Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Blaðsíða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Blaðsíða 8
Nathaniel Bowditch Galdramaður í reikningi Grímui Þorkelsson þýddi Siglingafræði Nathaniels Bow- ditch hefur verið í notkun á skip- um, sem siglt hafa um heimshöf- in síðan 1802. Ef lagt væri upp í sjóferð án þess að hafa þá bók um borð, væri það hliðstætt því að ráða handarvana mann að stýrinu eða setja stefnuna án þess að hafa kompás. Bókin heitir „The New Ameri- can Practical Navigator". Hún var upphaflega samin af Nath- aniel Bowditch og gefin út af Edmund Blunt í Newbuiy Port í Massachusetts árið 1802. Bókinni var strax ágætlega tekið. Af henni gátu sjómennirnir lært margvíslegar aðferðir við athug- anir himinhnatta. Þá voru og í henni margar töflur, sem nauð- synlegar voru við útreikninga og staðarákvarðanir. Þetta var risa- stórt framfaraspor í vísinda- grein, sem í þá daga var langt að því að vera nákvæm. Bowditch skipar ámóta sess í sögu sigling- anna og þeir John Harrison, Isaac Newton og Galileo Galilei. Bowditch fæddist 1773íSalem, Massachusetts. Foreldrar hans voru fátækir, hann varð því snemma að fara að vinna fyrir sér. Tíu ára gamall var hann ráð- inn í námsvist til veiðarfærasölu- fyrirtækisins „Ropes & Hodges“. Hann var ráðinn kauplaust til níu ára, og skyldi vinnutími vera 10—12 stundir á dag, sex daga vikunnar. Frítímar voru því af skornum skammti. En samt lærði hann í frítímum sínum latínu, spænsku, frönsku og þýzku. Sjálfsnám í þessum tungumálum gerði hann hæfan til þess að lesa og tileinka sér hin miklu vís- indarit aldarinnar, og hann varð í raun og veru fyrsta flokks stærðfræðingur. Þar að auki bjó hann til kvadrant, og safnaði efni í almanak. Af einskærum á- huga fór hann að kynna sér landmælingar, og varð svo vel að sér í þeirri grein, að hann mældi og kortlagði landsspildu, sem húsbændur hans áttu. tJtlærður landmælingamaður var kvaddur til þess að athuga verk hans, en hann fann engar skekkjur eða vankanta þar á. Þetta varð til þess að stjórnin útnefndi hann til aðstoðar við mælingar og kortagerð af Salem og öðrum bæjum þar í nágrenni. Auðsjáan- lega var hann gæddur miklum námsgáfum. Hann aflaði sér líka þekkingar, sem síðar færði hon- um ódauðlegt þakk'æti allra þeirra manna, scm siglingar stunda. Árið 1795 fékk Bowditch löng- un til þess að ráða sig á lang- ferðaskip. Fyrstu ferðina var hann annar stýrimaður á skipinu „Henry“ frá Salem og annaðist skriftir og reikningsfærslu fyrir skipstjórann. Á hinni tólf mán- aða löngu ferð hóf hann athug- anir sínar, og vann að söfnun upplýsinga á hreyfingum himin- hnatta, vindum, sjólagi, straum- um, djúpi sjávar o. fl. Þennan fróðleik notaði hann síðar í sigl- ingafræðina. Frá því í marz 1796 þar til í september 1800 fór hann þrjár sjóferðir sem lestarstjóri á skipinu „Astrea“ frá Salem. Siglt var til hafna í Evrópu og Austur-Asíu. I nóvember 1802 fór hann skipstjóri áskipið„Put- nam“ frá Beverley, þá 29 ára gamall. Þrettán mánuðum seinna kom hann aftur frá Súmötru með fullfermi af kryddvörum. I þess- ari ferð hagnaðist hann svo vel, að hann gat hætt siglingum fyrir fullt og allt. En þá var hann bú- inn að stunda þær í sjö ár. Áður en hann hætti sjómennsku, árið 1797, hjálpaði hann Edmund Blunt við aðendursemjasiglinga-' fræði Moore’s. Vitað var um margar villur í þeirri bók. Full vissa var um tvö skip, sem höfðu farizt vegna einnar slíkrar villu. Bowditch fann um átta þúsund villur alls í bókinni. Fyrir þetta afrek var hann kjörinn meðlim- ur bandaríska lista- og vísinda- félagsins. Ekki má vanmeta gildi handbókar í siglingafræði fyrir farmenn þeirra tíma. Það var mjög fátt, sem skipstjórar Nýja- Englands á fyrri hluta 18. aldar vissu ekki um sjó, skip og veður. Skipstjóri gat sett skip sitt á þurrt á Suðurhafseyjum og þétt það þar fyrir hina löngu sjóferð heim. Hann gat riggað skip upp að nýju að öllu leyti. Hann var fær um að fella tré og gera nýtt mastur, ef mastur brotnaði í of- viðri. En það var margt, sem þessir sæfarar vissu ekki í sigl- ingafræði. Siglingar þeirra á fjarlægum höfum voru aðallega samkvæmt leðarreikningi, og margt var það skipið, sem aldrei kom aftur vegna algerrar van- kunnáttu skipstjórans í vísinda- legri siglingafræði. Þetta vissi Bowditch. Hann gerði sér líka ljóst að handbækur þeirra tíma, t. d. Moore’s, var mikið ábóta- vant. Hann ákvað því að skrifa slíka bók sjálfur, og setja í hana eingöngu það, sem sjómenn gátu skilið. Siglingafræði hans er ár- angurinn. Hún leysir endanlega mörg vandamál skipstjóra, sem VÍKINGUR 184

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.