Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Qupperneq 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Qupperneq 28
tals. Meðal afli á skip talin í tunnum og málum er um 1.200 uppsaltaðar tunnur og 1000 mál, eða um fimmti hluti af því sem aflinn var á hvert skip síðasta góða aflaárið 1944, þrátt fyrir stærri og betur útbúin skip nú. Hefði slíkt sumar komið fyrir 4—5 árum, áður en hin nýju tæki komu til sögunnar, hefði síldaraflinn orðið sama og eng- inn. L Reynslan á síldveiðunum í sumar sannar það, að það gildir það sama um þenna atvinnuveg eins og flesta aðra atvinnuvegi í nútíma þjóðfélagi, að án full- kominna tækja og kunnáttu er vonlaust að ná góðum árangri. Ymislegt annað hefur einnig úr- slitaþýðingu eins og aðstæðan til þess að afla hráefnisins, verð þess og afurðanna, og síðast en ekki síst veðráttan, en henni höf- um vér íslendingar alltaf verið háðir í landi voru og verðum það væntanlega enn um skeið. Snœfell frá Akureyri aflahœst Snæfell frá Akureyri varð að þessu sinni aflahæsta skip síld- veiðiflotans með rúmlega 10.000 mál og tunnur, samkv. skýrslu Fiskifélags. Islands. Bjami Jóhannesson hefirverið verið skipstjóri á Snæfelli í 6 ár og þrisvar orðið aflakóngur, ár- ið 1952, þá á Akraborg, 1957 og svo í þriðja sinn nú í sumar. r ------------------------------- VeSráttan í sumar? Hún hefur eyðlagt þessa ver- tíð fyrir flestum, segir Bjami. Sjaldan var gott veiðiveður heil- an dag, hvað þá meira. Norðan- áttin hefur verið ríkjandi frá því um áramótin í fyrra. Aðeins fyrstu daga síldveiðanna mátti heita gott veður. Bjarni Jóhannesson aflakóngur 1958. Hvernig hagaSi síldin sér. Hún gekk mun grynnra en í fyrrasumar og fyrirfarandi sum- ur. En hún brást að mestu á svæðinu frá Grímsey að Langa- nesi og eins við Kolbeinsey. En síldarmagnið í sjónum, mi'öaó við fyrirfarandi ár? Um það getur maður lítið sagt. Hitt er aftur á móti víst, að hún lét fremur lítið sjá sig. 1 sumar hefði ekki orðið nein teljandi veiði, ef hin nýju leitartæki hefðu ekk verið fyrir hendi. Hvað heldur þú að ráði mestu um hinn mikla aflamismun s Icipanna ? Þeir, sem fram úr skara með aflann, munu kunna betur en aðrir að nota hin nýju hjálpar- tæki. Mér er heldur ekki grun- laust um að ábótavant sé um nið- ursetningu þeirra í sumum bát- um og auðvelda þau þá ekki síld- arleitina sem skyldi. Hefur þú asdictæki einnig í snurjm b átunum ? Já, í öðrum þeirra og ég tel það mjög hagkvæmt. Hvaö fékkstu mest í kasti? Við fengum einu sinni 1206 tunnur út af Digranesi. Það er svo sem ekkert sérstakt við það, nema að þessi síld var öll söltuð, „hver einasta padda“. En ufsinn? Síðustu dagana fengum við 75 tonn af ufsa. Þar af fengum við 52 tonn við Hamarsborða á Hag- nesvík. Við lögðum hann upp á Sauðárkróki og lítils háttar í Hrísey. Snæfell er eign Útgerðarfélags KEA á Akureyri og smíðað í Skipasmíðastöð KEA fyrir hálf- um öðrum áratug. Fyrsti skip- stjóri þess var Egill Jóhannsson og allt þar til Bjarni Jóhannes- son, núverandi skipstjóri, tók við því fyrir 6 árum. Snæfell hefur verið mikið happaskip. (Dagur, Akureyri). ÚTGERÐARMENN — VÉLSTJÓRAR VANDIÐ VAL A SMURNINQSOLlUM SOCONY MOBIL OIL COMPANY /NC., BÝDUR ÁVALL ÞAÐ BEZTA FYRIR DIESELVÍ3LAR: D. T. E. Marine Oil, nr. S—4 og 6 FYRIR HRAÐGENGAR VÉLAR: Delvac Marine Oil 920—930 og 940 FYRIR ALLAR BlLA- OG BENZÍNVÉLAR: Mobilolíur 8AE 20—80—40 og 50 Þetta merki trygglr gteSln. H. BENEDIKTSSON H. F. HAFNARHVOLI — RBYKJAVÍK 204 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.