Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Blaðsíða 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Blaðsíða 14
Vorleysingamar á pólarísnum. Alls staðar kviksyndi, krap og vatn, er veldur miklum erfiðleikum. frá Lomonosov-hryggnum,1 og að lokum farið yfir hann, og fór nú út vesturhallann. Hrakinn af vindi og straumi teygði ísflákinn sig í 1 Lomonosov-hryggurinn var upp- götvaður á árunum 1948—]6, af pól- arleiðöngrum sovétskra vísindamanna, er árum saman hafa rekið fram og aftur í Norður-íshafinu. Hann sker Norður-íshafið frá Ný-síberisku eyj- unum, til Ellesmereyjar, og var gefið nafn Lomonosov, frægs rússnesks vís- indamanns. — Þýð. norðvestur, til sundsins miili Spits- bergen og Grænlands. Haffræðingarnir voru ánægðir með árangurinn af stöðugum mæl- ingum hafdýpisins rannsóknum á jarðefnum hafbotnsins og botn- vörpudráttar á meðan stóð á rek- inu yfir Lomonosov-hrygginn. Sólin hækkaði óðum á lofti. Æ sjaldnar heimsóttu okkur máfar endur, álkur og aðrir fuglar, er höfðust við allt sumarið í vök við vesturjaðar ísflákans. Án sýnilegra orsaka fór næsti ísfláki skyndilega að hreyfast í átt til bækistöðvarinnar, og vökin lokaðist. Með lágum skruðningi oCT marri, skriðu 3ja til 4ra metra þykkir ísjakar hver upp á annan og mynduðu höll ísruðnings. Þeir brutu undir sig og fóru framhjá íshellum, er voru tugir tonna að þyngd. Ógnandi bylgja ísruðnings nálgaðist óðfluga hafrannsókna- tjaldið, en í 15 metra fjarlægð frá tjaldinu stöðvaðist hún. ísruðnin^- urinn stöðvaðist jafn skyndilega og hann hófst. Hættan fór í þetta sinn framhjá. Athugun á ísflákanum sýndi, að nýjar sprungur er ógnuðu öryggi stöðvarinnar, höfðu ekki komið í ljós. ísflákinn hafði staðizt alvar- legan þrýsting, og við trúðum enn- þá á styrkleika hans og tókum til við að byggja nýjan samkomusal. Gamla tjaldið, sem notað hafði ver- ið allt sumarið sem borðsalur, var orðið útslitið og niðurnýtt. í því var þröngt, rakt, kalt og dimmt. Að kvöldi langaði engan til að dvelj- ast í því til að hvílast, tefla skák eða reykja sígarettu og rabba í hópi vina. Við þessi skilyrði var erfitt að koma við kvikmyndasýn- ingum, fyrirlestrum og umræðu- efnum. Það var ekki beðið komu nýrra húsa. Við ákváðum að byggja sam- komuhús fyrir leiðangursmenn úr þremur gömlum smáhúsum, er við höfðum flutt frá „Norðurpól No. 3“. er sú stöð var lögð niður. Byggingarstarfsemin hófst strax, og var skipulögð á breiðum grund- velli. Bækistöðin breyttist í verk- stæði, þar sem hver og einn hafði starf á höndum. Doktor Gavrílov stýrimaðurinn Sharov og loftskeyta- maðurinn Ljúbaréts létu ljós snilli sinnar skína sem trésmiðir, og þar að auki reyndist póstmaðurinn Gra- chev vera þaksmiður. Haffræðin°r- urinn Gúdovich og jarðeðlisfræð- ingurinn Selívanov breyttust í þaul- æfða málara, og þessa dagana gengu þeir um, frá hvirfli til ylja smurðir í málningu eins og málurum hæfir. Eftir að unnið hafði verið í 16 •—18 klst. á sólarhring, hafði starfs- lið stöðvarinnar lokið samsetningu hússins og eftir 4 daga var að fullu lokið útbúnaði og skreytingu bygg- ingarinnar. Nýji samkomusalurinn fór fram úr áætlun í öllum atriðum. Að koma inn úr frosti, gegnum langt dyraskýli inn í rúmgóða o® hlýja vistarveru, málaða í ljósum lit, með hvíta dúka á borðum, raf- VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.