Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Blaðsíða 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Blaðsíða 7
en hitt sunnan hennar vestarlega á lóninu. Norðantil á höfninni lá Hamborgarfarið og beindi skot- hríð að skipi Jóns Wllers, en á landi beið lið Hans Ludtkins al- búið að taka á móti Englending- um, ef þeir reyndu að yfirgefa skipin. Allan þriðjudaginn sátu Eng- lendingar í herkví á skipum sín- um og biðu flæðar á miðviku- dagsnóttina, en þá ætlaði Jón Willers að gera nýja tilraun til þess að ná skipi sínu út, en til- raunin misheppnaðist. Vindur var norðlægur og skipið hrakti einungis lengra upp á grynning- arnar. Hins vegar tókst áhöfn- inni á Önnu frá Harwich að ná skipinu út á flóðinu og leggja því við akkeri, og létu Þjóðverjar það afskiptalaust. Anna komst ekki úr höfninni nema með því að sigla rétt hjá Hamborgarfar- inu, og Þjóðverjar vissu, að Eng- lendingum þótti sú leið ekki greiðfær, eins og sakir stóðu. Öðru hverju kallaði Ludtkin til Englendinga að gefast upp skil- yrðislaust, aðstaða þeirra væri vonlaus. Allar heimildir gefa til kynna, að Englendingar hafi ver- ið nokkru liðfleiri en Þjóðverjar í þessari orustu, en hamingjan var þeim ekki hliðholl, og á mið- vikudagsmorgun tilkynntu þeir Jón Willers og Robert Legge, er tekið hafði við stjórn á önnu frá Harwich eftir fall Thomasar Hamonds skipstjóra, að þeir væru fúsir að koma til friðar- samninga. Þegar þeir voi*u komn- ir um borð í Hansafarið, kúgaði Ludtkin Smith þá til þess að bjóða skipshöfnum sínum að láta öll vopn af hendi við Þjóðverja. Þessu var hlýtt, og voru vopnin flutt um borð í skip Ludtkins. Að því búnu skipaði hann mönnum sínum að fara um borð í skipið Thomas frá Húll og tæma það af öllu fémætu. Skipið stóð nú að mestu á þurru um fjöru, svo að Þjóðverjum var greið leið að skipinu, en Englendingar sner- ust enn til varnar, þótt þeir hefðu fátt vopna. Ludtkin lét þá höggva gat á byrðinginn og menn sína ganga þá leið inn í VÍKINGUR Gamlar búðarústir við Básenda. skipið og ræna. Nú var ekki um annað að gera fyrir áhöfnina en flýja á land upp. Þar umkringdu Þjóðverjar þá og tóku tvo þeirra, sem þeir töldu sakbitnasta fyrir margs konar ofbeldisverk, m. a. fyrir að hafa átt drjúgan þátt í að sökkva Hamborgarfarinu norður á Eyjafirði árið 1529. Þessa menn lét Ludtkin háls- höggva, en misþyrmdi öðrum tveimur og skilja þá eftir klæð- lausa, nær dauða en lífi. Meðan á þessu gekk, fékk skip- ið Anna frá Harwich að liggja í friði á höfninni við Básenda. En nú kom röðin að því. Meðan orustan stóð, sendiLudtkinsendi- boða til Hafnarfjarðar og bað þýzka kaupmenn í firðinum að koma til Básenda og gera um deilur sínar og Roberts Legge og félaga hans. Þeir bregða við og koma til Básenda, en þar var Ro- bert Legge neyddur til að skrifa undir skýrslu, sem Þjóðverjar sömdu um atburðina, en einnig urðu þeir að afhenda allan varn- ing sinn úr skipinu og greiða 40 lestir skreiðar í skaðabætur. Skreiðina afhenda þeir þann 16. maí, og fengu þeir þá að halda skipi sínu og töldust lausir allra mála fyrir þátttöku í orustunni að Básendum. Eftir það sigldu þeir burtu, en Erlendur lögmaður Þorvarðarson lét tylftardóm ganga um „skip það og góss, sem rak á land við Básenda í bardaga milli Ludtkins Smiths og Jóns Willers“ og dæmist það réttilega fallið undir konung. Þar með voru þessir atburðir úr sögunni í bráð, en ýmsir aðrir áttu eftir að gerast. Seint í apríl kom skipið Thomas frá Lundún- um að Rifi á Snæfellsnesi, en þar lá fyrir Hamborgarfar á sama hátt og við Básenda. Englend- ingar gerðu út bát á fund skip- stjórans á Hansaskipinu og báðu leyfis að mega koma inn á höfn- ina, en fengu synjun. Þá héldu Englendingar til Grundarfjarðar og lágu þar í þrjár vikur og veiddu og verzluðu. Að þeim tíma liðnum kom þar skip frá Brimum ásamt Hamborgarfar- inu, sem lá við Rif. I þrjá eða fjóra daga lágu Hansaskipin á Grundarfirði og höfðust ekki að, en þann 20. maí lögðu þau að landi. Fjörutíu eða fimmtíu manns gengu af skipunum og héldu þangað, sem Englendingar voru með búðir sínar. Þjóðverjar réðust með alvæpni inn í búðirn- ar, brutu upp kistur kaupmanna og höfðu allt fémætt á braut með sér. Síðan fóru þeir um borð í enska skipið og tóku þaðan öll vopn og skotfæri. Hér er um beint rán að ræða, en nú voru nýir og miklu alvar- legri atburðir á döfinni. Til er staðfest afrit, en ódagsett, af bréfi þýzkra skipstjóra og kaup- manna í Hafnarfirði til ráðsins í Hamborg. Þar segir, að Eng- lendingar í Grindavík hafi tekið fisk, sem Hansamenn höfðu keypt og greitt. Þjóðverjar segj- ast vilja, að ráðinu sé kunnugt, að þeir ætli að ná fiskinum með valdi og leggja líf og góss í söl- urnar. Þeir æskja liðsstyrks og bjóða ráðinu hluta í herfanginu. Um Grindavíkurstríðið verður fjallað í næsta blaði. 183

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.