið7 og bundust Englendingar samtökum um að ráðast á Hamborgarfarið og ræna það. Þeir töldu sig hafa mikla yfirburði yfir Þjóðverja í skipum og mannafla, og ákváðu að drepa hvern þann, sem veitti þeim mótþróa, en hengja Ludt- kin Smith á bugspjótinu. Einnig segir í þýzkri skýrslu um þetta mál, að Englendingar hafi boðið Islendingum að koma til veizlu að Básendum, því að þar yrði Þjóðverjakjöt á borðum næsta dag. Inni á höfninni lágu Ludtkin Smith og félagar hans ekki að- gerðarlausir. Bróðir Ludtkins, Hans Smith, hafði legið að Bás- endum um veturinn og keypt skreið af mönnum. Hann var uppi við búðirnar og tók á móti varningnum, sem skipað var á land. Nú fékk Ludtkin hann til þess að safna 80 manna liði Þjóðverja og Islendinga og vera við öllu búinn án þess þó að láta mikið á liðsafnaðinum bera. Lud- tkin vildi gjarnan að Englend- ingar gengju í gildru og honum gæfist kostur á að launa Jóni Willers fyrir margs konar hrell- ingar og ofbeldisverkin norður á Eyjafirði. Snemma á þriðjudagsmorgun 2. apríl lét Thomas Hamond á skipinu Anna frá Harwich vinda upp segl og létta akkerum, en í stað þess að sigla suður með landi til Grindavíkur, eins og menn hans höfðu talað um, þá hélt hann' inn á höfnina á Bás- endum. Þegar styrjaldir hefjast, er venjulega vant að fá úr því skorið, hver hleypti af fyrsta skotinu, og svo er hér. Ludtkin Smith ber það síðar, að Thomas Hamond hafi siglt inn á Bás- endahöfn þennan morgun í fögru veðri og fyrir hagstæðum byr og tekið formálalaust að skjóta á stjórnborðshliðina á skipi sínu með bogum, fallstykkjum og kastspjótum og eyðilagt stafn og skut á skipinu og allt að þeim hluta þess, sem nefnist búlki. Hins vegar segjast Englending- ar hafa neyðzt til þess að leita hafnar að Básendum sökum óveð- urs, en þar hafi Ludtkin Smith ráðizt á þá óvara með skothríð. Að öðru leyti ber enskum og þýzkum skýrslum sæmilega sam- an um atburðarásina. Þótt Ludtkin hafi e. t. v. ekki hleypt af fyrsta skotinu, þá er það víst, að Anna frá Harwich hafi ekki siglt langt inn á Bás- endahöfn, þegar hann lét senda henni innihald fallstykkja sinna og skipshöfn hans hóf skothríð með öllum þeim vopnum, sem henni voru til tæk. I þessari hrotu féll Thomas Hamond skipstjóri fyrir skoti, en kúlnahríð Þjóð- verja var svo nærgöngul við lyft- inguna aftan til á skipinu, að stýrimaðurinn hrökklaðist frá stjórnvölnum. Þá ætluðu skip- verjar að kasta út akkeri til þess að forða árekstri, er skipið rak stjórnlaust, en Þjóðverjum tókst að höggva akkeriskaðalinn sund- ur fyrir þeim, svo að skipið rak suðaustur yfir lónið og strand- aði. I þessum svifum kom Thom- as frá Húll fyrir fullum seglum og réðst með skothríð framan að Hansafarinu. Þeim tókst að slíta eina akkerisfesti, sem skip Ludt- kins var fest með, en komu krók- stjökum á bugspjótið og greiddu þar atlögu. I þessu áhlaupi féllu tveir Þjóðverjar, varð annar fyr- ir skoti, en hinn rekinn í gegn, og margir særðust. Ludtkin tók það fangaráð að höggva bug- spjótið af skipi sínu og losa sig þannig úr tengslum við enska skipið, en jafnframt hófu menn hans ofsalega skothríð að því. Sökum vígamóðs gætti Jón Wil- lers ekki að því, hvað var að ger- ast, en skip hans rak suður yfir lónið. Maður nokkur hljóp þá til og ætlaði að varpa út akkeri, en var skotinn til bana, og sá næsti, sem reyndi féll óvígur. Skipið kenndi brátt grunns sunnan hafnarinnar, og skipaði Jón Wil- lers mönnum sínum að róa út með akkeri í skipsbátnum og ná skipinu út á næsta flóði. Ludtkin beindi strax skothríð að skips- bátnum, svo að Englendingar gáfust upp við þá fyrirætlun, þegar einn af mönnum þeirra var fallinn og báturinn laskaður. Þar með voru bæði ensku skipin strönduð, annað innst á höfninni, VÍKINGUR 182

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.