Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1980, Side 14
væri gætu starfsmenn hafnar á
hverjum stað bætt mjög mikið úr
því sem miður fer.
Tvö blikkljós sýni
viðlegukantinn
— Til að auka öryggi við að-
siglingu tel ég víða nauðsynlegt að
sett verði upp tvö leiðarljós, annað
fremst á bryggjuhorn, en hitt á
efra eða innra bryggjuhorni eða
jafnvel inni í landi. Þetta þurfa að
vera mismunandi lit blikkljós sem
sýna hvernig viðlegukantur ligg-
ur. Skipstjóri á að geta séð á þess-
um ljósum hvernig skipið setur,
hvort drift eða straumur ber það
til. Á mörgum stöðum er lítið af
ljósum til slíkrar viðmiðunar.
Nyrðra horn Gömlu bryggjunnar á
Vopnafirði, mjög vel varið dekkjum.
VÍKINGUR
Vel varinn brvggjukantur í Norðfjarðarhöfn. (Jppsetning dekkjanna er athyglisverð.
Ég er líka viss um að ná mætti
góðum árangri í að verja hornin ef
fengnir væru til þjálfaðir menn,
t.d. starfsmenn Reykjavíkurhafn-
ar til að gera tilraunir með þetta.
— Þó að bíldekk séu víða mjög
mikið notuð til að verja bryggjur,
þá er áberandi að þeim er ekki rétt
fyrir komið. Til dæmis eru þau á
mörgum stöðum langt fyrir neðan
bryggjukantinn. Oft kemur bógur
skips fyrst að bryggjunni þegar
lagt er að, og hlífa þé dekkin ekk-
ert, þó að þau geti verið ágætis
vörn þegar skipið liggur rétt með
bryggjunni.
Bíldekkin rná betrumbæta sem
þybbur með því að setja inn í þau,
t.d. gúmmíhringi svipaða og áður
voru notaðir í fótreipi. Það mundi
gefa þeim meira fjaðurmagn.
— Margir forráðamenn hafna
töluðu um það við mig að þá
vantaði ýmislegt til að koma
dekkjunum fyrir, svo sem keðjur,
lása og fleira. Ég held að það væri
mjög nauðsynlegt að einhver einn
aðili í landinu sæi um að veita
upplýsingar um þybbur og upp-
setningu þeirra og gæti jafnframt
átt á lager eða séð um útvegun á
heppilegasta útbúnaði. Ef svo
k
Erlendur hefur í viðtalinu hér
að ofan fjallað um mál sem
brýnt er að tekið sé föstum
tökum. Önnur hlið á þessu
máli er sú sem snýr að stjórn-
hæfni skipa. Um hana verður
fjallað nokkuð í næsta tölu-
blaði Víkings. Ritstjóri.